20.11.1973
Sameinað þing: 21. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 758 í B-deild Alþingistíðinda. (621)

369. mál, breytingar á skattalögum

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Ég bið velvirðingar á því, að ég kveð mér hér hljóðs. Það er ekki beinlínis í sambandi við efni þessa máls, sem hér er rætt, heldur tvenn ummæli, sem ég heyrði, önnur í ræðu fyrirspyrjanda og hin í ræðu ráðherra. Fyrirspyrjandi spyr, hvenær ríkisstj. ætli að gefa tóninn. Ég vil leggja áherslu á þá skoðun, bæði mína og ég vona sem flestra annarra þm., að það verði ekki ríkisstj., sem gefi tóninn, heldur verði það Alþingi, sem a. m. k. ræður tóninum. Í svari hæstv. fjmrh. féllu þessi ummæli: „Það er ekki mín ætlan að fara að gefa fleiri undanþágur frá sköttum en orðið er.“ Ég vil leggja áherslu á það, sem ég sagði áðan, að það verði Alþingi, sem ræður þessu. Hæstv. fjmrh. tekur ekki ákvörðun um það til eða frá, hvort undanþágur eru veittar frá skattlagningu. Það er gert með lögum frá Alþingi.