14.11.1973
Efri deild: 20. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 620 í B-deild Alþingistíðinda. (500)

101. mál, þörungavinnsla við Breiðafjörð

Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson) :

Herra forseti. Fyrir um það bil einu ári fékk ríkisstj. í hendur till. frá Rannsóknaráði ríkisins um, að athuga bæri möguleika á stofnun þangþurrkstöðvar á Reykhólum við Breiðafjörð. Till. fylgdi áætlun um stofnkostnað og rekstur verksmiðju til framleiðslu á 4 þús. tonnum af þurrkuðu þangmjöli. Mál þetta hlaut þær undirtektir, að nokkrum vikum síðar lagði ég fyrir hönd ríkisstj. fram frv. til l. um stofnun undirbúningsfélags til að kanna málið nánar og undirbúa byggingu slíkrar verksmiðju eftir föngum. Félag þetta var formlega stofnað 14. febr. s. l. vetur og hófst það strax handa við undirbúningsstarfið. Af hálfu iðnrh. voru skipaðir í stjórn undirbúningsfélagsins þeir dr. Vilhjálmur Lúðvíksson efnaverkfræðingur, Þorsteinn Vilhjálmsson eðlisfræðingur, og aðrir hluthafar kusu úr sínum hópi Ólaf E. Ólafsson kaupfélagsstjóra. Þessi stjórn hefur unnið ákaflega myndarlega að minni hyggju, og ég vil nota þetta tækifæri til að koma á framfæri sérstökum þökkum til hennar.

Undirbúningsstarfið lét ganga frá hönnun allra mannvirkja og tækja í væntanlega þangþurrkstöð, og jafnframt voru gerðar ýmsar undirbúningsrannsóknir á þess vegum, svo sem á þangmagni og útbreiðslu þangfjöru við Breiðafjörð og eiginleikum þangsins. Hugsanleg umhverfisáhrif af starfsemi fyrirtækisins voru athuguð og gerð drög að samkomulagi við flesta landeigendur um þangtökuréttindi. Þá hefur tæknin við þangskurð verið reynd með einu slíku tæki, sem ætlunin er að nota við rekstur, og einnig hafa verið reyndar aðferðir til að flytja þangið frá þangmiðum til verksmiðju á Reykhólum.

Á grundvelli þessa starfs hefur nú verið gerð áætlun um stofnun og rekstur verksmiðju til framleiðslu á 6700 tonnum af þurrkuðu þangmjöli, og liggur skýrsla undirbúningsfélagsins um það mál nú fullbúin hér, henni var dreift til allra hv. þm. fyrr á þessum fundi. Niðurstöðustjórnar undirbúningsfélagsins eru í öllum megindráttum jákvæðar, og telur ríkisstj. rétt á grundvelli till. stjórnar undirbúningsfélagsins að óska eftir heimild til að gangast fyrir stofnun endanlegs rekstrarfélags til að sjá um byggingu og rekstur þangþurrkunarstöðvar á Reykhólum. Til þess er þetta frv. lagt hér fram.

Með fyrirtæki því, sem frv. gerir ráð fyrir, væri stigið merkilegt spor í iðnþróun á Íslandi. í fyrsta lagi er hér um að ræða áform um nýjan útflutningsiðnað með óvenju hagstæðan, hreinan viðskiptajöfnuð, þar sem fáar rekstrarvörur yrðu innfluttar. Óþarft er að rekja á þessum stað þýðingu slíkrar starfsemi fyrir verðmætasköpun og atvinnumargföldun í þjóðfélaginu.

Í öðru lagi er ætlunin að hefja nýtingu nýrrar náttúruauðlindar, þ. e. sjávarþörunga, sem ekki hafa verið nýttir, svo að neinu nemi, til þessa. Er sú auðlind að líkindum það traustari en margar aðrar hráefnalindir, að hún er staðbundin og endurnýjanleg og ekki virðast sömu sveiflur á henni og öðrum jarðargróðri, sem meira er háður veðurfari.

Í þriðja lagi er ætlunin að nýta aðra íslenska auðlind, jarðhitann, sem allmikilvægan orkugjafa við þurrkunina. Þýðing þessa atriðis er e. t. v. að verða mönnum ljós einmitt nú síðustu dagana, þegar velferð nágrannaþjóða okkar er algerlega komin undir þeim pólitísku vindum, sem blása við botn Miðjarðarhafs, og verð á olíu, svo og annarri orku, rýkur nú upp úr öllu valdi og gerbreytir afkomu heilla iðnaðarvelda. Í þeirri þróun á hráefnisverði og orkuverði, sem gert hefur vart við sig á síðustu mánuðum og e. t. v. má túlka sem viðbrögð heimsins við þeirri yfirvofandi rýrnun eða þurrð mikilvægra auðlinda, sem margir þjóðfélagsspámenn hafa bent á að á undanförnu, verður það að teljast óeðlileg gæfa fyrir þjóð að ráða, eins og í þessu dæmi, bæði hráefnis- og orkuauðlind þeirri, sem nýta á, og hvort tveggja sé aðgengilegt innan sama landsvæðis. Það ætti að vera nóg til að tryggja rekstrargrundvöll fyrirtækisins um langan tíma, svo framarlega sem markaðir eru fyrir hendi og rétt er að framkvæmd málsins staðið, Á næstu árum mun rekstararaðstaða fyrirtækisins eflast mjög, eftir því sem ofangreind þróun heldur áfram erlendis.

Í fjórða lagi er okkur það nokkurt kappsmál að þróa aðferðir til að nýta jarðhitann og aðrar auðlindir á sem hagkvæmastan hátt. Aðferð sú, sem hér yrði notuð við þurrkun þangs, gæti allt eins orðið notuð við grasþurrkun og heykögglagerð, og má því teljast merkilegur áfangi og tímamót í nýtingu jarðhitans á Íslandi. Líklegt er, að heykögglagerð með jarðhita fylgi á eftir, þar sem það á við, t. d. við Deildatunguhver í Borgarfirði, Laugardæli, í Biskupstungum og víðar, þar sem jarðhiti finnst.

Í fimmta lagi er með fyrirtæki þessu efnt til framleiðslustarfsemi og hagnýtingar auðlinda á þann hátt, sem hvorki leiði til rányrkju og út rýmingar náttúruauðlegðar né spillingar þess náttúrulega og samfélagslega umhverfis, sem ríkjandi er við Breiðafjörð. Má telja þessa starfsemi eins konar útvíkkun á þeirri fornu hefð hlunnindanytja, sjávarsóknar og landbúnaðar, sem þarna hefur tíðkast og áður stóð undir ríkidæmi þeirra Breiðfirðinga. Að vísu hefur þróunin nú um skeið verið þessum landshluta heldur óhliðholl, en með þessu fyrirtæki gæti henni verið snúið við.

Í sjötta lagi er hér um að ræða fyrirtæki af þeirri stærð, sem við getum sjálfir ráðið við, þótt uppbygging þess grundvallist á náinni samvinnu við erlendan viðskiptaaðila og langtímaábyrgð hans og afurðakaupum.

Í ræðu þeirri, sem ég flutti með frv. um undirbúningsfélagið í fyrra, fór ég nokkrum orðum um þýðingu þörungavinnslunnar fyrir þróun byggðar á þessu landssvæði, sem öðrum fremur hefur orðið út undan um efnahagslega og atvinnulega þróun hér á landi. Því er haldið fram af ýmsum hugsjónamönnum byggðaþróunar, að slík uppbygging eigi ekki að byggjast einvörðungu á fáum stórum byggðakjörnum, heldur eigi að gera fólki hvar sem er kleift að nýta þau náttúrugæði, sem landið hefur að bjóða á hverjum stað, án stórfelldra tilflutninga, samþjöppunar og þjóðfélagslegrar röskunar, sem af því getur leitt. Hið dreifða skipulag þangöflunar gæti orðið til þess að efla búsetu víðar en á Reykhólum, og mætti vel hugsa sér hluta af þeirri starfsemi rekna frá Breiðafjarðareyjum, Skarðsströnd og e. t. v. víðar eftir ástæðum. Opinberar framkvæmdir á sviði rafvæðingar, vegagerðar og hafnagerðar verða án efa til að styrkja samgöngur á þessu svæði og auðvelda tengsl raforkunets Vestfjarðakjálkans við almennt orkunet landsins, sem nú er ætlunin að tengja saman í heild smátt og smátt. Bygging hafnar og aðrar opinberar framkvæmdir verða óhjákvæmilegar til að ýta undir uppbyggingu Reykhóla, og eru þeir ekki illa fallnir til þess. Staðurinn er nokkuð miðsvæðis við austan- og norðvestanverðan Breiðafjörð á svæði, þar sem ekkert þéttbýli hefur enn myndast. Þar er jarðhiti nægur, og gefur hann e. t. v. tækifæri til annarrar starfsemi en þangþurrkunar. Þar er nýlega lokið við fyrsta áfanga veglegrar skólabyggingar, sem vissulega yrði betur nýtt í fjölmennari byggð en þar er nú.

Eins og fram kemur í aths. með frv., hefur stjórnin undirbúningsfélags þörungavinnslu látið gera áætlun um byggingu verksmiðju til framleiðslu á 6685 tonnum á ári af þurrkuðu þangmjöli. Stofnkostnaður er áætlaður um 211 millj. kr. og söluverðmæti nálægt 98 millj. kr. í upphafi. Rekstraráætlunin yfir 18 ára rekstrartímabil gefur til kynna nálægt 9.5% endurheimtu af stofnfé, áður en skattar og vextir fyrirtækisins eru reiknaðir. Í ljósi þeirrar reikningslegu arðsemi, sem tíðkast hjá atvinnuvegunum almennt, verður þetta að teljast allgott, þótt stjórn undirbúningsfélagsins telji arðsemina við lægri mörk og segist ætla að fá verðið hækkað til að bryggja hærri lágmarksendurheimtu, eins og fram kemur í aths. með frv.

Í þessu sambandi er mér sérstök ánægja að skýra frá því, að í gær tókust samningar milli stjórnar undirbúningsfélags þörungavinnslu og Alginate Industries Ltd. um hækkun á lágmarksverði þangmjöls úr 72 pundum á tonn upp í 76 pund á tonn, miðað við verðlag 1. jan. 1974. Samkv. þessu verða heildsölutekjur fyrirtækisins við full afköst rúmlega 103 millj. kr. og meðalendurheimta á upphaflegan stofnkostnað 12.1% í stað 9.5%. Endurgreiðslutími fjárfestingarinnar verður með þessu 6.3 ár samkv. áætlun félagsins. Ef þessi nýja niðurstaða er borin saman við reikningslega afkomu iðnaðarins 1971, sem fram kemur af skýrslum hagrannsóknadeildar Framkvæmdastofnunar, kemur í ljós, að hreinn hagnaður þörungavinnslunnar fyrir skatta og án vaxtagreiðslu yrði 21.4 millj. kr. á ári, en það er um 20.6% af söluverðmæti. Sambærileg tala fyrir iðnaðinn í heild fyrir árið 1971 var hins vegar 810 millj. kr. beinn hagnaður fyrir vexti og skatta af um 12897 millj. kr. sölu, þ. e. 6.2%.

Nú er því ekki að leyna, að iðnaðurinn og sérstaklega útflutningsiðnaðurinn á í nokkrum erfiðleikum um þessar mundir, m. a. vegna gengishækkana, sem orðið hafa nýlega. Þeim mun meiri ástæða er til að ætla, að hér sé um fjárhagslega traust fyrirtæki að ræða, sem hafi góða möguleika á að eflast með tímanum, ekki síst ef viðskiptakjör iðnaðarins í heild fari batnandi. Viðskiptalegur grundvöllur þörungavinnslunnar byggist á tilboði frá skoska fyrirtækinu Alginate Industries Ltd., þar sem fyrirtækið skuldbindur sig til kaupa á a. m. k. 5 þús. tonnum árlega í 10 ár við lágmarksverði, sem árið 1974 reiknast vera 76 pund á tonn, eins og ég sagði áðan, en hækkar með vísitölu heildsöluverðs á breskum efnaiðnaði. Hér er aðeins um lágmarksverðtryggingu að ræða, og raunverulegt verð byggist á samningum hverju sinni, þar sem tekið er tillit til gengis, framleiðslukostnaðar og fleiri atriða. Fyrirtækið gerir ráð fyrir að þurfa allt að 10 þús. tonn af þangmjöli árið 1977, og væri því möguleiki til stækkunar fljótlega, ef aðstæður leyfðu. Slík viðbót hlyti að verða mun hagkvæmari en byrjunarfjárfestingin.

Það mun nú liggja fyrir, að nýtanlegt þangmagn á Breiðafirði, sem skera mætti árlega, er a. m. k. þrefalt það, sem áætlun er gerð um. Auk þess eru auðug þaramið víða á grunnsævi Breiðafjarðar. Auðlindir þessar má án efa nýta í framtíðinni í margföldum mæli á við það, sem hér er gert ráð fyrir. Þörungar til manneldis, þörungasafi sem áburðarefni til notkunar í garðrækt og landbúnaði eru möguleikar, sem bíða framtíðarinnar. Nýtingarmörk jarðhitasvæðisins eru að vísu ókunn enn þá og koma varla í ljós nema með langvarandi vinnslu og stigvaxandi nýtingu þess. Áætlanir um frekari uppbyggingu starfsemi á þessum grundvelli verða því að byggjast á reynslu tímans og vaxandi trú manna á svæðinu og möguleikum þess.

Hjá mörgum vaknar eflaust spurningin um það, hvort framleiðsla á alginefnum, sem unnin eru úr þanginu, geti ekki farið fram á Íslandi. Athugun hefur þó leitt í ljós, að slíkt er enn sem komið er verulegum annmörkum háð. Annars vegar byggist framleiðslan á leyndarvernduðum aðferðum, og jafnframt þarf mikinn fjölda mismunandi hráefna til að framleiða þá fjölbreytni í afurðum, sem nauðsynleg er í samkeppnisfærri framleiðslu. Vegna hins gífurlega fjölda viðskiptavina, sem kaupa mjög sérhæfða vöru í litlu magni, er dreifingakerfið mjög flókið, og er þjónustan, sem fyrirtækið Alginate Industries veitir viðsk.vinum sínum, undirstaðan að árangursríkri sölustarfsemi. Þetta fyrirtæki hefur tugi sérfræðinga í sinni þjónustu, sem einvörðungu hafa það verkefni að leysa vandamál viðskiptavinanna í sambandi við val og notkun á réttum alginötum og þróa ný notkunarsvið fyrir efnin. Á slíku hefðum við Íslendingar litla möguleika einir. Ekki er þó alveg loku fyrir það skotið, að framleiðsla á hálfunnum alginefnum úr íslenskum hráefnum færi fram hér, að því tilskyldu, að endanleg úrvinnsla, blöndun og sölustarfsemi færi fram hjá hinu skoska fyrirtæki. Tilkoma sjóefnavinnslu á Reykjanesi gæti mjög styrkt þann möguleika, þar sem kalsíumklórið og sódi yrðu ein aðaluppistaðan í framleiðslu hráalingnata, en auk þess þarf mikið magn af vatni, sem senn er á þrotum við verksmiðju Alignate Industries Ltd. í Skotlandi.

Hvernig sem þróunin verður, er þó ljóst, að tækifæri þetta til að hefja nýtingu sæþörunga við Ísland er ákaflega mikilvægt, þar sem tilboð skoska fyrirtækisins gerir kleift að hefja starfrækslu í það stórum stíl, að réttlætanlegar eru allstórfelldar aðstöðubreytingar til að koma á nauðsynlegri rekstrarhagkvæmni í öflun hráefnis og útskipun afurða. Þannig eru þessi viðskipti og það fyrirtæki, sem á þeim byggist, stökkpallur til víðtækari verkefna á þessu sviði, ef bjartsýni og hugvitssemi fær að njóta sín. Til þess að tryggja þessari starfsemi grundvöll þarf að koma upp þeirri aðstöðu og opinberri þjónustu, sem sveitarfélög veita annars staðar. Vegna vanmáttar sveitarfélagsins á þessum stað verður ríkið þó að veita hér sérstaka aðstoð. Þannig verður nauðsynlegt að leggja veg frá Reykhólum og að fyrirhuguðu verksmiðjusvæði í Karlsey undir Reykhólum. Þá þarf að gera bryggju við Karlsey, leggja þriggja fasa raflínu, sem annast getur orkuþörf fyrirtækisins, og bora eftir heitu vatni og veita því til verksmiðjunnar. Lausleg áætlun bendir til þess, að þessar framkvæmdir kosti um 142 millj. kr.

Nú kann að vera álitamál, hvernig líta beri á hagkvæmni svona framkvæmda af hálfu hins opinbera. Reiknað er með því, að fyrirtækið greiði jarðvarmaveitunni að fullu aftur samkv. reikningi fyrir varmanotkun og not af raflinu samkv. smásölugjaldskrá Rafmagnsveitna ríkisins. Not af höfn og vegi að henni yrðu hins vegar að teljast svo almenn, að ríkisstj. telur verjanlegt, að í slíkar framkvæmdir verði ráðist á þeim grundvelli, að hér verði um venjulega sveitarfélagshöfn að ræða, er studd verði samkv. reglum nýju hafnal. Gert er ráð fyrir, að fyrirtækið standi undir kostnaði væntanlegs hafnarsjóðs með greiðslum fyrir afnot af höfn í formi venjulegra hafnargjalda. Þau gjöld mundu greiða vexti og afborganir hafnarsjóðs, svo og venjulegan viðhaldskostnað hafnarinnar. Það skal tekið fram, að ríkisstj. hefur komið sér saman um, að stuðningur við þetta mál komi ekki af hinum almennu fjárveitingum til framkvæmda á vegum ríkisins, heldur er í frv. leitað heimildar til sérstakrar lántöku til að standa straum bæði af kostnaði við þessar opinberu framkvæmdir svo og framlagi ríkissjóðs í hlutafélagið sjálft, ef reiknað er með, að það verði um 60 millj. kr. Því er leitað lánsheimildar að upphæð 200 millj. kr. fyrir árið 1974.

Eins og áður hefur komið fram, eru þau tímamörk, sem skoska fyrirtækið setur um byrjun viðskipta, mjög þröng, þar sem framleiðslan verður að hefjast vorið 1975. Að vísu hefur fengist frestun á málinu um eitt ár frá því, sem upphaflega var gert ráð fyrir, en frekari dráttur gæti þó eyðilagt þær viðskiptalegu forsendur, sem nú hafa skapast til framgangs þessa máls. Hefur ríkisstj. því ákveðið að hraða meðferð málsins eftir föngum, m. a. með því frv., sem hér er lagt fram um stofnun rekstrarfyrirtækisins og öflun heimildar til opinberra framkvæmda og lántöku í því sambandi. Strax upp úr áramótum eða þegar fyrirtækið er komið á laggirnar verður að hefjast handa um framkvæmdir, ef standa skal við þau tímamörk, sem nefnd eru hér að ofan. Að öðru leyti vil ég vísa til frv. sjálfs og þeirrar ítarlegu grg., sem því fylgir, og einnig til þeirra skýrslu, sem hv. þm. fengu hér í dag. En ég geri mér vonir um það, að með tilliti til þeirra aðstæðna allra, sem ég hef rakið megi búast við jákvæðum undirtektum og skjótri afgreiðslu þingsins.

Ég legg svo til, herra forseti, að frv. verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. iðnn.