12.11.1973
Sameinað þing: 17. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í B-deild Alþingistíðinda. (413)

92. mál, bráðabirgðasamkomulag við Bretland um veiðar breskra togara

Matthías Á. Mathíesen:

Herra forseti. Í ræðu þeirri, er hæstv. forsrh. hélt hér á Alþ. s. l. fimmtudag, er till. ríkisstj. til þál. um heimild fyrir ríkisstj. til að ganga frá bráðabirgðasamkomulagi við ríkisstj. Bretlands um veiðar breskra togara var lögð fram, lagði hann áherslu á víðtæka samstöðu þm. í þessu máli og haldi, sem rétt er, landhelgismálið hafa algera sérstöðu þeirra mála, sem Alþ. fjallar um, landhelgismálið væri mál þjóðarinnar allrar, er hafið væri yfir flokkspólitískar deilur, og út frá því sjónarmiði yrðu alþm. að skoða málið. Reyndar hefur hæstv. forsrh. áður haldið þessu fram, og hann komst að raun um þetta er þingheimur allur, 60 alþm., greiddi atkv. með till. utanrmn. Alþ. 15. febr. 1972 um útfærslu landhelginnar í 50 mílur, enda þótt minni hl. utanrmn. fengi ekki samþykktar brtt. sínar, sem, eins og kunnugt er, gerðu ráð fyrir meiri stækkun landhelginnar. Þá greiddi núv. stjórnarandstaða atkv. með málinu og tók á Alþ. ábyrga og málefnalega afstöðu.

Skoðanir um nauðsyn samstöðu í þýðingarmiklum málum eru fyrir mér ekki ný sannindi. Hitt er óvenjulegra og alveg nýtt, þegar hæstv. forsrh. í s. l. rúm 2 ár heldur slíku fram og sýnist þá gersamlega hafa skipt um skoðun miðað við orð hans og athafnir á Alþ. þau 12 ár, sem hann sat í stjórnarandstöðu. Reyndar á þetta ekki við hæstv. forsrh. einan, heldur og um þá samflokksmenn hans og þm. SF, sem sæti áttu á Al.þ. fyrir síðustu kosningar. Það er hins vegar ljóst, hvernig Alþb.-menn hafa reynt að notfæra sér þetta lífshagsmunamál okkar Íslendinga, og því er ekki hægt að búast við afstöðu úr þeirri átt, sem þjónar íslenskum hagsmunum, en því mun ég víkja síðar.

Þess vegna vek ég athygli á orðræðum hæstv. forsrh., að honum var öðrum fremur teflt fram sem talsmanni flokks síns í stjórnarandstöðu, virtum kennara í lögfræði við Háskóla Íslands, sem búast mátti við, að ekki léti pólitíska stundarhagsmuni Framsfl. ná yfirtökum á málflutningi sínum, þannig að hann kærði sig kollóttan um, hvað þjóðinni væri fyrir bestu, svo og fyrri skoðanir sínar á grundvallaratriðum alþjóðarréttar. Ekki til að gagnrýna hæstv. forsrh. fyrir skoðanir hans í dag, heldur miklu fremur til að sýna fram á það breytta hugarfar, sem er hjá hæstv. forsrh., breyttar skoðanir hans, langar mig til að vekja athygli á ummælum hans og afstöðu, þegar á Alþ. 1960 og 1961 þáv. landhelgisdeila var til umr. Þá gagnrýndi núv. hæstv. forsrh. þáv. ríkisstj. fyrir undanlátsemi við Breta, fyrir að gera samninga við Breta og veita þeim heimildir til þess að veiða innan þeirrar landhelgi, sem Íslendingar þá höfðu tekið sér, 12 mílna landhelginnar. Hæstv. forsrh. sagði í ræðu á Alþ. 14. nóv. 1960, með leyfi hæstv. forseta:

„En þó að ég ámæli ekki ríkisstj. og áfellist það ekki út af fyrir sig, að hún hefur tekið upp viðræður við Breta um þetta mál, þá var annað, sem ég tel fulla ástæðu til að átelja í sambandi við þær viðræður, sem ríkisstj. hefur tekið upp. Ég tel. að ríkisstj. hefði um leið og hún féllst á að taka upp viðræður við Breta um landhelgismálið, átt að lýsa því yfir, að ekki kæmi til mála nein minnkun fiskveiðilandhelginnar, að það kæmi ekki til mála nein innfærsla á landhelgislínunum, hvorki almennt né gagnvart neinni, einstakri þjóð. Hún átti að lýsa því yfir, að enginn undansláttur frá landhelgislínunni kæmi til greina í samningaviðræðum.“

Þetta sagði hæstv. núv. forsrh., áður en landhelgissamningurinn var lagður fyrir Alþ. og áður en honum varð ljóst, að með samningnum 1961 fékkst landhelgi Íslands stækkuð um rúma 5 þús. ferkm, auk þess sem hún var viðurkennd. Þegar svo samningurinn var til umr. á Alþ., sagði hæstv. forsrh. 2. mars 1961, með leyfi forseta:

„Það hefur til þessa verið stefna íslenskra stjórnvalda, að landhelgina ætti að færa út með einhliða ákvörðun Íslendinga, en ekki með samningum við aðrar þjóðir, nema þá alþjóðasamþykkt. Þess vegna var margendurteknum tilmælum frá NATO-þjóðunum um að taka upp samninga um landhelgismálið vísað á bug. Slíkum tilmælum var einmitt hafnað með orðsendingunni 20 ágúst 1958.

Nú eru hins vegar teknir upp samningar við Breta um stærð landhelginnar og um réttindi Bretum til handa í fiskveiðilandhelginni. Það eru ný og hættuleg vinnubrögð í þessu lífshagsmunamáli þjóðarinnar. Hvenær hefðu Íslendingar getað fært fiskveiðilandhelgina út í 12 mílur, ef sú útfærsla hefði verið háð samningum við aðrar þjóðir.“

Þegar þessi ummæli hæstv. forsrh. eru borin saman við gerð ríkisstj. hans nú, verður ekki með sanni sagt, að þar hafi verið farið að hans ráðum samkv. fyrrgreindum ummælum. Nú er líka öldin önnur hjá Ólafi Jóhannessyni. Nú veitir hann ríkisstj. Íslands forsæti. Hegðun hans hefur líka verið með allt öðrum og skynsamlegri hætti en hann taldi 1960 og 1961, að hegðun forsrh. ætti að vera í slíku lífshagsmunamáli, eins og hann orðaði það þá. Nú telur hæstv. forsrh. eðlilegt að semja við Breta. Nú telur hann rétt að veita þeim réttindi til að veiða innan landhelginnar, meira að segja án þess, að þeir viðurkenni þá landhelgi, sem við höfum tekið okkur, hvað Bretar gerðu þó með samningnum 1961. Hæstv. forsrh. hugsaði þá ekki um nauðsyn á samstöðu í þessu lífshagsmunamáli. Það gerði enginn þáv. stjórnarandstæðingur. Þeir hugsuðu ekki heldur um samstöðu og þjóðareiningu í landhelgismálinu vorið 1971, þegar ríkisstj. Jóhanns Hafsteins beitti sér fyrir ákvörðun Alþ. um stækkun landhelginnar í minnst 50 mílur og ákvörðun um réttindi Íslendinga á hafinu umhverfis Ísland. Það var e. t. v. ekki hægt að ætlast til þess af hæstv. núv. forsrh., þá formanni stærsta stjórnarandstöðuflokksins, að hann þá hugsaði um samstöðu. Hann hafði þá verið í stjórnarandstöðu í 12 ár og gerði því allt hvað hann gat til þess að komast til valda. Þá var ekki nauðsynlegt að varðveita samstöðuna í landhelgismálinu, þá var sjálfsagt að búa til ágreining, ágreining um útfærsludag, en ekki víðáttu, og gera landhelgismálið að harðvítugu kosningamáli.

Þannig er málflutningur framsóknarmanna í dag alger andstæða við málflutning þeirra 1961. Málflutningur þeirra í dag lýsir allt, sem þeir sögðu þá, sem óábyrgt tal manna, sem ekki höfðu þjóðarhagsmuni að leiðarljósi. En batnandi mönnum er best að lifa, og vonandi hættir Ólafur Jóhannesson ekki að hafa þá skoðun og beita sér fyrir henni, að sem víðtækust samstaða megi takast í mikilvægum málefnum þjóðar okkar, enda þótt ráðherrastólarnir á Íslandi verði honum þá ekki lengur falir.

Á meðan hæstv. forsrh. leggur hart að sér og leggur ríka áherslu á samstöðu í þessu þýðingarmikla máli, hriktir í innviðum ríkisstj. Móttökurnar, sem hæstv. forsrh. fékk hjá tveimur ráðherrum sínum, er hann kom úr Bretlandsreisu sinni, eru með eindæmum. Ekki hafði ríkisstj. fyrr verið skýrt frá gangi mála en skotið var á fundi í þingflokki Alþb. og þar samþ. að hafna úrslitakostunum og dæma samningsdrögin óhæf, eins og Þjóðviljinn gerði. Sá trúnaður, sem forsrh. veitti ríkisstj., utanrmn. og þingflokkum Alþ. var rofinn af einum stjórnarflokkanna.

Hvað var að gerast? Var samkomulagsgrundvöllur sá, sem forsrh, hafði meðferðis heim, svona slæmur? Voru þetta virkilega úrslitakostir? Þegar málið var skoðað ofan í kjölinn, kom í ljós, að forsrh. hafði lagt fram till. fyrir breska forsrh., sem hann gekk að svo til óbreyttum. Gátu það talist úrslitakostir, er gengið var að nær óbreyttum till. forsrh. Íslands? Eftir þingflokksfund Alþb. lýsir forsrh. því yfir, að hann mæli með samningsdrögunum og muni ekki vilja bera ábyrgð á því, ef þeim yrði hafnað, og gerði samþykkt þeirra þar með að fráfararatriði. Formaður Alþb., hv. þm. Ragnar Arnalds, gaf þá mjög snögglega út tilkynningu um, að hér hefði verið um misskilning að ræða. Auðvitað geta menn misskilið, ég tala nú ekki um, þegar skjöl eru hirt á erlendri tungu.

Þegar hér var komið, leggur forsrh, síðan til, að utanrrh. verði falið að gera uppkast að samningi og sjálfsagt sé að reyna að fá fram breytingar frá samningsdrögunum.

Allt gerist þetta fyrir opnum tjöldum, allt með þeim hætti, að bresk stjórnvöld geta fylgst með. Hverjum dettur svo í hug, að hægt hafi verið að ná fram breytingum á samningsdrögunum eftir háttalag ráðh. og þm. Alþb. svo og yfirlýsingu forsrh? Ég vek athygli á þessu hér, til þess að öllum sé ljóst, hverjir beri ábyrgðina á því, að ekki náðist fram breyting á samningsgrundvellinum, sem forsrh. kom með heim frá Bretlandi. Það er þingflokkur Alþb. með ráðh. sína í fararbroddi, sem ber þar á alla ábyrgð. Utanrrh. gekk síðan frá samningsuppkastinu. Það var óbreytt, það tókst ekki að fá inn hámarksafla, eins og þó hafði verið gert ráð fyrir. Það er aðeins í innganginum að samningnum, og þar stendur, að hámarksaflinn megi vera um 130 þús. tonn.

Þegar utanrrh, hafði lokið samningsuppkastinu og í ljós kom, að engum breytingum hafði verið fram komið, héldu Alþb.-menn flokksráðsfund. Nú var mikill vandi á höndum. Nú skyldu flokksráðsmenn þeirra sjá, hversu snjallir ráðh. þeirra væru. Nú skyldi flokksráðsfundinum tilkynnt, að þeir yrðu að samþykkja þegjandi og hljóðalaust samningsuppdrögin óbreytt og kyngja öllum þeim stóru orðum, sem sögð höfðu verið um samningsdrög forsrh., þá fengju Alþb.-menn fulltrúa í samninganefnd þá, sem fjallar um endurskoðun varnarsamningsins og aðild Íslands að NATO. Þar með opinberuðu þeir Alþb.-menn það, sem reyndar hafði verið öllum ljóst, að landhelgismálið höfðu þeir alltaf hugsað sér að nota til þess að skapa sér betri áhrifastöðu í öryggis- og varnarmálum þjóðarinnar. Þegar þeir sáu fram á, að landhelgisdeilan við Breta yrði til lykta leidd og þeir yrðu að taka þátt í því að leysa hana og ekki væri lengur hægt að nota ofbeldisaðgerðir Breta á fiskimiðunum gegn Atlantshafsbandalaginu, skyldi stuðningur við lausn málsins notaður sem verslunarvara. Munu þeir hafa farið fram á það við forsrh. og utanrrh., að fyrir stuðning sinn við þá till., er hér liggur fyrir, fengju þeir fulltrúa í þá n., sem ég áður gat um.

Í sjónvarpsviðtali nú fyrir skömmu neitaði hæstv. forsrh. því, að þessum málum hafi nokkuð verið blandað saman. Ekki að ég efist um hans svör, heldur hitt, að ég vildi gjarnan, að hæstv. forsrh. svaraði þessu hér á Alþ. Því langar mig til þess að spyrja hann, en ég sé, að hann er ekki hér inni í þingsölunum, hann er ekki langt fjarri, — mig langar til þess að spyrja hæstv. forsrh.: Voru Alþb.-mönnum í sambandi við afgreiðslu þessa máls gefnar einhverjar yfirlýsingar varðandi öryggis- og varnarmál þjóðarinnar?

Það hefur alltaf komið fram af hálfu okkar sjálfstæðimanna, að við höfum viljað freista þess að leysa þá deilu, sem við höfum staðið í við Breta. Við lögðum á það áherslu, að í till. þeirri, sem Alþ. samþykkti 15. febr. 1972, væri kveðið á um samkomulagstilraunir við ríkisstjórnir Bretlands og Sambandslýðveldisins Þýskalands um þau vandamál, sem sköpuðust vegna útfærslu landhelginnar, og það var samþ. Afstaða fulltrúa Sjálfstfl. í utanrmn. hefur verið í samræmi við það. Við höfum í skýrum bókunum þar gert grein fyrir sjónarmiðum okkar, eftir því sem mál þetta hefur þróast, og jafnan aðvarað ríkisstj. og meiri hl. utanrmn., þegar okkur hefur sýnst út í ófæru stefnt. Það er ekki hægt að segja, að meiri hl. utanrmn. hafi hagað vinnubrögðum sínum út frá sama sjónarmiði, ef borin er saman afstaða meiri hl. utanrmn. til þeirrar till., sem hér er til umr., og afstaða meiri hl. á utanrmn.-fundi 26. sept. s. l., þegar fyrir lá forsenda niðurstöðunnar, sem nú liggur fyrir. Það er vissulega ástæða til að rifja upp utanrmn.-fund og afstöðu manna þar.

Það er rétt, að það komi fram í þessum umr., hversu óviturlega meiri hl. utanrmn. vildi bregðast við, þegar landhelgismálið var á því stigi, að um slit á stjórnmálasambandi var að ræða, eða hyggja að bréfi því, er forsrh. Íslands hafði borist frá forsrh. Bretlands. Jafnframt því hafði forsrh. Íslands óskað eftir því við utanrmn., að hún léti álit sitt í ljós á því, hvort hyggja ætti að bréfinu og fresta stjórnmálaslitum eða hvort nm. teldu rétt að slíta stjórnmálasambandinu þá þegar. Hvernig brást utanrmn. við? Hverjar voru skoðanir utanrmn.- manna? Jú, það voru aðeins við Jóhann Hafstein, fulltrúar Sjálfstfl., sem töldum rétt að athuga betur, hvað fyrir forsrh. Bretlands vekti, og forsrh. Íslands ákvæði til þess stuttan frest. Aðrir nm. töldu ekki ómaksins vert að skoða málið, heldur lögðu til, að stjórnmálasambandi við Breta yrði slitið þá þegar næsta dag, og við það hafði utanrrh., er sat fundinn, ekkert að athuga.

Það gerðist hins vegar næsta dag sem sjálfsagt var, að hæstv. forsrh. fór ekki að ráðum meiri hl. utanrmn., heldur till. minni hl. n. okkar Jóhanns Hafsteins. Hefði forsrh. farið að till. meiri hl. utanrmn., hefðu þeir ekki haft tækifæri til þess að mæla með þáltill. þeirri, sem hér er til umr. Tillagan hefði þá ekki verið á dagskrá, heldur slit á stjórnmálasambandi við Breta orðin og málið í enn verri hnút en áður.

Ég hef hér stuttlega vikið að því, hvernig að þessum málum hefur verið staðið af hálfu sundurleitrar ríkisstj. og ríkisstjórnar meiri hl., enda má sjá það af verkum hennar. Ég er þeirrar skoðunar, að unnt hefði verið að ná mun hagstæðari samningum en hér eru lagðir fyrir. Að það hefur ekki tekist, er því að kenna, hverjir hafa haldið á málunum og hvernig. Ég mun þó greiða atkv. með till., sbr. nál. okkar í minni hl. utanrmn.