12.11.1973
Sameinað þing: 17. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í B-deild Alþingistíðinda. (425)
92. mál, bráðabirgðasamkomulag við Bretland um veiðar breskra togara
Bjarni Guðnason:
Herra forseti. Áður en ég vík máli mínu til andsvara við ræðu hv. síðasta ræðumanns, vil ég segja nokkur orð viðvíkjandi þeirri beiðni hæstv. forsrh., að ég dragi til baka brtt. mína á þskj. 112, þar sem svo er kveðið á, að Íslendingar hafi fulla og óskoraða lögsögu að 50 mílna fiskveiðimörkunum. Lét hæstv. forsrh. orð falla á þá lund, að það væri nánast smán fyrir mig að bera slíkt fram og væri nánast óþekkt í þingsögunni, það væri með öllu óviðunandi, að ég gerði slíkt, og ég ætti að forða mér frá slíkum voða.
Þetta kemur mér dálítið undarlega fyrir sjónir. Í fyrsta lagi vil ég benda á, að svipað ákvæði var einmitt í samningnum frá 1961. Þar er tekið inn í samninginn við Breta, að þeir viðurkenna 12 mílna lögsögu. Og ég vil spyrja, hvort ekki sé betra að tryggja fulla lögsögu eða rétt til 50 mílna í þessu plaggi, fá viðurkenningu á 50 mílunum hjá Bretum, því að um það stendur deilan, heldur en hitt að semja af sér. É'g fæ ekki betur skilið en að í 6. gr., þar sem gert er ráð fyrir því, að eigi að kalla á breskt aðstoðarskip til þess að ganga úr skugga um og sannreyna málsatvik, þegar breskur togari er staðinn að veiðum, þá séu Íslendingar beinlínis að viðurkenna aðild Breta að 50 mílna lögsögunni. Og þá er spurningin, hvort í slíku ákvæði felist ekki undansláttur. Er ekki miklu skynsamlegra að taka upp í samkomulagið viðurkenningu á 50 mílunum en að semja af sér? Þar að auki hafa þau orð fallið, að ég hygg hæði hjá hæstv. forsrh. og öðrum, að sá skilningur ríkti á samkomulaginu af Íslendinga hálfu, að þeir hefðu fullt eftirlit á miðunum. Hvers vegna þá ekki að taka það beinlínis inn í samkomulagið, að Íslendingar hefðu óskoruð yfirráð yfir 50 mílna lögsögunni? Ég sé því ekki ástæðu til þess að draga þetta til baka og vænti þess, að þetta komi til afgreiðslu.
Varðandi það, sem síðasti ræðumaður sagði, vil ég taka þetta fram. Alþb. átti um tvo kosti að ræða: annars vegar að standa á einhverju „prinsipi“, þ. e. a. s. standa á sannfæringu sinni eða hverfa úr ráðherrastólum. Þetta er alltaf mikið mál að vega. Ef ég stæði í sporum Alþb. og reyndi að hugsa þetta mál, þá hefði ég tekið tillit til, að þetta væri lífshagsmunamál þjóðarinnar, og ef menn eiga ekki að fylgja sannfæringu sinni í máli af þessu tagi, þá er ekki lengur um neinar hugsjónir eða „prinsip“ að ræða í pólitískum vinnubrögðum. Mig minnir, að hæstv. iðnrh. hafi minnst á Watergate-málið fyrr í kvöld, og var það í sambandi við opin vinnubrögð, þan hefðu ekki tíðkast fyrir vestan, þess vegna væri illa komið fyrir Nixon forseta. En það er líka annað. Það stafar af því, að mér virðist Nixon og hans félagar ekki hafa haft nein „prinsip“ í pólitík nema það eitt að tryggja valdastöðu sína. Og þegar menn eru komnir út á það svið, að engin meiri háttar mál eru það mikilvæg, að það sé unnt að láta af valdastöðu til þess að fylgja þeim eftir, þá er mikill vandi kominn upp í íslenskum stjórnmálum. Og ég spyr: Þegar flokkar þykjast hafa unnið stórsigur með því að berjast fyrir 50 mílna lögsögu, hvers eiga þá kjósendur að gjalda, þegar stjórnmálamennirnir bregðast fólkinu? É'g hygg, að það sé einmitt sá vandi uppi í íslenskum stjórnmálum, að fólkið er hætt að treysta íslenskum stjórnmálamönnum og íslenskum stjórnmálaflokkum, þegar ekki einu sinni í helsta hagsmuna- og lífsbaráttumáli þjóðarinnar er hægt að fylgja sannfæringu sinni. Hér gerist það beinlínis, að einn flokkur, Alþb., lýsir því yfir, að samkomulagið sé gersamlega óaðgengilegt, og síðan gerist það, að ráðh. þess standa upp og verjað það í blóð og merg. Þetta er dálítið hart aðgöngu, sérstaklega fyrir kjósendur þessa flokks. Og ég vil minnast líka á það, að hæstv. sjútvrh. vék þeim orðum að formanni Sjálfstfl. hér áðan, að hann hefði verið að gagnrýna samkomulagið, en þrátt fyrir það ætlaði formaður Sjálfstfl. að fylgja samkomulaginu, og var hæstv. sjútvrh. undrandi á því. En er ekki dálítið athugandi fyrir hæstv. sjútvrh., þegar hann segir, að Sjálfstfl. hafi allt frá upphafi rekið undansláttastefnu í landhelgismálinu, að nú allt í einu standi þeir reyrðir saman, formaður Sjálfstfl. og sjútvrh., og skilur þá ekkert að. Og er það ekki dálítið hættumerki, hversu komið er fyrir félagshyggjuflokknum?
Í raun og veru er það alveg nöturlegt að hlýða á mál manna hér í kvöld, og ég á sérstaklega við það, þegar allir stjórnmálaflokkarnir hérna eru eiginlega runnir í eitt. Þetta er einn og sami flokkur hér, því miður. Og vinstri flokkarnir eru farnir að vinna alveg eins og íhaldið. Nú er bara það, að þessir félagshyggjuflokkar vinna verkin fyrir íhaldið, og það er von, að flestir þm. standi nú saman. Það er ekkert eftir nema 2–3 villtir sauðir í Sjálfstfl. og svo þessi vesalings utanflokka þm. 3. hv. landsk., svo að það er ekki gott í efni. En ég er uggandi yfir þróun stjórnmálanna hér á Íslandi. (Jónas Á.: Vill þm. eða vill hann ekki, að stjórnin falli?) Ég svara þessu á þá lund, að samkv. stjórnarskránni eiga þm. að fylgja sannfæringu sinni og greiða atkv. í málum eins og sannfæringin býður þeim.