13.11.1973
Sameinað þing: 19. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 609 í B-deild Alþingistíðinda. (482)

367. mál, nýbygging Fjórungssjúkrahúss á Akureyri

Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Hv. þm. spyr í fyrsta lagi, hvers vegna ekki hafi fengist leyfi til að hefja framkvæmdir við grunn nýbyggingar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri snemma í haust, eins og óskað var eftir af hálfu heimaaðila. Þarna hefur ekki staðið á neinum leyfum frá heilbr.- og trmrn. Frumgögnum vegna viðbyggingar við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri var skilað inn til fjárlaga- og hagsýslustofnunarinnar 9. ágúst s. l. Fjárlaga- og hagsýslustofnun hefur ekki enn afgreitt málið, svo að byggingin er ekki enn komin á framkv.stig. Þrátt fyrir þetta heimilaði fjárlaga- og hagsýslustofnunin í samráði við framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins, að framkvæmdir við grunn hæfust um síðustu helgi, og var þá tekið fullt tillit til þeirra óska heimamanna, að framkvæmd þessarar nýju byggingar yrði tengd við eitt hundrað ára afmæli sjúkrahússins, sem var hinn 11. nóvember.

Í öðru lagi spyr hv. þm., hverjar séu till. rn. um fjárveitingar til byggingarinnar á næsta ári. Rn. hefur látið gera framkvæmdaáætlun og fjármögnunaráætlun fyrir bygginguna, og er þar gert ráð fyrir, að framkvæmdinni ljúki allri á þessum áratug. Við þetta eru till. um fjárveitingar á næsta ári miðaðar, og eigi að fylgja áætlun, þarf 34 millj. miðað við verðlag í júlí s. l. og 85% þátttöku ríkisins, eins og gert hefur verið ráð fyrir samkv. nýjum lögum.

Í þriðja lagi er spurt: „Verðum fé framvegis veitt sérstaklega á fjárlögum til Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri eins og til ríkisspítala vegna sérstöðu sjúkrahússins?“ — Þegar byrjað var að ræða um stækkun Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, var rætt við heimamenn sérstaklega um það atriði, hvort áhugi væri á því, að Fjórðungssjúkrahúsið yrði ríkissjúkrahús, en heimamenn vildu ákveðið, að ekki yrði breytt um það rétta form, sem verið hefur. Því var ákveðið, að sjúkrahúsið yrði áfram í eign og rekstri Akureyrarbæjar, og því hafa fjárveitingar til þess verið ákveðnar á sama hátt og lög um heilbrigðisþjónustu gera ráð fyrir, þ.e.a.s. ríkið greiði 85%, sveitarfélög 15%, og er ekki annað vitað en þetta sé í fullu samræmi við vilja Akureyringa.

Í fjórða lagi er spurt: „Verður unnt að standa með eðlilegum hætti að byggingu I. áfanga sjúkrahússins á næsta ári?“ — Áætlanir miðast við það, að undirbúningi I. áfanga verði lokið það tímanlega, að hægt verði að bjóða hana út á næsta vori, og verði svo, verður hægt að fylgja fram áætlunum um I. áfanga.

Í fimmta lagi er spurt: „Hvenær gerir rn. ráð fyrir, að sjúkrahúsið verði fullbyggt?“ — Í tilefni — af þeirri spurningu vil ég fara nokkrum orðum um þetta stóra verkefni. Á árunum 1970 og 1971 tók ríkisstj. ákvörðun um, að á Akureyri skyldi byggja sjúkrahús, þar sem séð yrði fyrir allri sjúkraþjónustu nærsveita Akureyrar, en einnig allri sérfræðiþjónustu Norðurlands, Norðausturlands og hluta Austurlands, og gert yrði ráð fyrir, að á Akureyri risi sjúkrahús, sem ásamt með sjúkrahúsinu í Reykjavík sæi landinu fyrir sérfræðilegri læknisþjónustu. Undirbúningsvinna að þessari byggingu hefur verið mjög viðamikil og vönduð, og er nú svo komið, að áætlanir liggja fyrir um byggingu sjúkrahússins og byggingarforsögn í smáatriðum.

Ég vil stuttlega gera grein fyrir því, hvernig framkvæmdum verður háttað. Gert er ráð fyrir, að byggingin verði gerð í 6–8 áföngum, þannig að byrjað verði á þjónustukjarna, síðan verði byggðar samgönguleiðir og tengiálmur, þar á eftir verði byggð legudeildarálma, síðan eldhús og borðstofa og loks tengiálma ásamt síðari legudeildarálmu. Fyrsti hluti þessa verks, þjónustukjarni, er tveggja hæða bygging með kjallara, samtals 4745 m2 eða um 16700 m3. Í kjallara er gert ráð fyrir ýmiss konar þjónustustarfsemi sjúkrahússins alls, en á 1. hæð er gert ráð fyrir röntgendeild, slysavarðstofu og göngudeild, en á 2. hæð skurðdeild og gjörgæsludeild. Í tengiálmu, þ. e. a. s. byggingu, sem tengir saman gamla sjúkrahúsið og nýbyggingar, er auk ganga gert ráð fyrir skrifstofum lækna, skrifstofu sjúkrahússins, kennsluaðstöðu, bókasafni o.fl. Gert er ráð fyrir, að legudeildarálmur verði tvær, 5 hæðir alls. Í þeirri, sem fyrr verður byggð, er gert ráð fyrir rannsóknadeild á 1. hæð, en legudeildum á 2.–5. hæð. En í þeirri síðari er gert ráð fyrir endurhæfingardeild á 1. hæð, en á 2.–5. hæð verði legudeildir. Gert er ráð fyrir eldhúsi og borðstofu í tveggja hæða byggingu, sem tengist legudeildarálmum og tengiálmu. Gert er ráð fyrir, að eldhús verði á 1. hæð, en borðstofa á 2. hæð.

Samtals er gert ráð fyrir, að spítalinn allur verði 22670 m2 eða 77886 m3 fullbyggður. Í þeirri byggingaráætlun og kostnaðaráætlun, sem rn. og byggingarnefnd hafa látið gera í sameiningu, er gert ráð fyrir að byggja sjúkrahúsið á þessum áratug, og miðað við kostnað 1. júlí s. l. var kostnaðaráætlun sjúkrahússins alls 915 mill,j. kr., þar af byggingarkostnaður 754 millj. og búnaður 161 millj. kr.

Þessi áætlun gerir ráð fyrir því, að byggt verði með nokkuð jöfnum hraða, að þjónustukjarni verði fullbyggður í árslok 1975, en fyrsta legudeildarálma verði tekin í notkun árið 1977, eldhús og borðstofa verði síðan tekin í notkun í ársbyrjun 1978, en síðan legudeildarálma í árslok 1979 eða ársbyrjun 1980. Þessar áætlanir miðast við mjög hraðan byggingartíma, og er að vísu vafasamt, að hægt verði að framfylgja þeim eins og strangasta áætlun gerir ráð fyrir. Ýmsir telja raunsærra að gera ráð fyrir, að sjúkrahúsið verði ekki fullbyggt fyrr en 1984 eða 1985. Þó væri tvímælalaust mjög æskilegt, að hægt væri að flýta þessari framkvæmd eins og unnt er, og í áætlunum rn. um framkvæmdahraða og fjármögnun er fylgt þeim tölum, sem ég nefndi hér áðan, að þessu verki verði lokið á þessum áratug. Þessar till. heilbrrn. liggja nú til athugunar hjá fjárlaga- og hagsýslustofnun.

Það er von okkar, sem að þessu máli stöndum, að hægt verði af fullum krafti að halda áfram á næsta ári þeirri byggingu, sem framkvæmdir hófust við á sunnudaginn var og hægt verði að fylgja sem mest fram þeirri áætlum, sem ég hef nú gert grein fyrir.