22.10.1973
Sameinað þing: 5. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í B-deild Alþingistíðinda. (50)
345. mál, störf Alþingis
Fyrirspyrjandi (Bjarni Guðnason):
Herra forseti. Ég hef borið hér fram fsp. varðandi störf Alþ., og hin fyrri hljóðar þannig: „Telur forsrh. það í samræmi við stjórnskipun Íslands, að Alþ. sé frá störfum 6 mánuði á ári?“
Nú hagar svo til, að þingið starfar 6 mánuði og er sent heim í orlof aðra 6 mánuði á ári. Af hvaða ástæðu er þetta gert? Ég hef lengi verið að velta því fyrir mér. Að vissu leyti eru þarna gamlar rætur. Þegar þm. fengu þingfararkaup, meðan þing sat, þá var þetta fjárhagsatriði. Og í öðru lagi, þegar annar hver þm. var bóndi, þá þótti eðlilegt, að hann þyrfti að sinna sinu búi, sinni búsýslu. Nú er þetta gerbreytt. Menn eru á þingfararkaupi allt árið og heyskaparhættir, búskaparhættir hafa gerbreyst með þjóðinni. Þá er spurning, hvort það sé eðlilegt, að þingið sé frá störfum hálft árið. Ég hygg, að ástæðan sé fyrst og fremst sú, að ríkisstj. vilji losna við þingið. Það er kannske hart að segja það, en það er gott að losna við þm., og þetta hefur tíðkast alveg fram að þessu. Þá getur ríkisstj. gefið út ein brbl. á fætur öðrum og stjórnað að vild. Ég held því, að þingið sjálft verði að fara að athuga í raun og veru stöðu sína í stjórnkerfinu, því að með þessum hætti, sem nú tíðkast, er ríkisstj., framkvæmdavaldið, að seilast inn á vettvang Alþ., og í öðru lagi eru áhrif embættismanna orðin ógnvekjandi. Mér skilst eftir þeirri litlu reynslu, sem ég hef, að einstakir embættismenn í rn. séu orðnir miklu áhrifameiri en ýmsir þm. Ég held, að ráðuneytisstjórar séu ígildi svona 10–20 þm. og stundum þeirra allra. Ég hygg, að þetta sé atriði, sem þingheimur þarf að átta sig á og hver er eðlilegur vinnutími þingsins, taka þetta til umr. og fá lausn á því.
Í framhaldi af því er önnur spurning: „Telur forsrh., að Alþ. geti sinnt því eftirlitshlutverki, sem því er ætlað, með svona stuttu þinghaldi?“ Með þessu á ég við, að með þessu stutta þinghaldi er Alþ. sett úr leik og það getur ekki sinnt eðlilegu eftirliti, sem það ætti að hafa með ýmsum framkvæmdum, bæði embættismanna og ríkisstj. Ég vil minna t. d. á tvö mál, sem hafa komið upp nýlega. Það var t. d. ástæða fyrir Alþ. að athuga Hochtiefmálið, þar sem kom í ljós, að handvömm embættismanna höfðu leitt til mikilla sekta, á annað hundruð millj., og nýlega hefur komið upp Sunnumálið, þar sem aðilar eru dæmdir í tugi millj. í sekt. Þetta þarf Alþ. að athuga. Hvernig eiga þessir hlutir sér stað? Á enginn að bera ábyrgðina? Eru allir „stikkfrí“ hér í þjóðfélaginu? Ég hygg, að Alþ. þurfi að fara að átta sig á því, hvað það ætlar sér i. raun og veru.