27.11.1973
Sameinað þing: 24. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (773)

108. mál, fjármál hafnarsjóða

Fyrirspyrjandi (Lárus Jónsson) :

Herra forseti. Ég hef á þskj. 130 leyft mér að óska upplýsinga hæstv. fjmrh. um fjármál hafnarsjóða. Á þskj. er fsp. í 5 liðum, og fjalla spurningarnar um skiptingu á endurlánum til hafnarsjóða á 40 millj. kr., sem heimilað var að veita til þeirra samkv. fjárlögum yfirstandandi árs til þess að létta greiðslubyrði þeirra, sem verst eru settir. Spurt er einnig um, með hvaða kjörum ríkissjóður hafi aflað þess fjár, og jafnframt, með hvaða kjörum hann hefur endurlánað þessa upphæð til hafnarsjóðanna. Þá er spurt, hvort ráðh. telji hér um fullnægjandi aðstoð að ræða, hvort viðkomandi hafnarsjóðir hafi sumir fengið synjun á ríkisábyrgð til þess að notfæra sér þessa fyrirgreiðslu og hvort tekið hafi verið tillit til lausaskulda hafnarsjóðanna við úthlutun lánanna.

Eins og hv. þm. er kunnugt, skipaði ráðh. hafnamála í fyrrv. ríkisstj. n. til að endurskoða lög um hafnir. N. skilaði áliti á árinu 1972, og lagði núv. ríkisstj. fram frv. til hafnalaga á fyrsta þingi eftir stjórnarskipti, sem var svo til óbreytt eins og hafnalaganefnd hafði frá því gengið. Þótt meginstefnu frv. væri vel tekið hér á hv. Alþ., hlaut frv. ekki samþykki fyrr en á yfirstandandi ári, eftir að fjárlagagerð lauk. Aukin þátttaka ríkissjóðs í kostnaði við nýbyggingar hafna samkv. lögunum hefur því enn ekki komið til framkvæmda.

Í l. er svofellt ákvæði til bráðabirgða: „Gera skal sérstakar ráðstafanir til að létta greiðslubyrði þeirra hafnarsjóða af lánum, sem verst eru settir, og skal þá miða við lánin, eins og þau eru, er lög þessi taka gildi. Við fjárlagagerð fyrir árið 1974 skal samgrn. gera Alþ. sénstaka grein fyrir fjárþörf í þessu efni. „Í grg. með hafnalagafrv. var rækilega rökstutt, hversu brýn nauðsyn væri á þessu ákvæði, og lýsti þáv. hafnamrh. þessari nauðsyn með litríkum orðum í framsögu sinni fyrir frv. Hann gat þess m. a., að skuldir hafnarsjóða væru allt að 5 þús. kr. á hvert mannsbarn í sumum byggðarlögum. Orðrétt segir svo í grg. frv. um þetta efni:

„Eins og áður hefur komið fram í þessari grg., er greiðslubyrði fjölmargra hafnarsjóða af lánum til hafnarframkvæmda óhæfilega þung. Gerir n. till. um, að þessari byrði verði létt, eftir því sem eðlilegt getur talist, af þeim hafnarsjóðum, sem verst eru settir. Miðar n. við, að ríkissjóður yfirtaki að fullu hluta af skuldum þessara hafnarsjóða eftir reglum, sem samgrn. gerir til um til fjvn. og Alþ.“

Þegar sýnt var, að frv. mundi ekki verða að lögum fyrir síðustu áramót, var horfið að því ráði að veita á heimildagrein fjárlaga ríkisstj. heimild til að útvega 40 millj. kr., er veita skyldi hafnarsjóðum í þessu skyni. Hér var hins vegar um lánafyrirgreiðslu að ræða, en ekki að ríkissjóður yfirtæki að fullu hluta af skuldum hafnarsjóðanna, eins og hafnalagan. hafði stefnt að með ákvæðum til bráðabirgða. Einnig er á það að líta, að ekkert virðist benda til þess, að hæstv. ríkisstj. ætli að framfylgja þessu lagaboði á fjárlögum ársins 1974, þ. e. a. e. að lagt verði fram óafturkræft framlag úr ríkissjóði til að létta þessa miklu byrði einstakra fiskihafna. Þetta gerist samtímis því, sem veita á hundruð millj. kr. í framkvæmdir við 3 hafnir á landinu.

Spurningar mínar til hæstv. fjmrh. eru fram bornar til þess að fá úr því skorið, hvort hér sé um algera stefnubreytingu að ræða frá því, sem gert var ráð fyrir í hafnal., sem sett voru á síðasta þingi, og til glöggvunar fyrir þingheim á því, hversu raunhæfar þær ráðstafanir eru, sem gerðar voru á yfirstandandi ári til þess að létta geigvænlegar greiðslubyrðar hafnarsjóða í landinu.