22.11.1973
Sameinað þing: 23. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 843 í B-deild Alþingistíðinda. (709)

Umræður utan dagskrár

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Út af máli þessu vil ég taka fram, að ég á sæti í stjórn Framkvæmdastofnunar, en greiddi ekki atkv. með þeirri ákvörðun, sem hér hefur verið spurt um. Ég taldi og tel mjög hæpið að gera skyndilegar breytingar í þessum efnum, jafnvíðtækar að áhrifum og hér um ræðir. Ákvarðanir, sem eiga að hafa veruleg áhrif á skipakaup til landsins, þurfa auðvitað að takast af öðrum yfirvöldum eða fleiri aðilum sameiginlega.

Annað mál verð ég að nefna, sem er eiginlega hluti af þessu sama. Síðustu daga hafa tveir aðilar komið til tals við þm. Vesturl. í þessu húsi og sagt sínar farir ekki sléttar. Þetta eru sjómenn vestan af Snæfellsnesi, sem hafa hug á að kaupa sér nýja báta. Þeir hafa rætt það undanfarna mánuði við viðskiptabanka sína og fengið þar eins og ávallt góðar móttökur, því að ég hygg, að þetta séu skilamenn, sem geta vel staðið fyrir sínu og hafa gert. En nú segja þeir, er þeir koma með ákveðin tilboð um innflutning á skipum frá Noregi, að þá hafi skyndilega breyst hljóðið, og það er eins og viðskiptabankar þeirra séu algerlega lokaðir, fáist ekki til þess að tala um neitt. Af þessu er ekki hægt að draga aðra ályktun en að það hljóti að hafa orðið skyndileg stefnubreyting í viðskiptabönkunum varðandi innflutning á fiskibátum. Um þetta vil ég einnig segja, að svona hluti er ekki hægt að gera skyndilega. Hér er um stórákvörðun að ræða, en það er langur aðdragandi að slíkum kaupum og mikil fjárfesting, sem um er að ræða, þannig að menn eiga ekki að fá yfir sig neitun á síðustu stundu. Viðskiptabankarnir virðast hafa lokað fyrir það að tala við menn um bátakaup, og ef forsrh. getur gefið einhverja skýringu á því, þá þætti mér vænt um það. Ég sé, að hann hristir höfuðið, svo að það virðist ekki vera. Ég vil þá fara fram á við hann, að hann kynni sér þessa hlið málsins líka. Ef það er verið að stöðva skyndilega innflutning á fiskibátum, þá finnst mér, að aðdragandinn hefði átt að vera annar, menn átt að fá að vita það með nokkrum fyrirvara og það ekki koma eins og köld gusa yfir sjómenn, sem hafa farið frá störfum sínum til þess að reyna að komast yfir betri skip. Þeir eru þó frá byggðarlögum, sem ekki hafa fengið mikið af þeim stærri skipum eða skuttogurum, sem flutt hafa verið inn nú undanfarið.