13.11.1973
Sameinað þing: 19. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 607 í B-deild Alþingistíðinda. (480)

74. mál, fiskiðnaðarnámskeið sjávarútvegsráðuneytisins

Jón Árnason:

Herra forseti. Eins og kunnugt er, þá er Fiskvinnsluskólinn ung stofnun, hefur starfað aðeins í tvö ár, og segir sig sjálft, að hann er enn þá á byrjunarstigi og á eftir að skila árangri út í atvinnulífið. Þegar til Fiskvinnsluskólans var stofnað og gengið frá löggjöf um hann, var einnig gert ráð fyrir því að setja á, eins og fram kom hjá hæstv. sjútvrh., fiskvinnsluskóla á öðru stigi úti um landið. Þetta átti að gerast á ákveðnu árabili. En mér er ekki kunnugt um, að farið sé að vinna að undirbúningi að stofnun þessara skóla á þeim stöðum, þar sem var sérstaklega kveðið á um, að þeir skyldu vera. Væntanlega verður nú farið að sinna því betur en gert hefur verið.

Í sambandi við það mál, sem hér er til umr., varðandi þessi námskeið, sem haldin hafa verið, og Fiskvinnsluskólann og stöðu þeirra manna, sem stunda þar nám, þá segir það sig sjálft, að menn geta ekki farið að leggja á sig margra ára nám án þess að fá einhver viss réttindi út úr því umfram það, sem menn geta aflað sér á 2–4 vikum. Og það verður að taka skýlausa ákvörðun um það, að þeir hljóti þessi réttindi. Ég veit ekki, hvort er búið að ákveða það í sambandi við útskrift frá þessum skóla, hvort þeir nemendur, sem þaðan útskrifast, verða með alhliða réttindi í fiskmati, sem ég tel, að væri nauðsynlegt, ekki aðeins við frystan fisk, heldur einnig varðandi skreið og saltfisk og aðra sjávarútvegsframleiðslu slíka, því að við rekum okkur á það í sambandi við starfsmenn í fiskmatinu úti um allt land, að það er einn maður, t. d. á vegum ríkisins, í freðfiski, annar í saltfiski og þriðji í skreið, og það eltir hver maðurinn annan. Það háir vitanlega. Verkefnin eru ekki stór víða í smærri sjávarþorpum úti um land, og að því ber að stefna að hafa fullmenntaðan mann, sem getur tekið allt þetta að sér. Þeir menn, sem stunda þetta nám í Fiskvinnsluskólanum, eiga að vera með þá menntun, þegar þeir útskrifast frá þessari skólastofnun, að þeir geti tekið þau störf að sér.