27.11.1973
Sameinað þing: 24. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í B-deild Alþingistíðinda. (788)
374. mál, ferðamál
Fyrirspyrjandi (Heimir Hannesson) :
Herra forseti. Ég vil þakka samgrh. fyrir greinargóð svör og vil fara um þau örfáum orðum.
Í þessari frumskýrslu um fjögur þróunarsvið, sem fyrir liggur, held ég, að sé mjög margt athyglisvert, þó að vissulega megi um margt deila. Ég vil taka undir hluta af því, sem hv. þm. Eysteinn Jónsson sagði. Ég er honum fyllilega sammála um, að við eigum engar þær meiri háttar framkvæmdir að gera í ferðamálum, sem koma ekki heim og saman við okkar eigin hagsmuni, hagsmuni Íslendinga sjálfra. En ég er hins vegar honum ósammála um þá skýrslu, sem hefur verið gerð og ég lít á sem bráðabirgðaskýrslu, en tek undir það, að þar eru vissulega ýmsir hlutir, sem geta komið þjóðinni til góða jafnt sem erlendum ferðamönnum. Ég held, að þessi fjögur svið, sem þarna eru rædd, séu öll athyglisverð, en vissulega verður að kanna þau mun betur. Margar forsendur skortir, m. a. í sambandi við lax- og silungsveiði í ám og vötnum. Þá skortir fullkomnari rannsóknir á fiskeldi víða um land. Það er sjálfsagt að halda þessu áfram og kanna möguleika á ákveðnum framkvæmdum og staðarvali þeirra.
Ég fagna því, að ríkisstj. hefur tekið ákvörðun um að kanna þetta mál nánar, þótt að sjálfsögðu hafi engar endanlegar ákvarðanir verið teknar um neitt fyrir framtíðina. Ég get þó ekki hjá því komist, eins og hv. þm. Eysteinn Jónsson, að gagnrýna mjög harðlega þær áætlanir, sem fyrir liggja, að því leyti, að af fjárfestingaráætlunum upp á 2250 millj. kr. er gert ráð fyrir svo að segja öllu — eða yfir 90% af fjárfestingunni — í eða við þéttbýlissvæðið við Faxaflóa. Ég gagnrýni það mjög harðlega, en vilja jafnframt leggja þann skilning í það, að hér er um að ræða sérfræðilegar till., sem á eftir að skoða betur, á eftir fylgir pólitískt mat, og ég treysti mjög vel hæstv. samgrh. og ríkisstj. í heild til að draga þar af réttar ályktanir. Mér finnst ekki óeðlilegt, — ef vikið er að þessum till. aftur, sem hafa verið gerðar mikið til opinberar, þó að þeim hafi e. t. v. ekki verið dreift hér á Alþ. nema að hluta, — að ráðstefnuuppbyggingin verði mikið til í tengslum við höfuðstaðinn. En ef af hinum miklu framkvæmdum verður í sambandi þá miðstöð, þar sem á að stunda skíðaiðkanir að vetrarlagi og heilsuræktaraðstöðu árið um kring, auk fjölmargs annars, þá á að setja þá miðstöð á stofn annars staðar á landinu, ekki eingöngu af byggðasjónarmiðum, heldur einnig af hreinum hagkvæmnissjónarmiðum. Mér dettur ekki í hug að koma fram með neinar till. að þessu sinni til hæstv. ráðh., en ég treysti því, að hann og ríkisstj. muni taka fullt tillit til þess byggðasjónarmiðs, ef af verður.
Í sambandi við atriði nr. 2, um hreinlætisástandið, þá þarf ekki að fara um það mörgum orðum. Það er hreint ófremdarástand, og er það því miður ekki í samræmi við nýsamþykkt náttúruverndarlög. En ég vil leggja áherslu á það, að vandamálið er fyrst og fremst til vegna þess, að nánast engar ráðstafanir hafa verið gerðar eða mjög ófullnægjandi. Það er auðvelt að kippa þessu í lag, ef skilningur er fyrir bendi, og annað er ekki mannsæmandi, ekki endilega vegna erlenda ferðafólksins, heldur fyrst og fremst okkar sjálfra vegna.
Að því er varðar kynningu gagnvart alþjóðlegum fjármálastofnunum, þá er það rétt hjá hv. þm. Eysteini Jónssyni, að á þessu stigi er ekki tímabært að leggja fram neinar ákveðnar till., einfaldlega vegna þess, að þær eru ekki fyrir hendi. En ég held, að það mundi ekki saka og það mundi flýta fyrir þróun þessa máls, ef alþjóðlegum fjármálastofnunum væri gerð grein almennt fyrir hug og framtíðarfyrirætlunum Íslendinga í þessum málum. Þetta mál er búið að vera á dagskrá síðan 1968, og báknið er víst nægilega þungt til þess, að ekki veiti af a. m. k. að halda þessu máli í gangi.