27.11.1973
Sameinað þing: 24. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 904 í B-deild Alþingistíðinda. (785)
374. mál, ferðamál
Fyrirspyrjandi (Heimir Hannesson) :
Herra forseti. Ferðamál eru nú mjög á dagskrá í þessu landi og verða vafalaust í þinginu á næstunni. Í framhaldi af því hef ég leyft mér að leggja fram nokkrar fsp. til hæstv. samgrh. um þau mál. Þær eru:
„1. Hvað líður framhaldsathugunum á vegum Sameinuðu þjóðanna um þróun íslenskra ferðamála ?
2. Hafa ráðstafanir verið gerðar til að tryggja fé til þeirra, og hver yrði hlutur Íslands í því sambandi?
3. Hafa verið gerðar ráðstafanir af opinberri hálfu til að leysa hreinlætisvandamál á fjölförnum ferðamannastöðum?
4. Hafa ráðstafanir verið gerðar til að kynna alþjóðlegum fjármálastofnunum umræddar áætlanir og hugsanlega þörf á lánveitingum vegna framkvæmda í ferðamálum?“
Áður en hæstv. ráðh. svarar þessum fsp., vil ég leyfa mér að hafa örfá orð um stöðu þessara mála í dag og framtíðarviðhorf. Segjum, að íslensk ferðamál séu nú að ýmsu leyti á nokkrum tímamótum vegna nýrra viðhorfa, þannig að ekki verði hjá því komist að hefja stefnumörkun sem fyrst í málefnum þessa tiltölulega nýja atvinnuvegar, og á það bæði við lagasetningu, mikilvæg framkvæmdaatriði og ráðstöfun og öflun á fjármagni. Við búum enn við ferðamálalöggjöf, sem þarfnast brýnnar endurskoðunar með tilliti til þessara nýju viðhorfa, og segja má, að íslensk ferðamál hafi þróast á þann veg, er þau hafa gert, þrátt fyrir gildandi löggjöf, en ekki vegna hennar. Nú hefur hæstv. ráðh. lagt fram nýtt frv. að ferðamannalöggjöf, og verður það vafalaust rætt nánar hér í þingsölum, og skal ég ekki ræða það nánar.
Það er alkunna, að fáar atvinnugreinar í heiminum hafa vaxið jafnört á síðustu árum og margvísleg ferðaþjónusta. Orsakirnar eru margvíslegar, m. a. aukinn frítími, bylting í samgöngum og batnandi lífskjör, og þar að auki sívaxandi alþjóðleg samvinna á mörgum sviðum. Alþjóðlegar fjármálastofnanir hafa látið sig þetta miklu skipta, sérstaklega á síðari árum, og þó einkum Alþjóðabankinn og stofnanir hans, og hafa þær ýmist lánað eða lagt fram í ýmsu formi mikið fjármagn til margra þátta ferðamála. M. a. er svo langt gengið, að vegamál hafa verið einn þáttur í slíkri lánastarfsemi. Býr þar að baki sú skoðun, að fátt sé líklegra til að skapa gjaldeyrissnauðum löndum með einhæfa atvinnuvegi vaxandi gjaldeyristekjur, og ekki síður sú staðreynd, sem okkur hættir stundum að taka of oft sem sjálfgefna, að þróun ferðamála færir menn og þjóðir nær hvort öðru, þar sem oft skapast tengsl og vinátta og aukinn skilningur á milli þjóða og einstaklinga. Hvað er líklegra en slík samskipti til að stuðla að þeim friði og skilningi í heiminum, sem allir eru sammála um að vinna að?
En víkjum þá örlítið að stöðunni hjá okkur sjálfum. Hjá okkur tengjast ferðamál á einn eða annan hátt við flest svið í þjóðlífi okkar og e. t. v. í ríkari mæli en við gerum okkur sjálf ljóst daglega. Ég vil nefna aðeins örfá grundvallaratriði, sem hafa ber í huga.
Hinir beinu viðskiptahagsmunir eru fjölþættari en í nokkurri annarri atvinnugrein. Hin óbeinu áhrif eru margvísleg, m. a. þau, að samkv. alþjóðlegum rannsóknum eru margfeldisáhrif þess fjár, er ferðamaðurinn skilur eftir, sjöföld í efnahagskerfinu miðað við aðrar atvinnugreinar. Frá sjónarmiði byggðastefnu er ferðamannaþróun æskileg, m. a. vegna fjármagnsdreifingar og valddreifingar. En þar er þó ekki sama, hvernig á er haldið. Loks mega menn ekki gleyma því, að þróun ferðamála er í rauninni forsenda þess, að við Íslendingar getum rekið og stjórnað sjálfir okkar eigin samgöngukerfi, og er það fyrst og fremst átt við flugmálin.
Þetta var hluti af kostunum. En vissulega getur líka verið viss hætta á ferðum, ef — og ég segi aftur: ef við kunnum ekki að sýna hófsemi og varkárni, þar sem það á við. Ég á hér við þá hættu, sem fólgin er í því, að ört vaxandi ferðamannastraumur geri umhverfisvandamál okkar alvarlegri en þau nú eru. Þetta er margfalt stærra vandamál en svo, að hægt sé að ræða það hér. En ég vil leggja áherslu á tvennt.
Að sjálfsögðu eigum við aldrei að stiga neitt skref í þessum málum nema skoða umhverfisog náttúruverndarmálin rækilega. En það er um leið bjargföst skoðun mín, að í þessum málum sem öðrum sé stefnumarkandi skipulag líklegra til árangurs en skipulagsleysi mótað af einangrunarhugmyndum. Ég held, að við varðveitum aldrei óspillta náttúru þessa lands með því að girða hana af. Meginmarkmiðið hlýtur því að vera að tryggja eðlilega þróun þess atvinnuvegar með það í huga að styrkja grundvöll þjóðarbúsins, auka valddreifingu og virka byggðastefnu, um leið og við tökum fulli tillit til umhverfisverndar og þeirrar framtíðarstefnu að varðveita landið og kosti þess, jafnt til hags og ánægju fyrir landsmenn sjálfa og þá gesti, er vilja sækja okkur heim. Ég treysti því, að hæstv. samgrh., ríkisstj. og Alþ. muni hafa þar góða forustu og sú stefnumörkum verði tekin, er hér hefur verið reynt að lýsa.