15.11.1973
Efri deild: 21. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 667 í B-deild Alþingistíðinda. (557)

46. mál, jarðalög

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Hér er á ferð mikill lagabálkur, og án efa er hann um margt mjög til bóta frá eldri l. um þetta efni. Ég vil strax taka það fram, að ég tel að hér um hafi fjallað þeir menn, sem ég treysti mætavel til þeirra verka gagnvart íslenskum landbúnaði að fjalla um þessi mál, sem eru að mörgu leyti viðkvæm fyrir bændastéttina. Sjálfur er ég ekki nógu vel að mér í ýmsum þeim greinum, sem þarna er á minnst, til þess að ég geti við þessa umr. farið náið út í þau atriði. En ég get verið stuttorður vegna þess líka, að ég fæ tækifæri til að fjalla um málið í hv. landbn.

Það hefur blandast mjög inn í umr. um þessi jarðalög nú þau jarðakaup, sem hafa verið mjög á dagskrá að undanförnu, og það hlýtur auðvitað að vera svo, að þeir atburðir, sem mest hafa verið ræddir undanfarið, blandist nokkuð hér inn í. Ég vil taka það fram út af því máli, að það er sannarlega nauðsynlegt, að bændur fái réttlátt verð fyrir sínar jarðir. En því miður hefur það verið svo, að það hefur verið miklu algengara, að þeir hafi ekki fengið sannvirði fyrir jarðir sínar. Og allt of mörg dæmi hafa verið um það, að bændur hafi hreinlega orðið að skilja jarðir sínar eftir í eyði, án allra möguleika til þess að hafa af þeim minnsta afrakstur, hvað þá sanngjarnt verð fyrir oft áratuga strit. Það er alveg rétt, að þessir aðilar vilja oft gleymast í öllu talinu um hina, sem vegna alls konar hlunninda eða t. d. nálægðar við þéttbýli hafa grætt ómældar fúlgur án allrar verðskuldunar. Það er líka rétt að taka það fram, að slík auðsöfnun er óveruleg hjá bændastéttinni eða hefur verið svo. Þar hafa aðrir aðilar verið stórtækari. Fasteignabraskarar höfuðborgarsvæðisins eiga þar skráð og óskráð met í illa fengnum auði. Ég vil hins vegar taka fram, að það hlýtur að vera sjálfsagt einnig hér að stemma stigu við óeðlilegri eignamyndun, og því get ég stutt að sjálfsögðu till. hv. 4. þm. Norðurl. v. um hömlur við því, að jarðeignir gefi farið upp úr öllu valdi, enda tel ég, að sá tillöguflutningur hans sé mjög í samræmi við þann tillöguflutning hans á Alþ. í fyrra, sem náði því miður ekki fram að ganga, þar sem hann lagði til lagasetningu, sem legði hömlur á óeðlilega hækkun fasteigna yfirleitt.

Ég vildi aðeins varpa nokkrum atriðum hér fram í sambandi við byggðaráðin, sem hér er lagt til, að séu stofnuð. Ég get út af fyrir sig fagnað því, að þau séu stofnuð. Valddreifing út á landsbyggðina hlýtur að vera okkur öllum, sem þar búum, fagnaðarefni, í hverju svo sem hún er fólgin. En þegar um mikið valdssvið er að ræða, eins og mér skilst að þessum byggðaráðum sé ætlað, þá hlýtur að vera mikil spurning um það, bæði hvað margir skuli sitja í þessum byggðaráðum, hverjir skuli tilnefna þá og hve langur starfstími þeirra skuli vera. Það kæmi t. d. mjög til álita, þó að það kynni að þykja þyngri í vöfum, að hafa þarna ekki 3 menn, heldur 5 menn. Þá kæmust að fleiri sjónarmið. Eins er ég mjög efins um, að rétt sé, að sýslunefndir tilnefni þarna menn, þó að ég sé ekki reiðubúinn á þessari stund til að nefna þar til aðra aðila. Ég tel t. d. fullkomlega jafneðlilegt, að búnaðarsamböndin tilnefndu báða mennina, alveg eins og sýslunefndirnar, vegna þess að sýslunefndirnar eru í mörgum tilfellum hrörnandi fyrirbæri, meira að segja ýmsir sýslunefndarmenn telja sjálfir, að þær séu orðnar til lítils gagns og hafi lítið hlutverk í þjóðfélaginu. Þarna koma einnig inn í möguleikar á því, að Landshlutasamtök sveitarfélaga ættu þarna í staðinn að nefna til fulltrúa. Það kæmi einnig vel til álita. En vegna þess að þetta er miðað við sýslur, er kannske eðlilegt, meðan sýslunefndir eru, að þær tilnefni fulltrúa. Engu að síður verð ég að segja það, að þarna hlýtur að verða breyting á, og því vil ég gjalda nokkurn varhug við því, að þessar á margan hátt hálfdauðu nefndir séu að tilnefna menn í byggðaráð.

Ég vil líka víkja að því varðandi 7. gr. í sambandi við byggðaráðin, þar sem er verið að tala um þau atriði, þar sem ekki þarf að afla samþykkis byggðaráðsins, að í 4. tölulið er um að ræða mjög stóran og veigamikinn þátt í hlunnindum ýmissa jarða, þegar veiðifélög ráðstafa veiðiréttindum. Ég tel það vel athugandi einmitt, að byggðaráðin hafi einhver afskipti af þessu einnig. Hér er um mjög verðaukandi hlunnindi að ræða, sem alls ekki er nein sérstök ástæða til, að mér finnst, að kippa undan valdsviði byggðaráðs, eins og reiknað er með að það verði víðtækt að öðru leyti.

Ég hef ekki farið nákvæmlega yfir þetta frv., en ég rak mig fljótt á það, þegar ég fór að lesa það, að þá kom enn upp í mér gamall mótþrói, sem á skylt við VI. kaflann um hinar svokölluðu óðalsjarðir. Nú er mér sagt það af fróðum mönnum, að l. um þessar óðalsjarðir hafi verið sett m. a. til þess að hindra brask með þessar jarðir og annað því um líkt, og hefur þá sjálfsagt verið um góðan og göfugan tilgang að ræða, Hitt verð ég að segja, að út af fyrir sig hef ég mestan vilja til að fella þennan kafla um óðalsjarðirnar algerlega niður. Mér finnst í þessu gæta einhverrar fordildar, einhverra forréttinda. Ég hef yfirleitt aldrei skilið það nógu vel. Vænti ég þess þá, að þeir bændur, sem e. t. v. eru jafnvel einnig óðalsbændur, sem eiga með mér sæti í hv. landbn., geti þá útskýrt það fyrir mér, hvaða aðstaða veldur því, að einhver ástæða er til þess að vera skipta bændum í óðalsbændur og almenna bændur. Það minnir mig nefnilega alltaf á óðalsbóndann, sem flutti ræðu austur á landi einu sinni, og sagði í frægri ræðu austur þar, að óðalsbændurnir væru afkomendur hinna fornu norrænu víkinga, en hinir væru afkomendur írsku þrælanna. Ég skal játa, að ég dreg auðvitað mismuninn á ættgöfgi í sambandi við þetta mjög í efa. En það leyndi sér ekki meining þessa ágæta manns, þegar hann var að tala um þann gífurlega mismun sem þarna væri á ættgöfgi. En nóg um það. Ég fæ tækifæri til að fjalla um þetta mál allt í n., og þar er m. a. sá maður, sem vann mest að samningu þessa frv., og ég efast ekki um, að ég fái þar fullnægjandi skýringar bæði á þessu atriði og fleirum, sem vissulega þarf að fá skýringu á.