22.10.1973
Sameinað þing: 5. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 78 í B-deild Alþingistíðinda. (41)
Umræður utan dagskrár
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Ég skal ekki hafa mörg orð, því að þegar ég bað hæstv. forseta um orðið utan dagskrár, var það út af því sama og hv. þm., sem var að tala hér áðan, gerði að umræðuefni. Mér er ljóst, að þessa dagana er landhelgismálið mjög viðkvæmt, og það er auðvitað mjög viðkvæmt, að ekki komi til stórárekstra á milli þessara þjóða þessa dagana, á meðan verið er að reyna til þrautar samkomulagsleið í þessu viðkvæma og erfiða deilumáli. En það má segja, að það hafi ekki linnt símanum til okkar nú yfir helgina frá skipstjórnarmönnum, sjómönnum og nokkrum útgerðarmönnum á Vestfjörðum út af því ástandi, sem þar hefur skapast. Sérstaklega hefur það vakið gremju manna þar, þegar hin erlendu veiðiskip taka í engu tillit til friðaðs svæðis, sem íslendingum er eðlilega bannað að fara inn á, svæðis, sem er úti af Kögri og allir virða nema þessir bresku togarar nú þessa dagana, og þar er mokað upp smáfiski. Jafnframt er sagt af þessum mönnum, sem til okkar leita með sínar áhyggjur, að á þessu svæði séu einnig Vestur-Þjóðverjar og einstaka Færeyingar, sem ríkisstj. hefur gert samninga við. Það er eðlilegt, að það ríki mjög mikil gremja og sársauki hjá íslenskum sjómönnum að sjá þessa veiðiþjófa hunsa með öllu friðlýst svæði, sem ríkisstj. hefur nýlega friðlýst. Þó að við kannske reynum að hafa sem fæst orð um aðrar veiðar þessa dagana, þá hlýtur það að vera lágmarkskrafa, að Bretar virði friðlýst veiðisvæði okkar. Þær ásakanir, sem koma fram í nefndri grein þessa skipstjóra í Morgunblaðinu á hendur landhelgisgæslunni, eru mjög ákveðnar, og þarfnast skýringa, ef íslenskir skipstjórnarmenn biðja um, sem eru inni á friðlýstu svæði, að þá skuli ekki vera svarað þar nokkru orði. Það er ákaflega mikilvægt atriði, að þetta sé upplýst og kippt sé þarna strax í taumana og bresku ríkisstj. gert viðvart um, að til þess sé ætlast, ekki eingöngu af sjómönnum og einstaka þm., heldur Alþ. öllu og ríkisstj., að friðlýst svæði séu virt, a. m. k. þessa dagana, á meðan verið er að leita samninga, og það sé gert sem algert skilyrði frá hendi Íslendinga, að Bretar virði friðlýst svæði.