22.11.1973
Sameinað þing: 23. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 860 í B-deild Alþingistíðinda. (729)

35. mál, afnám vínveitinga á vegum ríkisins

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég vænti þess nú ekki, að forseti sé þess sinnis, að það sé ekki ástæða til þess að ræða málið hér á hv. Alþ. Ég hygg, að það sé full ástæða til þess. En ég skal tala aðeins örfá orð.

Ég er ekki í neinum vafa um, að ef hv. þm., sem hér var að ljúka máli sínu, mælti af fullri hreinskilni þau orð, sem hann mælti, þ. e. a. s. um vantraust á ríkisstj., þá hefði hann ábyggilega lagt sína krafta, sem miklir eru, í það, að málið fengist afgreitt á síðasta þingi. Það þarf enginn mér að segja, að hv. þm. Pétur Sigurðsson hefði séð eftir sér til þess að greiða atkv. um vantraust á ríkisstj. Það hefði hann gert, hefði málið verið þess eðlis. En það er ekki um það að ræða. Það er miklu meira vandamál, sem við erum hér að tala um, heldur en það sé ástæða til þess að vera með grín eða gáskafull ummæli í einu og öðru um þetta vandamál. Það er viðurkennt af þessum hv. þm., að vandamálið sé til staðar, og hann er búinn að lýsa yfir stuðningi sínum við till., og ég þakka honum fyrir það sérstaklega. Ég vænti þess, að það verði fleiri, sem sýna stuðninginn í atkvgr., þegar að því kemur, að n. skilar málinu frá sér. Ég ætla henni ekki annað en hún hafi tíma til, vilja og getu á þessu þingi.