15.11.1973
Neðri deild: 24. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 683 í B-deild Alþingistíðinda. (566)

Umræður utan dagskrár

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson) :

Herra forseti. Það var nú aðeins vegna þess, að hv. þm. talaði hér um merg málsins. Mergurinn var sá, að það hafði orðið samkomulag um alveg nýja stefnu, og það var svo sem auðskilið, að sú stefna hafði átt að vera tekin fyrir minn dag á milli sjútvrn. og menntmrn. En þessi voðalega stefnubreyting og allur þessi mergur málsins er sá, að það hefur verið haldið slíkt námskeið, annað en þetta, síðan skólinn kom.