20.11.1973
Sameinað þing: 21. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 747 í B-deild Alþingistíðinda. (608)
90. mál, endurskoðun laga um almannatryggingar
Fyrirspyrjandi (Ragnhildur Helgadóttir) :
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. heilbr.- og trmrh. um endurskoðun l. um almannatryggingar. Fsp. er prentuð á þskj. 98, 90. mál. og hljóðar svo: „Hvað líður endurskoðun l. um almannatryggingar?“ Og í öðru lagi: „Verða ný ákvæði um tekjutryggingar aldraðra og öryrkja í samræmi við frv., sem sjálfstæðismenn fluttu á síðasta þingi og vísað var til ríkisstj. hinn 18. apríl 1973, tekin upp í hið endurskoðaða frv.“
Í frv. því, sem vitnað er til í síðara hluta fsp. og flutt var of okkur Lárusi Jónssyni, Matthíasi Á Mathiesen og Sverri Hermannssyni í fyrra, voru gerðar till. um nýtt fyrirkomulag á greiðslu tekjutryggingar til aldraðra og öryrkja. Okkar till. fólst í því, að sú skipan skyldi tekin upp, að elli- og örorkulífeyrisþegar skyldu fá greitt úr almannatryggingum það, sem á vantaði, ef samanlögð upphæð lágmarkslífeyris og þriðjungs annarra tekna lífeyrisþegans væri innan við tekjutryggingarupphæð. Til að skýra nánar, við hvaða upphæðir er átt, vil ég minna á, að núna er lágmarkslífeyrir einhleypings 9133 kr., en með tekjutryggingu 14120 kr. á mánuði.
Ég bið hæstv. forseta velvirðingar á því, að ég nota orðið einhleypingur. Það stendur í l., að um sé að ræða lífeyri einstaklings, en ég get einhvern veginn ekki fengið af mér að nota orðið einstaklingur aðeins um þá, sem eru ógiftir.
Viðbótargreiðslan vegna tekjutryggingar fyrir tekjulausan einhleyping er nú tæpar 5 þús. kr. eða 4997 kr. Ef um hjón er að ræða, er lágmarkslífeyririnn 90% af lífeyri tveggja einhleypinga eða 16439 kr. og með tekjutryggingu 25416 kr. Viðbótargreiðslan vegna tekjutryggingar fyrir tekjulaus hjón er því 8977 kr.
Ef einhleypingur hefur 4997 kr. í tekjur eða minna eða hjón 8977 kr. eða minna, verka núgildandi ákvæði tryggingal. eins og 100% skattlagning þessara lágu tekna. Það liggja augljós rök til þess, að hér er brýn þörf á breytingu. Kröfur um leiðréttingu á þessari skipun mála hafa orðið æ háværari, sérstaklega í þeim hópum, sem tryggt hafa sér lífeyrisréttindi úr lífeyrissjóðum stéttarfélaga samkv. kjarasamningum. Félögum þessara sjóða finnst að vonum, að samkv. núgildandi reglum sé hið opinbera að hafa af þeim fé ranglega. Í samræmi við þær skoðanir gerði Alþýðusambandsþing í fyrra ályktanir um breytingar, og nú í haust koma fram í almennum kröfum Alþýðusambandsins m. a. krafa um það, að reglur um tekjutryggingu aldraðra skertu ekki að fullu hlut lífeyrisþega.
Þegar lítið er til þess, að þessar kröfur hafa verið settar fram og knúið er á af ýmsum hópum um breytingar á þessu ákvæði, og hins, að frv. um þetta efni var vísað til ríkisstj. með einróma samþykkt Alþ. í apríl í vor, með þeirri grg. n., sem um málið fjallaði, að málið fengi vonandi jákvæðar undirtektir í endurskoðunarn. almannatryggingalaga hef ég leyft mér að bera fram þessa fsp. og vænti svara hæstv. ráðherra.