13.11.1973
Sameinað þing: 19. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 611 í B-deild Alþingistíðinda. (483)
367. mál, nýbygging Fjórungssjúkrahúss á Akureyri
Fyrirspyrjandi (Lárus Jónsson) :
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svörin. Í svari hans kom m. a. fram, að enn hefur ekki fengist framkvæmdaleyfi fyrir þessari brýnu framkvæmd, sem hér um ræðir, heldur eins konar undanþága, vegna þess að sjúkrahúsið átti merkisafmæli 11. nóv. s.l., og þá var tekin þar fyrsta skóflustungan, án þess að það væri enn komið leyfi frá þar til settum yfirvöldum til þess að hefja í rauninni framkvæmdir. Það kom fram í svari hæstv. ráðh. að málið hefur legið fyrir hjá fjárlaga- og hagsýslustofnuninni síðan 9. ágúst s. l., og má vera, að fleirum en mér þyki tími til kominn, að sú valdamikla stofnun fari að afgreiða þetta mál, þannig að það þurfi ekki að verða frekari dráttur á framkvæmdum en orðið er.
Ég vil aðeins leiðrétta hér misskilning, sem mér virtist koma fram í svari hæstv. ráðh. um það, að ég ætti við, að sjúkrahúsið yrði að öllu leyti meðhöndlað á fjárlögum eins og um ríkisspítala væri að ræða. Það var ekki það, heldur að ég vildi leggja áherslu á sérstöðu þessa sjúkrahúss, bæði hvað hér er um mikla framkvæmd að ræða og eins það hlutverk, sem þessu sjúkrahúsi en ætlað umfram önnur sjúkrahús á landsbyggðinni, og þess vegna spurði ég, hvort ekki væri eðlilegt, að sérstaklega yrði veitt til sjúkrahússins á fjárlögum, og átti þá við, að það yrði gert innan ramma núgildandi laga um sjúkrahús, þ. e. a. s. með 85% þátttöku ríkissjóðs.
Mér finnst, að hér verði um svo umfangsmiklar fjárhæðir að ræða á fjárlögum, þegar um er að ræða 915 millj. kr., sem að vísu dreifast yfir nokkur ár, að ekki væri óraunsætt að taka þetta út úr með sérstökum fjárlagalið, þannig að árlega þyrftu ekki að koma til nokkrar deilur um það, hve mikinn og stóran bita ætti að leggja í þetta sjúkrahús frá öðrum, sem þurfa vissulega fjárveitingar til brýnna framkvæmda, en rökstuðningur minn fyrir þessu er, hversu sjúkrahúsið er sérstaks eðlis. Ég vildi aðeins, að þetta kæmi hér skýrt fram.
Ég vil að lokum leggja áherslu á það, sem þarf kannske hér á hv. Alþ., að í sjúkrahúsmálum þar nyrðra er hreint öngþveiti fyrir dyrum. Þarna er um að ræða 20 ára gamla byggingu, sem Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri er nú starfandi í, og menn geta gert sér í hugarlund, hvaða ástand er þar, þegar höfð er í huga þróun þessara mála á undangengnum 20 árum, enda er það svo nú, að það blasir víðast við í sjúkrahúsinu hreint öngþveiti, ef ekki verður bætt úr hið allra bráðasta.
Ég vil enda mál mitt með því að skora á hæstv. ráðh. að beita öllum þeim tiltæku áhrifum, sem hann hefur, til þess að fá umrædda stofnun, sem enn lúrir á þessu máli, til þess að afgreiða það.