28.11.1973
Neðri deild: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 932 í B-deild Alþingistíðinda. (823)

40. mál, gjaldaviðauki

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson) :

Herra forseti. Frv. á þskj. 41 er gamall kunningi, sem hefur verið flutt a. m. k. á öllum þeim þingum, sem ég hef setið, en það er um heimild til að innheimta gjöld með viðauka. Þetta frv. er alveg shlj. þeim, sem áður hafa verið flutt um slíkar heimildir. Það var lagt fram á sínum tíma í hv. Ed., og varð þar samstaða um að afgreiða það óbreytt, og ég vona, að eins verði hér í þessari hv. d., að það hljóti sama byr og verið hefur. Hygg ég, að svo muni verða, þangað til tekist hefur að koma því í framkvæmd, sem ég og fleiri hafa rætt um, að taka alla tekjuinnheimtu ríkissjóðs til meðferðar og stefna að því að hafa í einum lagabálki, þá gæti slíkt gjald sem þetta fallið niður. En út í það ætla ég ekki að fara, heldur leyfi mér að fara fram á það, að málinu verði vísað að lokinni þessari umr. til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.