25.10.1973
Sameinað þing: 7. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í B-deild Alþingistíðinda. (86)

346. mál, innflutningur júgóslavneskra verkamanna

Fyrirspyrjandi (Bjarni Guðnason):

Herra forseti. Það hefur komið fram í sumum blöðum borgarinnar, enn fremur í sjónvarpi, að ég hygg, að mjög kæmi til mála, að fluttir yrðu inn júgóslavneskir verkamenn í sambandi við Sigölduvirkjun. Þetta eru vissulega mikil tíðindi og mundu teljast nokkur þáttaskil í atvinnusögu þjóðarinnar, ef rétt væri. Þykir mér þetta mál þannig vaxið, að rétt sé að vita hið sanna í málinu, og þess vegna hef ég borið fram þessar spurningar til hæstv. félmrh., til þess að fá úr því skorið, hvort nokkur fótur sé fyrir þessu, og yfirleitt, hvernig þessi mál standa.

Ástæðulaust er að lesa upp þessar spurningar, en ég vænti svars hæstv. félmrh.