27.11.1973
Sameinað þing: 24. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 900 í B-deild Alþingistíðinda. (780)

372. mál, nýbygging Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri

Fyrirspyrjandi (Lárus Jónsson) :

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin, þó að þau hafi verið afslöpp að ýmsu leyti í sambandi við þessar spurningar, og vera má, að þær hafi verið klaufalega orðaðar að sumu leyti. Ég vil þó aðeins segja í sambandi við það, að hann bendir á, að ég seilist til þess að spyrja hann um það, sem aðrir ráðh. ættu frekar að svara, að þá kom til nokkurra orðahnippinga hér á milli okkar hæstv. heilbrrh, út af þessu máli í fsp.-tíma, þegar hann var ekki við hér. Mér var ómögulegt að skilja annað á þeim hæstv. ráðh. en að ég ætti að spyrja þann, sem réði fjármálum ríkisins, að ýmsu því, sem ég var þá að spyrja hann, þannig að það fer að verða vandi fyrir hv. þm., ef ráðh. vísa hver á annan, þegar verið er að ræða mál þeirra hér á hv. Alþ.

Ég vil taka undir þau orð hæstv. fjmrh., að auðvitað verður að vinna að þessu verki á skynsamlegan hátt og eðlilegan. En ég vil enn ítreka það, hvað hér er brýn þörf. Á Akureyri er sjúkrahús, sem hefur búið við sama húsakost um 20 ár. Starfsemi þessa sjúkrahúss hefur gerbreyst, eins og auðvitað öll heilbrigðisþjónusta í landinu, á svo löngum tíma. Það hefur verið bætt við tækjakosti, það hefur verið komið á stofn nýjum deildum, og það hefur verið reynt að vinna eins og mögulegt er innan veggja þessarar gömlu byggingar og þröngu. En nú er svo komið, ekki síst vegna þess að vöxtur í þessum efnum hefur verið mjög mikill á allra síðustu árum, að stefnir í hreint öngþveiti, og ég vil vænta þess, að hæstv. ráðh., hvor á sínu sviði, fjármála og heilbrigðismála, geri sér grein fyrir því, hvað hér er mikil vá fyrir dyrum og hve mikil nauðsyn er á því a. m. k. að hraða fyrstu áföngum þessarar byggingar. Ég er ekki með þessum fsp. hér á hv. Alþ. að reyna að koma þessum ágætu mönnum í klípu hér í pólitískum tilgangi, heldur að reyna að vekja athygli þeirra og hv. þm. á því, hvað hér er um mikið mál að ræða og hvað verður að reyna að stíga vel í ístaðið, a. m. k. á næstu árum, til þess að leysa brýnan vanda, sem steðjar að Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.