22.11.1973
Sameinað þing: 23. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 840 í B-deild Alþingistíðinda. (707)
Umræður utan dagskrár
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að kveðja mér hljóðs utan dagskrár í þeim tilgangi að koma á framfæri fsp. til hæstv. forsrh. Þarf ég í því sambandi að hafa þar um stuttan formála. Mér var þó ekki kunnugt um þær nýju reglur, sem hæstv. forseti Sþ. hefur sett um utandagskrárumr., en ég vona, að ég þurfi ekki að brjóta neitt verulega af mér í því sambandi og skal vera eins stuttorður og ég mögulega kemst af með.
Fyrir nokkru leitaði hæstv. fjmrh. eftir stuðningi þingflokkanna allra, að ég held, við frv., sem hann taldi sig þurfa að leggja fram um lántöku eða ábyrgðarheimild vegna fyrirhugaðra kaupa á allt að 10 skipum af ýmsum stærðum, sem jafnmargir útgerðarmenn höfðu hug á að kaupa frá Noregi, Í þessum hópi var að finna landsþekkta skipstjórnarmenn á fiskiskipaflota okkar Íslendinga. Alllangur aðdragandi hafði verið að undirbúningi þessa máls og mikla vinnu búið að leggja í undirbúninginn. Teikni- og smíðalýsingar af skipunum voru fyrir hendi og bráðabirgðasamningar höfðu verið undirritaðir með fyrirvara í ágúst s. l. Ríkisstj. hafði haft málið hjá sér til athugunar, og eftir að hæstv. fjmrh. hafði fengið vilyrði þingflokkanna fyrir stuðningi við ábyrgðarheimildina, veitti hún vilyrði fyrir ríkisábyrgð fyrir 13% af kaupverði skipanna, og mun þá hafa verið reiknað með, að Fiskveiðasjóður lánaði 67% og Byggðasjóður 5%, en kaupendur legðu fram hjá viðskiptabanka sínum í reiðufé 15% af heildarandvirði skipanna, og var það skilyrði fyrir ríkisábyrgð og getur ekki talist neitt óeðlilegt.
Þegar málið að þessu leyti var búið að fá grænt ljós hjá ríkisstj., eins og kallað er, sóttu þeir útgerðarmenn, sem hér áttu hlut að máli, um lán hjá Byggðasjóði, 5% af andvirði skipanna, sem er í samræmi við fyrirgreiðslu; sem Byggðasjóður hafði áður veitt, jafnvel þó að um væri að ræða kaup á notuðum skipum erlendis frá.
Hér var hins vegar um nýsmíði að ræða, auk þess sem allir skuttogararnir, sem keyptir hafa verið til landsins, munu hafa fengið þessa fyrirgreiðslu.
Lánsbeiðni útvegsmanna var tekin fyrir á fundi hjá stjórn Byggðasjóðs 6. þ. m., og var framkvæmdaráði stofnunarinnar veitt heimild til þess að verða við óskum viðkomandi aðila um 5% fyrirgreiðslu. Munu fordæmi fyrir því, að slíkt orðalag er viðhaft að veita framkvæmdaráði heimild til lánveitinga, ef mál eru afgreidd milli reglulegra funda, og mun slík afgreiðsla varla vera skilin á annan veg en um jákvæða afgreiðslu sé að ræða, enda vandséð, til hvers stjórn stofnunarinnar væri að veita framkvæmdastjórum sínum slíka heimild, ef ekki væri ætlast til, að málið væri afgreitt í samræmi við vilja meiri hl. stjórnarinnar.
Lánsumsækjendur tóku þetta af eðlilegum ástæðum sem endanlega og eðlilega afgreiðslu á máli sínu, þannig að stjórn stofnunarinnar hefði orðið við umsókn þeirra, og eru þegar a. m. k. nokkrir af þeim útgerðarmönnum, sem hér eiga hlut að máli, búnir að uppfylla þau skilyrði, sem sett voru, að þeir legðu inn til viðskiptabanka síns 15% af kaupverði skipanna, og mun hér vera um að ræða sem svarar 18 millj. kr. á minnstu skipin.
Nú skeður það, að á fundi sínum 20. þ. m., eða s. l. þriðjudag, breytir stjórn Byggðasjóðs fyrri samþykktinni þannig, að í stað 5% lána er upphæðin lækkuð niður í 2%, sem þýðir, að kaupendur umræddra skipa verða að lágmarki til að bæta 3.6 millj. kr. við framlag sitt, sem fyrir flesta, ef ekki alla, þýðir, að þeir munu missa af kaupunum.
Fsp. mín til hæstv. forsrh. í þessu sambandi er því:
1. Geta þeir útgerðarmenn, sem hér eiga hlut að máli, væntanlegir kaupendur hinna norsku skipa, ekki treyst því, að hæstv. ríkisstj. muni sjá um, að 5% lánið, sem stjórn Byggðasjóðs hafði áður gefið fyrirheit um, verði þeim veitt, annað hvort úr þeim sjóði eða öðrum?
2. Geta þeir útgerðarmenn, sem eftirleiðis vilja standa að endurnýjun bátaflotans, ekki vænst þess að fá sömu fyrirgreiðslu frá hendi stjórnvalda og opinberra stofnana og veitt hefur verið og veitt er til endurnýjunar togaraflotans?
Ég vil benda á, að íslendingar standa nú á nokkrum vegamótum í útgerðarmálum í sambandi við útfærslu landhelginnar og að endurnýjun bátaflotans hlýtur að verða að eiga sér stað í einhverjum mæli, og er alveg nauðsynlegt fyrir þá, sem þar eiga hlut að máli, að vita, hvar þeir standa með fyrirgreiðslu frá því opinbera, ekki síður en þeir, sem í byggingu skuttogara vilja máðast. Á ég við, ef um smíði báta er að ræða hjá erlendum skipasmíðastöðvum.
Ég vænti þess, að hæstv. forsrh. geti veitt svör við þeim tveimur fsp., sem ég hef hér leyft mér að bera fram.