27.11.1973
Sameinað þing: 24. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 887 í B-deild Alþingistíðinda. (763)

99. mál, ráðstafanir til að fyrirbyggja raforkuskort á Vestfjörðum

Fyrirspyrjandi (Steingrímur Hermannsson) :

Herra forseti. Raforkumál Vestfjarða hafa verið nokkuð í sviðsljósinu, því miður, vil ég segja, nú í haust. Þar hafa orðið alvarlegar bilanir og orðið dráttur á viðgerð, sem valdið hefur orkuskorti. Þetta er raunar ekki í fyrsta sinn, sem slíkar bilanir hafa átt sér stað, og fyrr hefur það tekið nokkurn tíma að fá nauðsynlegar viðgerðir.

Raforkukerfi Vestfjarða er í raun og veru ákaflega veikt. Aðalorkuframleiðslan, orkustöðin, er á miðju svæðinu, Mjólká. Þaðan liggur síðan strengur nokkuð út með Arnarfirðinum og greinist síðan í tvær áttir, þ. e. í suður og norður, og liggur yfir fjöll og firði. Á þessu svæði eru bilanir nokkuð tíðar, eins og ég sagði áðan. Við síðustu bilun kom í ljós, að varastöðvar á svæðinu norðan Arnarfjarðar eru ekki nægilegar til að fullnægja því álagi, sem þar er, og var því nauðsynlegt að skammta rafmagn á toppunum, þ. e. a. s. um hádegið og að kvöldi til, sem að sjálfsögðu var ákaflega erfitt fyrir frystihúsin á þessu svæði og þeirra mikilvægu framleiðslu.

Mér sýnist ljóst, að þarna þurfi að bæta úr. Það er tvennt, sem kemur til greina. Það er í fyrsta lagi og að því verður vitanlega að stefna að styrkja þetta kerfi með nýjum og öðrum dreifilínum, en til bráðabirgða er nauðsynlegt að staðsetja þarna dísilstöðvar, sem geta séð fyrir því álagi, sem svæðið krefst.

Þetta ástand hefur valdið íbúum svæðisins verulegum áhyggjum, og því hef ég leyft mér að leggja fram á þskj. 117 fsp. til raforkuráðh. um ráðstafanir til þess að fyrirbyggja raforkuskort á Vestfjörðum.