22.11.1973
Efri deild: 24. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 817 í B-deild Alþingistíðinda. (692)

38. mál, Verslunarbanki Íslands

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Mál þetta hefur þegar verið afgr. í hv. Nd. Frv. var flutt samkv. beiðni stjórnar Verslunarbanka Íslands. Það gerir ráð fyrir minni háttar breytingum varðandi kosningu á stjórn bankans, gerir m. a. ráð fyrir því, að hægt sé að kjósa formanninn sérstaklega og ekki þurfi að kjósa alla stjórnarmenn á hverjum aðalfundi, heldur geti verið um sérstaka úrfellingarreglu að ræða, eins og þekkist í ýmsum félagssamtökum. Hér er í rauninni um slíkt innra mál að ræða varðandi bankann, að rn. þótti einsýnt að verða við þessari ósk Verslunarbankans, og er því meðmælt því, að þetta frv., nái fram að ganga.

Ég vænti þess, að sú n., sem fjallar um málið í þessari d., geti fallist á þessa skoðun rn. og þá skoðun, sem hefur verið ofan á í Nd., að réttmætt sé að verða við þessum óskum forustumanna Verslunarbankans, þar sem hér er um minni háttar breytingu á l. um bankann að ræða.

Herra forseti. Ég legg til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til fjh.- og viðskn. til fyrirgreiðslu.