27.11.1973
Sameinað þing: 24. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 897 í B-deild Alþingistíðinda. (776)
108. mál, fjármál hafnarsjóða
Jón Árnason:
Herra forseti. Í sambandi við þessa fsp. varðandi framkvæmd þess bráðabirgðaákvæðis, sem var afgr. með síðustu fjárlögum, þ. e. a. s. fjárlögum yfirstandandi árs, þá var það, eins og kunnugt er, tekið inn vegna þess, að vitað var, að fjölmargir hafnarsjóðir áttu við mikla erfiðleika að stríða í sambandi við greiðslur á áhvílandi lánum. Það var einnig gert ráð fyrir því í þessu bráðabirgðaákvæði, að fjvn. yrði höfð með í ráðum, þegar gengið yrði frá þessu máli. Hér var um 40 millj. kr. upphæð að ræða, sem átti að nota til þess að létta undir með þeim hafnarsjóðum, sem ættu við mesta erfiðleika að etja. Það var líka ýmislegt annað, sem átti að taka til athugunar í sambandi við afgreiðslu málsins og þess vegna þurfti að leita ýmissa upplýsinga, og m. a. var það, að það átti að gera sér grein fyrir því, hvað ýmis sveitarfélög hefðu lagt af mörkum í sambandi við uppbyggingu hafnanna. Það kom í ljós, eftir að búið var að kanna málið, að það var ákaflega mismunandi, sem sveitarsjóðirnir höfðu staðið að uppbyggingu hafna á hinum ýmsu stöðum. Í sumum tilfellum höfðu sveitarsjóðirnir ekki lagt fram neinar fjárhæðir til hafnarframkvæmda, en á öðrum stöðum var um verulegar upphæðir að ræða. Allt þetta hlaut fjvn. að meta sérstaklega, ef til þess átti að koma að veita þetta sem styrktarfé. Það var ekki nóg, að höfnin væri í vanskilum, ef það kom svo í ljós, að það væri m. a. vegna þess, að íbúar byggðarlagsins hefðu ekki lagt á sig sambærilega byrði við það, sem gert var í öðrum sveitarfélögum. Þegar till. komu um ráðstöfun á fjárupphæðum og upplýsingar um það aftur á móti frá hafnamálaskrifstofunni, hvernig verja skyldi þessu fé, þá var allt annað, sem kom þá í ljós, heldur en gert er ráð fyrir varðandi framkvæmd þessa bráðabirgðaákvæðis. Það var sýnilegt, að meginhlutinn af þessu fjármagni átti að fara til framkvæmda við hafnir án tillits til þess, hvernig þessi mál að öðru leyti stæðu.
Ég skal ekki orðleng,ja frekar um málið, tími minn er búinn, en ég tel, að það þurfi ýmislegt að athuga frekar í sambandi við þetta mál og það sé augljóst, að það verður að halda áfram í 2–3 ár enn þá að veita verulega upphæð í fjárlögum til þess að standa við bakið á þeim hafnarsjóðum, sem erfiðast eiga.