20.11.1973
Sameinað þing: 21. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 743 í B-deild Alþingistíðinda. (601)
83. mál, trúarsöfnuður Ásatrúarmanna
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir svar hans. Hér er að sjálfsögðu enginn tími til að gera það að umtalsefni. Ég verð hins vegar að taka fram, að ég er honum allsendis ósammála um þær lögskýringar, sem hann hefur hér gefið. Um það í fyrsta lagi að löggilda forstöðumenn safnaða, þá sýndi það, sem hann las þar upp, glöggt, að þar er um að ræða að sjálfsögðu að löggilda söfnuð. Það leiðir af sjálfu sér, að það er aðeins formsatriði að fjalla um formanninn og forstöðumanninn einan saman. Mér skilst, eftir því sem hann las hér upp, að Ásatrúarmönnum sé veittur réttur eftir sinni gömlu, heiðnu trú að framkvæma hér þær athafnir, sem almennastar eru, þ. e. a. s. bæði skírn og greftrun og hjónaband. Og mér er spurn, hvort gert sé ráð fyrir, að þeir fái önnur þau réttindi, sem áður voru venja hjá þessum söfnuði, — ég býst að vísu ekki við, að hann muni framkvæma mannblót, það er nú hindrað af öðrum ástæðum, — en þær athafnir, sem hafa lögverkanir, svo sem hjónabandið, — hvort það sé heimilt þessum heiðna söfnuði, ef söfnuð skyldi kalla, að framkvæma þessar athafnir.
Ég er aðallega ósammála hæstv. forsrh. um skilning á stjórnarskrárákvæðinu, ég er honum sammála um, að þar er viðurkennt trúfrelsi, að því leyti, að um skuli vera að ræða trú á guð, og undantekningarákvæðið, sem hér er verið um að tala, er einmitt að menn geti þjónað guði sínum með þeim hætti. Ekki er um neinn guð að ræða hjá Ásatrúarmönnum. Þar er skurðgoðadýrkun, og þar er þjónað ýmiss konar persónum, sem hafa nú hæpið orð á sér. Meira að segja þeirra aðalhöfðingi þykir ekki vera alveg syndlaus eftir fræðum og kenningum þeirra Ásatrúarmanna úr fornum sögnum.
Ég leyfi mér því að mótmæla því algerlega, að þeir, sem hafa samið stjórnskrá okkar, hafi látið sér til hugar koma, að með þessu væri átt við að innleiða hér aftur heiðindóm, heldur er við það átt, sem þá var vitað, þegar stjórnarskráin var samin, þá eru komnar ýmsar tegundir kristindóms, og jafnvel þótt það sé ekki kristindómur í venjulegri merkingu, þá viðurkenni ég, að það sé rétt, að þetta ákvæði geti náð til þeirra félaga eða þeirra safnaða, sem stofnaðir eru til að þjóna guði, þ. e. a. s. hafa eingyðistrú, þó að það kunni að vera í mismunandi formi. Þetta er algerlega í ósamræmi við slíkt. Það er verið að innleiða á ný heiðna lífsskoðun og með þeim hætti, að ég tel, að það geti ekki rúmast undir ákvæði stjórnarskrárinnar og að því leyti hafi verið óheimilt að veita þá viðurkenningu, sem hæstv. kirkjumrh. hefur veitt.