19.11.1973
Efri deild: 22. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 708 í B-deild Alþingistíðinda. (582)

89. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Hér er um lítið frv. að ræða, sem samið er af Verðlagsráði sjávarútvegsins og flutt hér samkv. beiðni þess. Með frv. er gert ráð fyrir minni háttar skipulagsbreytingu varðandi störf verðlagsráðsins, þar sem gert er ráð fyrir því að gera viss ákvæði gildandi l. nokkru skýrari, eins og nú er komið, heldur en þau eru. Sem dæmi um það er í gildandi l. ákvæði um sérstaka verðlagningu á síld til bræðslu, en nú er um að ræða ýmsan annan fisk, sem gengur til bræðslu, heldur en aðeins síld, og þykir því rétt að ákveða, að verðlagning á fiski, sem gengur í bræðslu eða til mjölframleiðslu og lýsisframleiðslu, sé í einni og sömu deild. Eins er það, að nú orðið þykir rétt að gera breytingar á því fyrirkomulagi, sem í gildi var varðandi þá tvískiptingu, sem lengi hefur verið hjá okkur í verðlagningu á síld eftir því, hvort hún væri söltuð fyrir sunnan eða austan land. Hér er því um minni háttar skipulagsbreytingu að ræða frá því, sem verið hefur, og miðar í rauninni allt að því að einfalda verðlagningarreglurnar, og eins og verðlagsráðið segir, þá eru þessar tillögur gerðar vegna þeirrar reynslu, sem fengist hefur við framkvæmd laganna s. l. 12 ár.

Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta, en óska eftir því, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til hv. sjútvn. til fyrirgreiðslu.