22.11.1973
Sameinað þing: 23. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 855 í B-deild Alþingistíðinda. (725)

35. mál, afnám vínveitinga á vegum ríkisins

Flm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Þessi till. var áður flutt hér á Alþ. s. l. vetur. Flm. hennar voru þá allir þeir sömu og nú. Till. hlaut þá góðar undirtektir á þinginu að því leyti, að enginn mælti henni gegn og nokkrir hv. þm. lýstu stuðningi við hana við fyrri hluta umr. Aftur á móti lagðist hv. allshn. á málið og skilaði aldrei áliti um það. Mér þykir þó varla líklegt, að hv. n. hafi tafið sig á því að bíða eftir umsögnum um svo einfalt mál sem þetta.

Augljóst er, að þessi till., flutningur hennar hefur vakið nokkra athygli utan Alþ. Hefur hennar víða verið getið, og töluvert mörg erindi hafa borist Alþ. varðandi þessa till. Eru þau öll á eina leið, eindregnar áskoranir til þingsins um að samþykkja till. Frá hverjum skyldu þær svo vera, þessar samþykktir, þessar áskoranir til Alþ.? Margar þeirra eru vitanlega frá aðilum, sem hafa helgað sig baráttunni gegn áfengisbölinu sem sérstöku viðfangsefni. En slíkar ályktanir hafa líka komið víðar að. Þar má nefna t. d. hreppsn. Hafnarhrepps í Hornafirði og félagsskap óháðra borgara í Hafnarfirði, en það hygg ég, að séu allfjölmenn samtök þar í bæ, sem einkum láta sig sveitarstjórnarmálefni miklu varða. Einnig hefur slík áskorun komið frá bæjarstjórn Neskaupstaðar, sem jafnframt skoraði á aðrar sveitarstjórnir að veita ekki vín í sínum boðum. Bæjarstjórnin í Neskaupstað hefur ekki veitt vín áratugum saman, og m. a. hefur hún minnst merkisafmælis kaupstaðarins með veglegu boði, vínlausu. Á þetta vildi ég minna nú, þegar þáltill. þessi er fram borin öðru sinni. Einnig hitt, að hvergi munu hafa komið fram andmæli gegn till., hvorki innan þings né utan, á því ári, sem liðið er frá því að hún var flutt hið fyrra sinni, ekki opinberlega, svo að ég viti til.

Þá vil ég með örfáum orðum gera grein fyrir þeim meginforsendum, sem flutningur till. byggist á.

Það er á hvers manns vörum a. m. k., að víndrykkja valdi miklum og vaxandi erfiðleikum í íslensku þjóðfélagi, svo á vinnustöðum og á vegum úti sem innan fjögurra veggja heimilanna. Smátt og smátt hefur sá siður breiðst út, að fólk hefur vín um hönd nálega hvar sem komið er saman til mannfagnaðar, konur jafnt og karlar, og þeir gerast æ yngri, sem telja sér bæði rétt og nánast skylt að fylgja þessari siðvenju. Í því felst að mínum dómi mikil þversögn að örva þessa þróun með fordæmi, en ræða svo með áhyggjusvip og vandlætingar um áfengisbölið, eins og það er gjarnan kallað. En það er einmitt þetta, sem hendir og hefur hent allt of marga ráðamenn þjóðarinnar bæði fyrr og síðar. Með þessari till. er lagt til að snúa blaðinu við að þessu leyti. Í stað þess, að ríkisstjórnir hafa til þessa alið á þeirri trú, að vín væri ómissandi hvarvetna þar sem menn kæmu saman til að skemmta sér, með því að bera gestum sínum áfenga drykki við líkleg og ólíkleg tækifæri, þá yrðu nú teknir upp aðrir hættir þar, sem sagt að ríkisvaldið sjálft gæfi þegnum sínum gott fordæmi að þessu leyti. Í mínum huga er þetta mergurinn málsins í sambandi við flutning þessarar till.

Ég er stundum spurður að því í tilefni af þessum tillöguflutningi, hvort ég hafi orðið var við einhver stórhneyksli í boðum hins opinbera. Ég svara því neitandi. Hitt er svo annað mál, að ég undrast þann skort á háttvísi að bjóða mönnum til víndrykkju, þegar þeir eru önnum kafnir, t. d. við fundarstörf, og halda óspart að þeim áfengi. Og mér þykir það hart aðgöngu, að enda þótt forsvarsmenn félaga mælist undan vínveitingum undir þessum kringumstæðum, sem ég nefndi, þá skuli áfengi engu að síður fram borið, en ég hef orðið vitni að því.

Þegar till. þessi kom fyrst fram, voru ýmsir að gera því skóna, að hún væri flutt í því skyni að spara útgjöld við veisluhald. Ég man ekki betur en eitt dagblaðanna birti einhverja verðútreikninga í því sambandi. En ég held, að ég hafi tekið það fram í fyrra, þegar ég talaði fyrir till., og ég árétta það enn, að ég hef ákaflega lítinn áhuga á þess háttar sparnaði. Ég hef nefnilega aldrei vanist því, að það væri knifað við gest eða gangandi. Og ef stjórnarvöld vilja efna til fagnaðar, þá gott og vel kostnaðarins vegna, á meðan þar eru einhverjar skynsamlegar takmarkanir. En þegar háir og lágir tala um víndrykkju sem vandamál, jafnvel sem stórkostlegt böl, þá finnst mér töluvert mikið bogið við það t. d., að á meðan fjölmenn félags- og menningarsamtök leggja sig í líma við að halda vínlaus mót og samkomur, þá skuli ríkisstj. beri áfengi fyrir hvern mann, sem kemur á hennar fund til einhvers fagnaðar, á meðan áfengisauglýsingar eru t. d. bannaðar með lögum, þá heldur ríkisstj. og einstakir ráðh. uppi sýnikennslu í áfengisdrykkju, og meðan félög bindindismanna og samtök alkóhólista inna af höndum stórkostlega menningar- og hjálparstarf til að forða mönnum frá áfenginu, þá lætur hið opinbera þjónalið sitt í veislusölum í mörgum tilvikum gera allt, sem hægt er, til þess að koma áfengi ofan í gesti sína — og sem allra mestu. Þetta finnst mér vera fáránlegar andstæður og mikil þversögn í því fólgin.

Till. þessi er sem sagt fyrst og fremst flutt í þeim tilgangi að binda endi á það, að ríkisvaldið berjist gegn raunverulegum áfengisvörnum með þeirri sýnikennslu í áfengisdrykkju, sem haldið hefur verið uppi til þessa frammi fyrir þjóðinni allri í raun og veru.

Ég verð svo að leggja til, herra forseti, að till. verði vísað til allshn.