22.11.1973
Sameinað þing: 23. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 845 í B-deild Alþingistíðinda. (712)
Umræður utan dagskrár
Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Það er aðeins út af orðum hv. 1. þm. Sunnl., að málaleitun til ríkisstj. og sú samþykkt, sem þar er gerð, er auðvitað fyrst og fremst um ríkisábyrgðina og formlega er þar ekki í sjálfu sér annað afgreitt. En auðvitað býður sú afgreiðsla ríkisstj., — það hika ég ekki við að segja, — að þar með gefur hún fyrir sitt leyti grænt ljós til annarra lánastofnana, og það var og er vilji ríkisstj., að það sé greitt fyrir því, að þessi skip geti komið til landsins. Ég veit vel, að hafi framkvæmdastjórarnir haft samband við ríkisstj. í millitíðinni, þá hafi þeir ekki getað fengið önnur svör þar en á þessa leið.
Ég sagði áðan, að ég gæti ekki gefið skýringu á þessum sinnaskiptum hjá stjórn stofnunarinnar. Það var kannske fullmikið sagt. Skýringin er að nokkru leyti a. m. k. sú, að það mættu á fyrri fundinum varamenn tiltekins flokks, en á seinni fundinum aðalmenn, og ég hygg, að þeir hafi haft aðra skoðun á þessu en varamennirnir höfðu.