15.11.1973
Neðri deild: 24. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 674 í B-deild Alþingistíðinda. (561)
Umræður utan dagskrár
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Svo sem kunnugt er af fréttum fjölmiðla, sækja nemendur Fiskvinnsluskólans ekki kennslu þessa dagana. Fundur nemenda Fiskvinnsluskólans hefur samþykkt, að þeir skuli ganga frá námi um óákveðinn tíma til að fylgja eftir kröfum sínum um, að námskeið í fiskiðnaði á vegum Fiskmats ríkisins verði lögð niður, og var till. einróma samþ. og henni framfylgt.
Þessi mál voru til umr, í Sþ. í fyrradag í tilefni af fsp. frá einum hv. þm. Reykv., Pétri Sigurðssyni, og beindi hann fsp. sinni til hæstv. sjútvrh. Þar eð ég tel að athuguðu máli, að upplýsingar, sem fram komu í svörum hæstv. sjútvrh., séu ekki réttar eða a. m. k. mjög villandi, tel ég rétt að beina fsp. um þetta atriði til æðsta manns Fiskvinnsluskólans, hæstv. menntmrh.
Fiskvinnsluskólanum var komið á fót síðasta árið, sem ég veitti menntmrn. forstöðu. Lagasetningin átti sér alllangan aðdraganda, sem ég að sjálfsögðu var nákunnugur sem sá aðili, sem flutti frv. á sínum tíma, en kennsla hófst í skólanum haustið 1971, þ. e. eftir kosningarnar, og samkv. lögum, sem þingið hafði samþ. um vorið, á námið að vera þriggja ára nám.
Ég get upplýst, að það var tilætlunin, þegar 1. voru sett, skólastjóri við skólann skipaður, sem var í minni tíð, og störf skólans undirbúin, námskeið í fiskiðnaði á vegum Fiskmats ríkisins yrðu lögð niður. Þess vegna þykir mér mjög ósennilegt, að þessum fisknámskeiðum á vegum Fiskmats ríkisins hafi verið haldið áfram með samþykki og vilja hæstv. núv. menntamrh., þá er eins og skilja mátti af orðum hæstv. sjútvrh. Ef þessum námskeiðum er haldið áfram með samþykki og vilja hæstv. núv. menntmrh., þá er um breytingu að ræða frá þeirri stefnu, sem áður var mörkuð og hafði verið mótuð, þegar 1. um Fiskvinnsluskólann voru sett. Þess vegna er fsp. mín til hæstv. menntmrh. þess efnis, hvort við hann hafi verið haft samráð um áframhald námskeiðanna á vegum Fiskmats ríkisins og hvort hann hafi samþykkt það. Sé svo, vil ég vekja athygli á því, að um stefnubreytingu er að ræða frá því, sem talið var rétt vorið 1971, þegar l. um Fiskvinnsluskólann voru sett.
Ástæðan, sem nemendurnir í samþykkt sinni greina fyrir því, að þeir hafa gert hana, er sú, að Fiskmat ríkisins hafi ekki lagalega heimild til að halda slík námskeið sem nú virðast vera haldin. Þeir telja þar gengið á hlut nemenda að halda þriggja vikna námskeið á vegum Fiskmats ríkisins, sem virðast eiga að veita sömu möguleika og þriggja ára strangt nám við Fiskvinnsluskólann. Þeir benda á, að nemendur Fiskvinnsluskólans séu frá öllum landshornum og þurfi ýmist að sækja nám utan af landi allan veturinn eða hafa húsnæði á leigu á Reykjavíkursvæðinu og því sé augljóst, að námið sé mjög kostnaðarsamt. Þeir telja, að áframhaldandi námskeið á vegum Fiskmats ríkisins hafi þá afleiðingu, að skólinn verði ætið fámennur, það sé ekki eðlilegt, að þriggja ára nám og þriggja vikna námskeið veiti sömu möguleika á réttindum og geti því auðvitað ekki þrifist hlið við hlið.
Þær óskir, sem nemendur Fiskvinnsluskólans hafa sett fram í þessu sambandi og þarf að ræða og taka afstöðu til, áður en skólinn getur aftur hafið störf sín með eðlilegum hætti, er að fá því svarað, hvort áframhald eigi að verða á námskeiðum Fiskmats ríkisins. Ef hægt sé að sýna fram á þörf á verkstjórum og matsmönnum, sé meiri en svo, að nemendur skólans geti sinnt þeim, og námskeið séu því óhjákvæmileg, þá eigi að halda þau á vegum Fiskvinnsluskólans, virðist gefa auga leið, að þetta sjónarmið sé rétt og skynsamlegt. Ef þessi námskeið eiga að veita réttindi, þá eigi þau að vera tímabundin, og virðist þar líka vera um réttmætt og skynsamlegt sjónarmið að ræða.
Ég tel, að nauðsynlegt sé að binda endi á þá leiðu deilu, sem hér er upp komin, og vil því leyfa mér að beina þeirri fsp. til hæstv. menntmrh., hver afskipti hans hafi verið af þessu námskeiðshaldi og hverjar fyrirætlanir ráðh. hafi í því sambandi að setja þessa deilu niður, eins og allir þm. hljóta að vera sammála um, að nauðsynlegt sé.