24.10.1973
Neðri deild: 4. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í B-deild Alþingistíðinda. (65)

17. mál, heykögglaverksmiðjur ríkisins

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Það eru nokkur orð út af því, sem hv. 1. þm. Sunnl. sagði. Mér láðist að geta þess í ræðu minni áðan, að það er búið að kaupa land fyrir verksmiðjuna í Austur-Skaftafellssýslu. Það var keypt jörðin Flatey á Mýrum í sumar, og það er búið að tryggja það land einnig. En áður var, eins og hann sagði, búið að kaupa land í Hólminum í Skagafirði og Saltvík í Suður-Þingeyjarsýslu. Þetta land, sem var keypt á Mýrunum í Austur-Skaftafellssýslu, er geysilega mikið landflæmi og mun endast þessari verksmiðju um langa framtíð.

Ég skal segja það út af því, sem hv. þm. talaði um þátttöku stjórnarmanna heima fyrir, að ég er honum sammála um, að nauðsyn ber til að tengja þetta mjög við héruðin, og er ég reiðubúinn til þess að athuga það betur en þegar hefur verið gert, hvernig það skuli gert, og getur þá vel komið til að halda stjórnum í þessum verksmiðjum. Aðalatriðið er að fá samstarf á milli þeirra, til þess að verðið sé eitt og það sama og reksturinn gerður að því leyti sem hægt er, sem hagkvæmastur í sambandi við bókhald og aðra slíka hluti.

Ég vil líka segja það, að unnið hefur verið að því að athuga möguleika á stækkun á verksmiðjunni í Gunnarsholti og liggur fyrir nokkurt efni um áætlaðan kostnað og fleira, sem þarf til þess að stækka þá verksmiðju, en hún hefur, eins og kunnugt er, mikla möguleika, því að landið, sem er tengt Gunnarsholti nú orðið, er geysilega mikið flæmi, og er auðvitað sjálfsagt að hagnýta það eins og kostur er.

Að öðru leyti er hugsað um að dreifa þessum verksmiðjum út um landsbyggðina, þannig að flutningskostnaðurinn verði sem minnstur, því að það er hann, sem raunverulega skiptir máli í þessu sambandi, og staðsetning hinna verksmiðjanna er valin með tilliti til þess.

Ég tek undir það með hv. 1. þm. Sunnl., að það ber nauðsyn til að koma rekstri verksmiðjanna á þann veg, að hann sé hagkvæmur, og ég vonast til þess, að á þessu ári takist það. Að öðru leyti ætla ég ekki að fara út í umr. um þetta mál, en tel sjálfsagt, að n, leiti umsagnar og álits þeirra aðila, sem best þekkja, og tel, að málið sé svo snemma á ferðinni nú, að það eigi að vera hægt að vinna það vel hér á hv. Alþ., og treysti hv. landbn. til að gera það.