21.11.1973
Neðri deild: 26. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (675)

78. mál, Seðlabanki Íslands

Flm. (Bjarni Guðnason) :

Herra forseti. Ég skal vera stuttorður, en því er ekki að leyna, að margt athyglisvert hefur komið fram í þessum umr., sem hér hafa farið fram, og stundum hafa þessar umr. jafnvel fjarlægst kjarna málsins. Hann er sá, hvort það sé vilji þm., að bankakerfið leiki lausum hala í fjárfestingum, eða það sé höfð einhver samræmd heildarstjórn á fjárfestingu bankanna. Þetta er grundvallaratriðið. En mér hefur blöskrað það, að flokkar, sem tala um áætlunargerð, forgangsröðun verkefna með miklum fjálgleik skuli, standa svo uppi gersamlega ábyrgðarlausir, þegar Seðlabanki Íslands er að fjárfesta hér upp á mörg hundruð millj. kr. Þetta er algert ábyrgðarleysi. Og þeir leyfa sér að koma svo fram hér og láta eins og ekkert sé að. Slíkur málflutningur og slíkt ábyrgðarleysi hjá þeim flokkum, sem þykjast vilja hafa forgangsröðun verkefna, er vítavert.

Hv. 7. þm. Reykv. benti réttilega á, að það væru tvær lögskýringar um það, hver væru raunverulega völd bankamrh. yfir ríkisbönkunum. Þar sem þessi frv. koma nú til fjh.- og viðskn., þar sem hv. þm. situr, þá vil ég beina því mjög sterklega til hans, að hann geri gangskör að því í n. að fá úr því skorið, hvor lögskýringin muni vera réttari, því að það leiðir af sjálfu sér, að ef reynist svo sem ég hef haldið fram og ýmsir aðrir, að bankamrh. hafi í raun og veru völd til þess að ráða slíkum stórframkvæmdum á vegum bankanna, þá er óþarfi að breyta l. bankanna, þannig að ég hygg, að það hljóti að verða fyrsta verkefni þessarar þn. að kanna, hver eru raunverulega völd bankamrh.

Hv. 1. þm. Sunnl. virtist vera andvígur því, að bankamrh. hefði víðtæk völd yfir bönkunum, og lét þess getið, að bankaráð mundu sennilega nægja. En sannleikurinn er sá, að það vantar heildarstjórn yfir bankana, og bankaráðin eru fyrst og fremst málsvari einstakra banka, enda væri ágætt fyrir hv. þm. á góðviðrisdegi að ganga niður Laugaveginn og síðan Bankastrætið og þá kæmi í ljós, að það eru víst töluvert á annan tug bankaútibúa á götuhornum hér niður eftir Laugavegi og Bankastræti. Og þá er spurningin: Er þetta þjóðhagslega æskilegt? Það, sem veldur þessu, er fyrst og fremst samkeppni bankanna, og tilgangurinn með heildarstjórn er að koma í veg fyrir óeðlilega samkeppni bankanna. En það gera bankaráðin ekki. Ég vil að sjálfsögðu taka það fram, að það er mikil lyftistöng fyrir atvinnulífið úti á landi, í fiskiþorpunum og annars staðar, að fá bankaútibú. Fyrir því hef ég ekkert nema fyllsta skilning og er meðmæltur. En ég er að andmæla því, að verið sé að dreifa skipulagslítið bankaútibúum hingað og þangað, án þess að nokkur heildarstjórn sé á hlutunum. Þetta er grundvallaratriði málsins.

Að lokum vænti ég þess, að þingheimur muni sjá til þess, að þessi frv. mín fái brautargengi, enda þykist ég vita, að hæstv. bankamrh. muni stuðla mjög að því.