28.11.1973
Neðri deild: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 932 í B-deild Alþingistíðinda. (825)

89. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson) :

Herra forseti. Hér er um lítið frv. að ræða um breyt. á l. um Verðlagsráð sjávarútvegsins og flutt að beiðni verðlagsráðsins. Hér er um minni háttar skipulagsbreytingu að ræða, aðallega varðandi verðlagningu á sjávarafurðum. Meginatriðið er, að svonefnd síldardeild er lögð niður í því formi, sem hún var í, og nú er gert ráð fyrir sérstakri síldarsöltunardeild, sem fjalla á um verðlagningu á síld til söltunar, og svo aftur bræðsludeild, sem fjallar ekki aðeins um síld til bræðslu, heldur einnig verðlagningu á öðrum bræðslufiski, þar sem getur verið um að ræða ýmsar aðrar tegundir. Það hefur sem sé komið í ljós, að það er miklu eðlilegra og æskilegra fyrirkomulag, sem hér er lagt til, og þykir sjálfsagt að verða við því.

Frv. hefur þegar fengið afgreiðslu í hv. Ed., og vænti ég, að svo verði hér einnig í þessari hv. d. Ég legg til. að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til sjútvn. til fyrirgreiðslu.