22.11.1973
Neðri deild: 28. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 817 í B-deild Alþingistíðinda. (694)
27. mál, skipti á dánarbúum og félagsbúum
Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Það frv. um breyt. á l. um skipti á dánarbúum og félagsbúum, sem hér er til umr., var lagt fram á síðasta þingi, en svo seint, að það fékk ekki afgreiðslu þá, enda ekki til þess ætlast.
Eins og greint er frá í aths. við frv., var Þór Vilhjálmssyni prófessor falið á miðju ári 1972 að vinna að endurskoðun á löggjöfinni um búskipti. Að höfuðstofni til er þessi löggjöf nú 100 ára gömul, en efni hennar var þá algerlega sótt í hina nýju dönsku löggjöf þeirra ára, en eins og kunnugt er, þá fylgdi umfangsmikil endurnýjun á hinni almennu löggjöf í Danmörku í kjölfar dönsku stjórnarskrárinnar frá 1849, þ.á m. endurskoðun á réttarfarslöggjöf og endurskoðun á skiptalöggjöf, og af þeirri dönsku löggjöf, sem þá var sett og að mörgu leyti var mjög vönduð, höfðum við Íslendingar góð not, og á það ekki hvað síst við um skiptalöggjöfina, sem var mjög vandað verk. Það er hinsvegar löngu ljóst, að sú löggjöf þarfnast endurskoðunar, sem engan þarf að undra eftir svo langan tíma.
Að því hefur verið horfið eftir fyrstu athugun á þessu verkefni og í samráði við rn. að taka fyrst fyrir það efni, sem þetta frv. hefur að geyma, en það eru lagareglurnar um greiðsluröð krafna við skipti. Eru að þessu leyti viðhöfð hér sömu vinnubrögð og í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, en þar hefur við endurskoðun samsvarandi löggjafar á síðasta áratug verið fyrst og fremst unnið að breytingum á lagareglunum um skuldaröð. Til þess liggja augljósar hagkvæmnisástæður. Þetta verkefni er nokkuð afmarkað, en hins vegar mjög brýnt, þar sem þeim reglum tengjast mjög mikilvæg félagsleg sjónarmið, sem æskilegt er, að komið verði fljótlega fram með breytingum á löggjöfinni á þessu takmarkaða sviði. Heildarverkefnið, reglurnar um búskipti almennt, er hins vegar bæði mjög umfangsmikið og vandasamt, og tekur óhjákvæmilega lengri tíma að ljúka þeirri endurskoðun, eins og reynslan frá hinum Norðurlöndunum líka sýnir. Ætlunin er, að næsta verkefni, sem tekið verður fyrir, verði nýtt frv. að gjaldþrotaskiptalögum, en síðan hin almennu skiptalög, þ. e. a. s. lög um skipti á dánarbúum og félagsbúum.
Ég vék hér áðan aðeins að hinum mikilsverðu félagslegu sjónarmiðum, sem einkum hafa ráðið því, að hér eins og á öðrum Norðurlöndum hefur þótt rétt að taka þennan þátt efnisins sérstaklega til meðferðar. Breytingarnar eru fyrst og fremst í því fólgnar að fella niður úr röð forgangskrafna ýmsar kröfur opinberra aðila, sem rík tilhneiging var til að tryggja sem best á sínum tíma, þegar núgildandi löggjöf var sett, eins og t.d. skattakröfur og aðrar gjaldkröfur opinberra aðila. Hin breyttu félagslegu viðhorf hafa valdið því, að nú er lagt enn meira upp úr því að tryggja hagsmuni þeirra aðila, sem síður mega við því að verða fyrir skakkaföllum í sambandi við skipti vegna óhagstæðrar skuldaraðar, svo sem launþegar vegna launakrafna, svo sem kröfuhafar að ýmsum félagslegum framlögum, svo sem lífeyri og meðlögum.
Það raskar ekki út af fyrir sig þörf fyrir þessar breytingar, þótt til hafi komið aðrar félagslegar ráðstafanir í löggjöf síðari ára, fyrst og fremst með almannatryggingunum og nú síðast með fyrirhugaðri löggjöf um tryggingar launakrafna í sambandi við gjaldþrot atvinnurekstrar. Hinar nýju reglur þessa lagafrv. eiga að sjálfsögðu að haldast í hendur við samsvarandi þróun í margs konar félagslegri löggjöf.
Herra forseti. Ég mun ekki við þessa umr. fara að rekja eða lesa upp einstakar gr. þessa lagafrv. Með frv. fylgja mjög ítarlegar skýringar og þ. á m. skýringar á einstökum gr., og ég vil leyfa mér að vísa til grg., sem fylgir þessu frv. frá höfundi þess.
Frv. hefur gengið í gegnum Ed. og verið afgr. þar shlj., og ég vil leyfa mér að leggja til, að því verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.