27.11.1973
Sameinað þing: 24. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 898 í B-deild Alþingistíðinda. (777)

108. mál, fjármál hafnarsjóða

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Út af því, sem hv. 5. þm. Norðurl. e. sagði áðan, nægir mér í raun og veru að vísa til þess, sem hv. 2. þm. Vesturl. sagði, að það, sem nauðsyn bar til að gera, var að athuga þetta mál mjög gaumgæfilega, áður en það væri afgreitt. Ég hafði ekki afskipti af undirbúningi málsins, nema ég tók það fram, þegar lánið var útvegað, sem var snemma sumars, — mun hafa verið í júnímánuði, sem fyrirheit fékkst um þessa lánsútvegun, — að þetta yrði eingöngu að nota í sambandi við eldri skuldir, en ekki til framkvæmda.

Hins vegar vil ég taka það fram, eins og kom líka fram hjá hv. 2. þm. Vesturl., að þessi aðferð lokar engri leið til þess að veita þeim höfnum styrk, sem á styrk þurfa að halda. Þegar verður farið að borga af þessu láni og endurgreiða þetta, verður hægt að meta þær hafnir, sem í mestum erfiðleikum eiga. Hafnabótasjóður hefur þá möguleika til að styrkja og ríkissjóður getur þá hlaupið undir bagga í því tilfelli, ef þess er talin þörf. Þess vegna er engri leið lokað til styrktar, heldur er málinu komið fyrir á þann hátt, að leyst er úr brýnustu þörfum þeirra hafna, sem njóta þessa fjár, og síðar meir er hægt að ákveða það, hvort um beinan styrk þarf að vera að ræða.