12.11.1973
Sameinað þing: 17. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í B-deild Alþingistíðinda. (424)
92. mál, bráðabirgðasamkomulag við Bretland um veiðar breskra togara
Jónas Árnason:
Herra forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs til þess að beina fáeinum orðum persónulega til hv. þm. Bjarna Guðnasonar. Þessi þm. hefur oft barist hetjulega í flokkslegri einsemd sinni hér á Alþ., og það skal hann vita, að fyrir það hefur hann oft vakið aðdáun mína, þó Benedikt Gröndal telji sig að sjálfsögðu það æfðan stjórnmálamann, snjallan og reyndan, að hann geti kallað málflutning Bjarna Guðnasonar vaðal og vitleysu.
Bjarni Guðnason hefur talað tvisvar í því máli sem hér er til umr., og öðru fremur til þess að frýja okkur Alþb.-mönnum hugar. Bjarni Guðnason veit það áreiðanlega, að núv. stjórnarsamstarf veltur á því, hvernig við Alþb.-menn greiðum atkv. um það samkomulag, sem hér liggur fyrir, — samkomulag, sem við teljum eins og hann að ýmsu leyti meingallað og að sumu leyti grábölvað. Hann veit það líka áreiðanlega, Bjarni Guðnason, að það er ekki bara stjórnarandstaðan íslenska, sem að undanförnu hefur beðið þess málþola, að núv. stjórnarsamstarf rofnaði. Hjá breska útgerðarauðvaldinu hefur ríkt sams konar eftirvænting, einnig hjá fulltrúum þess í bresku ríkisstj. og í aðalstöðvum NATO og víðar. Allir þessir aðilar mundu verða því fegnastir að sjá núv. ríkisstj. velta úr sessi, þessa vinstri stjórn okkar, og hægri stjórn setjast í órokin sætin, því að þannig yrði þetta, það veit Bjarni Guðnason líka. Það yrðu ekki neinar kosningar.
Þess vegna vil ég beina þessari spurningu til Bjarna Guðnasonar. Hvernig stendur á því, að í ræðu hans, þegar hann er að frýja okkur Alþb.-mönnum hugar, vantar alltaf eitt, hreinskilna játningu hans þess efnis, að hann vilji fella vinstri stjórnina? Hvers vegna segir hann það ekki berum orðum, að hann ætlist til þess, að við Alþb.-menn styðjum hann í því að koma þessari stjórn frá og gefa þá upp á bátinn ýmis þau stóru mál, sem óafgreidd eru?