22.11.1973
Sameinað þing: 23. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 841 í B-deild Alþingistíðinda. (708)

Umræður utan dagskrár

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Hv. fyrirspyrjandi hefur rakið gang þessa máls, og það er rétt, sem hann sagði, að ríkisstj. gerði á sínum tíma samþykkt um tiltekin skip og með þeim skilyrðum, sem hann gat um, að það væru greidd inn 15% af kaupverði. Áður en ríkisstj. gerði samþykkt sína hafði hún fengið umsögn frá framkvæmdastjórum Framkvæmdastofnunarinnar. Þeir voru að vísu ekki sammála, en eftir að umsögn þeirra lá fyrir, var þessi ákvörðun tekin í ríkisstj. Og eftir það lögðu þessir aðilar, 8 að tölu, fram umsóknir til kaupa á fiskiskipum frá Noregi að stærð 350–500 lestir, eitt skipanna þó 800 lestir. Lánsumsækjendurnir eru Sigurður h/f, Akranesi, Skarðsvík h/f, Hellissandi, Hilmir s/f, Fáskrúðsfirði, Varðarútgerðin h/f, Stöðvarfirði, Álftafell h/f, Stöðvarfirði, Huginn h/f, Vestmannaeyjum, Ufsafell h/f, Vestmannaeyjum, og Gunnar h/f, Reyðarfirði. Það er svo rétt, eins og hv. fyrirspyrjandi sagði,að á fundi stjórnar Framkvæmdastofnunar ríkisins 6. nóv. s. l. var gerð svohljóðandi samþykkt:

„Framkvæmdaráði verði heimilað að veita 5% lán til ofangreindra aðila, merkt 1–7.“ 8. var af einhverjum ástæðum undanskilinn. „Lánveitingar þessar verði háðar því skilyrði, að Ríkisábyrgðasjóður og Fiskveiðasjóður samþykki ábyrgð á lánveitingu fyrir sitt leyti.“

Heimild þessi var veitt vegna upplýsinga um, að tími til að gera kaupsamninga um skipin gæti runnið út, áður en næsti stjórnarfundur yrði haldinn í Framkvæmdastofnuninni.

Það er svo rétt, sem hv. fyrirspyrjandi rakti um afskipti fjmrh. af ríkisábyrgð, þannig að hún á að vera fyrir hendi eða er leitað lagaheimildar fyrir henni.

En á næsta stjórnarfundi, sem haldinn var í Framkvæmdastofnuninni 20. nóv. s. l., var samþ. till. um þetta efni, og hún er svo hljóðandi:

„Stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins samþykkir, að heimild til lánveitinga til kaupa á loðnuskipum samkv. fundargerð seinasta fundar verði miðuð við 2% lán, lánaprósenta miðuð við matsgerð Fiskveiðasjóðs Íslands á skipunum.“

Ég hygg, að þegar þessi samþykkt var gerð, sem sagt 20. nóv., hafi ekki legið fyrir samþykkt frá Fiskveiðasjóði um lánveitingar. En til skýringar á þessari stefnubreytingu hjá stjórn Framkvæmdastofnunarinnar get ég það eitt sagt, að 25. jan. 1973 var gerð samþykkt um afnám svokallaðra sjálfvirkra lánareglna úr Byggðasjóði til skipasmíða innanlands, skipakaupa erlendis og innanlands og skipaviðgerða, en áður mun það hafa gilt, að það voru sjálfvirk 5% lán veitt til þessa, þannig að eftir að þessi samþykkt er gerð, er það á valdi stjórnar Framkvæmdastofnunarinnar, hvort og hve mikil viðbótarlán hún veitir í þessu skyni.

Þeim beinu fsp., sem fyrirspyrjandi beindi til mín, verð ég að svara því, að það er alveg ljóst, að ríkisstj. hefur ekkert skipanarvald gagnvart stjórn Framkvæmdastofnunarinnar. Stjórn Framkvæmdastofnunarinnar er þingkjörin stjórn, og ríkisstj. getur ekki gefið henni nein fyrirmæli og hefur aldrei gefið henni nein fyrirmæli um lánveitingar. Það er stjórn Framkvæmdastofnunarinnar, sem tekur þær og hefur síðasta orð um það, þannig af ríkisstj. hálfu getur í þessu tilfelli ekki verið um annað að ræða en þá tilmæli til stjórnarinnar. Þetta efni hefur ekki, eftir að það kom til, verið rætt í ríkisstj., og þess vegna get ég ekki gefið hér neinar yfirlýsingar um það, eftir hverju ríkisstj. mundi vilja óska við stjórn Framkvæmdastofnunarinnar. En annað getur hún ekki gert í þessu efni heldur en þá sett fram frómar óskir. Og við síðari spurningunni er í rauninni sama svarið, að ríkisstj. getur ekki tryggt þessi viðbótarlán hjá Framkvæmdastofnuninni til síðari hugsanlegra kaupenda eða byggjenda skipa. Þetta er algerlega á valdi stjórnar Byggðasjóðs. Ég hef satt að segja ekki í höndum skýringu á þeirri stefnubreytingu, sem þarna hefur átt sér stað á milli funda hjá stjórn Framkvæmdastofnunarinnar, en hér á hv. Alþ. sitja menn úr stjórn stofnunarinnar, sem geta svarað þessu frekar en ég, hvaða ástæður liggja til þess, að þarna hefur verið skipt um skoðun. En ég get bara sagt, að það hefur verið eindreginn vilji hjá ríkisstj. að greiða fyrir því, að þessir aðilar gætu byggt þessi skip, sem þeir hafa ætlað til loðnuveiða, og þess vegna gerði ríkisstj. þá samþykkt um það á sínum tíma, sem hún gerði.