15.11.1973
Efri deild: 21. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 657 í B-deild Alþingistíðinda. (544)

71. mál, lögheimili

Félmrh. (Björn Jónsson) :

Herra forseti. Þetta frv. er í tengslum við og í raun og veru í beinu framhaldi af því frv., sem nú er orðið að l. og hér var til meðferðar í hv. þd., um breyt. á l. um tilkynningar aðsetursskipta. Aðalefni þess varðar fyrst og fremst Vestmanneyinga og afleiðingar þeirra náttúruhamfara, sem dundu yfir á s. l. vetri. Meginefni frv. felst í fyrri mgr. 2. gr., þar sem segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Þrátt fyrir ákvæði laga þessara er þeim, er lögheimili áttu í Vestmannaeyjum að kvöldi dags 22. jan. 1973, leyft að telja sig til heimilis í Vestmannaeyjum fram til 1. júní 1974, þótt þeir dveljist utan Vestmannaeyja nema þeir tilkynni dvalarstað sinn sem lögheimili með sérstakri tilkynningu:

Eins og menn heyra, er þetta fullkomlega í samræmi við áður umgetna löggjöf, sem ég nefndi. En í þessu felast fyrst og fremst tvö atriði.

Hið fyrra varðar álagningu útsvara á árinu 1974, og hefur þótt rétt og nauðsynlegt fyrir Vestmanneyjakaupstað að njóta gjalda þess fólks, sem í land hefur flúið, þótt það teljist þar til bráðabirgða, og mun ekki af veita til þess uppbyggingarstarfs, sem í Eyjum þarf að framkvæma. Það kann að virðast, að þetta gerist að sumu leyti á kostnað annarra sveitarfélaga, þar sem Vestmanneyingar hafa fyrst og fremst sest að í verulegu mæli, en á það er þá líka að líta, að því hafa fylgt ýmsir kostir fyrir viðkomandi byggðarlög, m.a. bygging viðlagasjóðshúsa, sem væntanlega leysa þeirra húsnæðisþarfir og verða jafnvel strax gjaldstofn að einhverju leyti til viðkomandi sveitarfélags.

Í öðru lagi er hér um að ræða afleiðingu þess ákvæðis, sem ég las upp, að Vestmanneyingar, þótt þeir dvelji til bráðabirgða í landi, ef þeir hafa ekki tilkynnt aðsetursskipti, munu þeir hafa kosningarrétt í Vestmannaeyjum í næstu sveitarstjórnarkosningum, sem fram eiga að fara í maí, á næsta ári. Verður að telja eðlilegt, að það sé ekki hindrað af löggjafans hálfu, að þeir njóti þessa réttar, þó að þeir dvelji í landi til bráðabirgða. Meginhluti þessa fólks mun að öllum líkindum flytjast aftur til Eyja, og ekkert virðist vera eðlilegra en að það geti með kosningarrétti sínum haft áhrif á það, hvernig bæjarfélaginu verður stjórnað næstu 4 árin.

Enn er svo þess að geta í sambandi við þetta, eins og minnst er á í grg., að verði þetta frv. að l., verður minna um röskun á högum Jöfnunarsjóðs. Það verður að vísu svo, að það má reikna með allmiklu framlagi úr Jöfnunarsjóði vegna fólksfækkunar í Vestmannaeyjum, þ. e. a. s. vegna þeirra, sem hafa tilkynnt aðseturskiptin með sérstakri tilkynningu, eins og ákveðið var í 1. um tilkynningar aðsetursskipta. En ef lögheimili væru eingöngu í þessum tilfellum látin ráðast af dvalarstað, mundi það leiða til þess, að í þeim sveitarfélögum, sem fyrst og fremst hafa hýst Vestmanneyinga, mundi verða um fólksfækkun að ræða, þegar þeir flyttu til baka. Allt þetta mundi valda óeðlilegri og óæskilegri röskun á greiðslum úr Jöfnunarsjóðnum, a. m. k. næstu tvö árin, þannig að allt virðist bera að sama brunni, að þessi ákvæði, sem ég hef nefnt, og það, sem þau þýða í sambandi við hag Vestmanneyinga og stöðu þeirra, sé fullkomlega eðlilegt og sjálfsagt, og vona ég, að ekki verði um það neinar deilur.

Þetta eru sem sagt aðalatriði frv. En í leiðinni hefur þótt rétt að gera ofurlitla leiðréttingu á 3. gr. l., og felst hún í 1. gr. frv. Það efni, sem þar um ræðir, er, að menn, sem hafa húsnæði til sumardvalar eða annarrar tímabundinnar dvalar í öðru sveitarfélagi, en dveljast þar ekki að jafnaði, geti aldrei talist eiga heimili í fleiri sveitarfélögum en einu samkv. ákvæðum fyrri mgr. Þetta er raunverulega árétting á anda þessara l. um það, að lögheimili skuli vera þar, sem menn búa að jafnaði, en geti ekki af annarlegum ástæðum fært heimilisföng sín í sambandi við eyðibýli, sumarbústaði eða annað slíkt og þá gjarnan til þess að geta komist undan eðlilegum gjöldum eða öðru slíku. Það hefur þótt rétt, fyrst þessi lög voru opnuð, að þessi leiðrétting yrði gerð, og tel ég víst, að hún muni ekki valda miklum ágreiningi hér á hv. Alþ.

Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að fara nánar út í þessi atriði. Ég held, að hér sé um það auðskilið mál að ræða, að það sé í raun og veru fullskýrt í grg. og þeim fáu orðum, sem ég hef hér sagt. En legg til, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. félmn.