13.11.1973
Sameinað þing: 19. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 597 í B-deild Alþingistíðinda. (467)

361. mál, Landhelgissjóður

Forsrh. (Ólafar Jóhannesson) :

Herra forseti. Af sektarfé íslenskra skipa á Landhelgissjóður óinnheimtar 6 millj. 77 þús. kr. Af sektarfé erlendra skipa á Landhelgissjóður ekkert óinnheimt. Framangreindar sektir eru til innheimtu hjá eftirtöldum embættum:

Yfirsakadómari í Reykjavík, 7 mál. 315 þús. Bæjarfógetinn, Akranesi, 4. mál, 175 þús.

Sýslumaður Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu, 1 mál, 60 þús.

Sýslumaður Barðastrandarsýslu, 2 mál, 640 þús. Lögreglustjórinn, Bolungarvík, 1 mál, 600 þús. Bæjarfógetinn, Ísafirði, 2 mál, 640 þús.

Sýslumaður Húnavatnssýslu, 1 mál, 40 þús.

Bæjarfógetinn, Siglufirði, í mál. 600 þús.

Bæjarfógetinn, Ólafsfirði, 1 mál, 45 þús.

Bæjarfógetinn, Akureyri, 1 mál, 250 þús.

Bæjarfógetinn, Húsavik, 3 mál, 697 þús.

Bæjarfógetinn, Seyðisfirði, 1 mál, 40 þús.

Sýslumaður Skaftafellssýslu, 5 mál, 225 þús. Bæjarfógetinn, Vestmannaeyjum,2 mál. 100 þús. Sýslumaður Árnessýslu, 3 mál, 120 þús.

Bæjarfógetinn, Keflavík, 2 mál, 100 þús.

Bæjarfógetinn, Hafnarfirði, 1 mál, 40 þús.

Til innheimtu hjá rn. sjálfu og ósent til embætta, eru 5 mál. 1 millj. 390 þús.

Samtals eru þetta 6 millj. 77 þús., eins og ég áður sagði.

Það er kannske rétt að láta aðeins fylgja til skýringar þessu þá aths., að af þessari fjárhæð, sem ég nefndi sem óinnheimtar sektir í Landhelgissjóð, eru 3 millj. 260 þús. kr. vegna töku 14 skipa í einu á veiðisvæði í Miðnessjó 29. apríl 1971. Á tímabilinu frá 1969 til dagsins í dag hefur verið lokið til fullnustu 44 málum innlendra skipa, og sektarfjárhæð er á því tímabili 1.8 millj. Á sama tímabili hefur verið lokið til fullnustu 12 málum erlendra skipa, og er sektarfjárhæð 5 millj. 885 þús.

Þetta voru margar tölur. Hv. fyrirspyrjandi getur að sjálfsögðu, ef hann óskar eftir, fengið afrit af þessu í rn.