28.11.1973
Neðri deild: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 935 í B-deild Alþingistíðinda. (831)
107. mál, lántökuheimild vegna framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar 1973
Fjrmrh. (Halldór E. Sigurðsson) :
Herra forseti. Það segir gamalt máltæki, þegar menn verða undrandi: „Á dauða mínum átti ég von, en ekki þessu.“ Get ég tekið undir það, því að á honum geta menn alltaf átt von, en ég átti ekki von á, að hv. þm. af Suðurlandi kæmi hér upp til að mótmæla þessu frv. Ég verð að segja það, að ræða hv. þm. Guðlaugs Gíslasonar kom mér sannarlega á óvart.
Eitt ef því, sem gerðist á s. l. vetri, var það, að undir vorið leiddi Alþjóðabankinn það í tal við einn af bankastjórum Seðlabankans, að hann væri til viðtals um það eða vildi athuga, hvort hann gæti orðið Íslendingum að liði, vegna eldgossins í Vestmannaeyjum. Og það, sem þeir töldu, að helst væri hægt að gera í þeim efnum, var að styðja við uppbyggingu hafna á Suðurlandi, og þá fyrst og fremst að athuga þær hafnir, sem Vestmannaeyjaflotinn hafði notað í fyrravetur.
Þegar við vorum með afgreiðslu á framkvæmda- og fjáröflunaráætlun fyrir árið 1973, var gengið mjög hart fram af hendi þeirra Sunnlendinga um að fá fjárveitingu eða fjármagnsútvegun til hafnargerðar í Þorlákshöfn. Hún var þá talin sú höfn af þeirra hendi, sem þeir bæru mest fyrir brjósti og nauðsyn bæri til að útvega fé til og var þá talað um 40 eða 80 millj. kr. til að byrja með til þess að gera þá höfn úr garði þannig, að hún væri sæmileg. Það mun ekki hafa farið fram alllítil umræða um það í fyrravetur, að flotinn, sem landaði í Þorlákshöfn, væri í mikilli hættu vegna þeirra þrengsla, sem væru í höfninni, eftir að Vestmannaeyjaflotinn var þangað kominn. Það var líka vitað, að Grindavíkurhöfn var meingölluð, og þar fórust skip svo sem kunnugt er, og þar voru líka geysileg þrengsli.
Strax eftir að Vestmannaeyjagosið hafði átt sér stað var farið að virða fyrir sér möguleika á því að reyna að bæta úr þessu. Grindavík var að því leyti talin best, að þar var hægt að gera stórátak á stuttum tíma og með tiltölulega hóflegum kostnaði. Öllum var ljóst, að hér var um mikinn kostnað að ræða, sem ekki yrði hjá komist að leggja í, en lagfæring Grindavíkurhafnar var talin hentugust, sérstaklega vegna þess, eð þar fengist mikið viðlögupláss og væri hægt að framkvæma það á stuttum tíma. Það var því raunverulega í fyrravetur strax ákveðið að taka Grindavík til sérstakrar meðferðar til þess að veita Vestmannaeyjarflotanum aðstöðu.
Seint á þinginu í fyrravetur, þegar var verið að ganga endanlega frá framkvæmdaáætluninni, kom það upp hjá hv. þm. Sunnl. og fleirum að athuga einmitt um stórátak í hafnargerð á Suðurlandi vegna Vestmannaeyja. Það var afgreidd hér þáltill. og sett í það sérstök n. Áður en þessi n, hóf starf og ég held áður en hún var kosin, höfðu menn komið frá Alþjóðabankanum og gert sér grein fyrir þessum málum og farið að velta fyrir sér möguleikum á því að koma hér upp bættri aðstöðu í höfnum, sem væru nálægt þeim miðum, sem Vestmannaeyjahátarnir sóttu á. Engir vissu þá um, hvort það færi svo vel, að gosinu lyki eins snemma og það gerði, og var þó þá sannarlega nóg komið. Að þessu máli var svo haldið áfram að vinna, og þegar n. sú, sem hæstv. fyrrv. samgrh. skipaði, tók til starfa, var þetta eitt af því, sem hún vann að ásamt sérfræðingum frá Alþjóðabankanum.
Það er ljóst og þarf engum orðum að því að eyða, að það voru engir möguleikar til fyrir Íslendinga að fá lán úr Alþjóðabankanum til hafnargerða nema vegna þess, að það var bundið við að bjarga Vestmannaeyjaflotanum. Það var líka ljóst á þeim tíma, sem var verið að vinna að þeim málum, að ef hefði átt að gera þá höfn úti í Vestmannaeyjum, þá hefði af þeirra hendi ekki verið um þetta mál að ræða. Þessar aðgerðir voru miðaðar við, að það væri hægt að bjarga Vestmannaeyjaflotanum, án þess að hann kæmi í sína heimahöfn. Það þarf ekki neinum orðum að því að eyða, og þetta mál kom svo fyrir ríkisstj. eftir að n. hafði unnið vel og samviskulega og skilað sama sem samhljóða áliti um það. Þegar það kom þangað, var farið að draga úr eldgosinu, og var það álit sumra manna, sem um þessi mál höfðu fjallað og höfðu kynnt sér, að það gæti verið nokkur vafi á því, hvort Alþjóðabankinn héldi við það að veita þessi lán, ef það væri ljóst, að Vestmannaeyjaflotinn gæti notið sinnar heimahafnar. Það var því ákvörðun ríkisstj. að taka þessu boði, og með þeim hætti taldi hún sig tryggja það, að Vestmannaeyjaflotanum væri borgið, jafnvel þó að svo illa tækist til, að gosið héldi áfram. Hann fengi gott hafnarrými á þeim stöðum, sem næst væru heimahöfninni, og væri ekki hægt að tryggja það betur, en með hafnarbótum í Þorlákshöfn og í Grindavík. Höfuðáherslan í framkvæmd var lögð á Grindavík, vegna þess hvað var fljótvirkt að ná þar verulegum árangri, en Þorlákshöfn var miklu stærra mál. Það var líka ljóst öllum, sem um það fjölluðu, og þarf ekki að ræða um það hér á hv. Alþingi og ætti síst af öllu að þurfa að kynna það fyrir þm. Sunnl. að Þorlákshöfn væri höfn, sem þyrfti uppbyggingu og gæti ekki staðist eins og hún væri. Þess vegna var talið rétt að tengja þetta saman, og ríkisstj. tók þessa ákvörðun, enda þótt hún vissi, að það mundi koma fram gagnrýni á þetta. En það var ekki reiknað með, að gagnrýnin kæmi frá þm. Sunnl. það verð ég að segja, það kemur mér spánskt fyrir sjónir. Ég vil líka endurtaka það, sem ég hef áður sagt á öðrum stað, að þessi aðgerð kemur ekki í veg fyrir uppbyggingu á höfnum landsins. Það þarf enginn að láta sér detta í hug, að Alþingi hefði komist hjá því, að veita verulegar fjárhæðir til uppbyggingar á höfnum eins og Grindavík, Þorlákshöfn og Höfn í Hornafirði. Þó að hv. þm. vilji reyna að halda því fram núna, þá stenst það ekki. Það er heldur enginn að segja, að það eigi ekki að sinna málum Vestmannaeyja, þó að þetta sé gert, heldur er með þessu verið að gera öruggar hafnir í nánd við Vestmannaeyjamiðin út af því ástandi, sem ríkti, þegar ákvörðunin var tekin. Og það er verið að nota þá möguleika, sem voru til þess að bæta úr hafnarmálum á Íslandi, svo sem full þörf var að gera, með þessum hætti, sem þarna gafst tækifæri til. Þess vegna verð ég að segja það, að ég skil ekki, að hv. 9. þm. Sunnl. skuli vera að agnúast út af því, að út í þessar framkvæmdir skuli vera farið.
Það, sem er svo gert til þess að mæta þessu heima fyrir, er ákvæði í heimildagrein fjárl. Það var ekki talið hyggilegt á því stigi málsins, meðan var verið að ganga frá þessu máli við Alþjóðabankann, að bæta Vestmannaeyjum við, ef það ákvæði gæfi meira. En ég vil segja það, að ef það ákvæði gæfi meira en framlagið þarf að vera á móti þessu láni, þá er ekkert eðlilegra en að nota það til Vestmannaeyjahafnar, eftir að það er nú komið á daginn, sem betur fer, að gosið er liðið hjá.
Hinu held ég fram, að þessi aðgerð flýti framkvæmdum í höfnum á Íslandi. Hún var besta ráðið til þess að koma í veg fyrir það, að Vestmannaeyjaflotinn lenti í stórkostlegri hættu vegna hafnleysis, ef gosið hefði haldið áfram eða höfnin orðið ónýt. Það þarf enginn að segja mér, að það hefði verið hægt að bjarga því máli á betri veg. Það var líka vitað, að jafnvel þótt gosið hætti, gæti höfnin verið ónýt í bili, Þess vegna held ég, að hér hafi verið vel og viturlega ráðið, og ég sé ekki, að það eigi að taka hv. alþm. langan tíma að styðja þetta mál til framgangs, því að það hefur verið afgr. hér á Alþingi á styttri tíma mál, sem til minni heilla hefur horft fyrir þjóðina en þetta mál gerir.