27.11.1973
Sameinað þing: 24. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 892 í B-deild Alþingistíðinda. (770)
106. mál, símamál á Suðurnesjum
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir fsp., sem var sett fram af varamanni mínum, meðan hann sat hér á þingi, en hann býr í Keflavík, og þeir Suðurnesjamenn hafa oft á tíðum haft áhuga á því að fá úrbætur á símamálum sínum, sem hafa verið í langan tíma mjög erfið. Þetta er gamalt og nýtt mál, og er svo komið, að oft tekur mjög langan tíma að ná sambendi á milli svæða á Suðurnesjum og til annarra svæða. Margsinnis hafa menn ályktað um úrbætur í þessu efni, en það gengur seinlega að fá það fram, og ég veit, að það er áhugamál allra þarna á Suðurnesjum að ýta við þessu, ef unnt er að flýta framkvæmdum. Ég veit, að það hefur verið tilgangur þm. að fá þetta upplýst og vita nánar, hvernig þessum málum er háttað í dag.
Fsp. er stutt. Hún er þannig: „Hafa verið gerðar einhverjar ráðstafanir til að bæta símakerfið á Suðurnesjum, einkum með tilliti til landssímaafgreiðslu til Reykjavíkur og út á land.?