03.12.1973
Neðri deild: 33. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 977 í B-deild Alþingistíðinda. (873)

107. mál, lántökuheimild vegna framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar 1973

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Ég hafði kvatt mér hljóðs í þessu máli s. l. miðvikudag tiltölulega snemma í umr. og ætlaði að spyrja hæstv. fjmrh. nokkurra spurninga út af þessu máli og þessari heimild til handa ríkisstj. að taka hjá Alþjóðabankanum lán til 3 hafna, en hæstv. ráðh. tók þá til máls og talaði hér það lengi, að aðrir komust ekki að, þannig að hann verður að afsaka, þó að ég komi hér og spyrji enn nánar um þetta mál, sem ég tel vera þess eðlis, að ýmsar upplýsingar varðandi það liggi ekki fyrir.

Það, sem mér liggur aðallega á hjarta í þessu efni, er að fá upplýst, hvernig ástatt sé með almenna hafnaáætlun í landinu. Við vitum, að það hefur verið unnið að slíkri áætlanagerð, en ekkert liggur fyrir um þetta efni mér vitanlega, og væri ekki úr vegi, að hæstv. ríkisstj. sæi til þess, að þessi áætlun yrði gerð núna, þegar á að fara að taka eitt þúsund millj. kr. lán til þriggja hafna í landinu. Við vitum, að það er þröngt fyrir dyrum margra byggðarlaga í þessum efnum, og mönnum hlýtur að vera heldur sárt að sjá tiltölulega lítilvæg vandamál, sem hægt væri að leysa í fiskihöfnum úti á landi, ef fjármagn fengist til, — mönnum hlýtur að vera sárt að sjá slíkt, á sama tíma sem á að fara að gera svo myndarlega sem hér er lagt til fyrir einungis þrjú byggðarlög í landinu. Þess vegna væri þetta mál allt annað og öðruvísi vaxið, ef það lægi fyrir, hvenær aðrir fengju sína úrlausn. Ég vil benda á, að í sambandi við lántökur til hraðbrautarframkvæmda á sínum tíma, urðu allmiklar umr. um það hér á hinu háa Alþ. og bent á, að víða væri pottur brotinn í vegamálum og hér væri lagt í verulegar framkvæmdir, sem kæmu fyrst og fremst þéttbýlinu til góða. En þegar í þessar aðgerðir var ráðist, lágu fyrir áætlanir um uppbyggingu vega úti um land, svo að menn gátu nokkurn veginn séð, hvenær kæmi að þeim um samgöngubætur. Og á þetta vil ég leggja mikla áherslu í þessu máli, að það væri auðvitað allt annað aðgöngu fyrir hv. Alþ., ef menn vissu yfirleitt nokkuð um það, hvernig yrði staðið að öðrum hafnarframkvæmdum í landinu á næstu árum.

Hæstv. fjmrh. ræddi hér nokkuð um hafnamálin í ræðu sinni s. l. miðvikudag og taldi, að myndarlega væri að þeim staðið af núv. hæstv. ríkisstj., miklu myndarlegar en áður af fyrrv. ríkisstj. Hann benti á það, að í fjárlögum væru núna um 600 millj. til framkvæmda í höfnum, en hefðu ekki verið nema um 200 millj., ef ég man rétt, árið 1971. Nú er því til að svara, að á þessu ári er ætlast til þess, að mér skilst, að þessar 600 millj. kr. séu líka vegna ákveðinna framkvæmda, sem jafnan hafa verið utan fjárlaga áður, svo sem til hafna á Norðurlandi samkv. Norðurlandsáætlun, en þær upphæðir hafa ekki verið á fjárlögum fyrr en nú. Þess vegna er þessi tala svolítið villandi. En jafnvel þótt svo væri ekki, þegar tekið er tillit til verðhækkana á þessu tímabili, frá 1971–1974, sem eru örugglega meira en 100%, þegar tekið er tillit til þess, að árið 1974 á ríkissjóður að taka meiri þátt í kostnaði við hafnargerðir en hann gerði 1971, þegar tekið er tillit til þess, að þjóðartekjur okkar hafa hækkað allverulega vegna góðæris í landinu og þegar tekið er tillit til þess, að nú eru ekki tekin 30% af þjóðartekjum í skatta af fólki, heldur 35%, þá held ég, að þessar tölur, sem hæstv. ráðh. gumar svo af um hafnarframkvæmdir í landinu, fari að líta svolítið öðruvísi út. Ég held, að í raun og veru verji þjóðin minna fé árið 1974 til annarra hafna á landinu en þessara þriggja samkv. fjárlfrv. heldur en hún gerði 1971 hlutfallslega af sínum þjóðartekjum.

Þegar þetta er skoðað, þá er ljóst, að stefna ríkisstj. er sú í hafnarmálum, að það liggur engin hafnaáætlun fyrir, það er ekki varið meira fé af raunverulegum þjóðartekjum, en áður til annarra hafna en þessara þriggja, það hefur verið haft að engu ákvæði í hafnalögum, sem voru samþ., á Alþ. aðeins fyrir nokkrum mánuðum, um að létta skuldabyrðar þeirra hafna, sem verst eru settar vegna langra lána, en á sama tíma sem þetta er gert á að taka þúsund millj. kr. lán til þess að verja í þrjár hafnir á landinu.

Hæstv. ráðh. sagði, að það skorti upplýsingar um stöðu hafnasjóðanna, til þess að hægt væri að taka fé á fjárlög til að létta byrðar þeirra hafnarsjóða, sem verst eru settir. Hvernig má það vera, að það skorti upplýsingar til að gera það, þegar það skorti ekki upplýsingar til að skipta 40 millj., eins og gert var fyrir nokkrum mánuðum, milli þessara hafnarsjóða? Að vísu var það fé veitt sem lán með 111/2% vöxtum, þannig að þar var um að ræða allt aðra aðstoð en hafnalögin gera ráð fyrir, en þessu fé var þó væntanlega skipt miðað við þarfir hafnarsjóðanna.

Hvernig má það þá vera, að nokkrum mánuðum seinna sé ekki hægt að taka fé inn á fjárlög til þess að gera hliðstætt? Ég held, að allir, sem þekkja til fjármála hafnarsjóðanna, hljóti að vera sammála um það, að 40 millj. kr. lántaka til að lengja örlítinn hluta af lánum hafnarsjóðanna, sem munu vera um 1100 millj. kr. í heild, — lántaka upp á 40 millj. á 11½% vöxtum til þess að lengja hluta af þessum lánum er sáralítil sem engin aðstoð. Þetta var þó gert, og þessu var jafnað einhvern veginn á milli hafnanna. Það kom fram í svari hæstv. ráðh. í fyrirspurnatíma um daginn, hvernig þetta hefði verið gert, og ef skortir upplýsingar til þess að taka fé inn á fjárlög til að skipta á milli hafnarsjóðanna nú, hvernig var þá hægt að gera þetta með einhverjum sæmilega skynsamlegum hætti?

Ég held það sé margt annað í þessu máli, sem væri vert að athuga hér á hv. Alþ. Hæstv. ráðh. sagði á miðvikudaginn, að það væri ekkert að gera fyrir Alþ. annað en að veita þessa heimild eða, ef henni yrði synjað, þá fengjum við ekkert lán. Það er sem sagt um algera úrslitakosti að ræða, að mér skilst, frá hálfu Alþjóðabankans, ef þetta fé fer ekki í þessar umræddu hafnir, þá fæst ekkert fé.

Ég held, að það sé umhugsunarvert fyrir Alþ. Íslendinga, hvernig það á að taka á svona málum. Á að flytja fjármálavald, verulegt fjármálavald úr höndum Alþ. og ríkisstj. til alþjóðastofnana? Verður ekki a. m. k. að gera ráðstafanir til þess, ef slíkt fé er fengið, að öðrum aðilum sé þá sinnt með einhverjum hætti, t. d. með því að gera heildaráætlun um viðkomandi framkvæmdir, eins og gert var á sínum tíma út af lántöku til hraðbrauta og vegamálum? Það kann að vera nauðsynlegt að taka slík lán, þó að mér finnist þarna vera um afarkosti að ræða, þegar sagt er skýrt og ákveðið: Þú færð þessa peninga, ef þú verð þeim svona, annars færðu þá ekki. — Með þessu er verið að taka gífurlegt fjármálavald úr höndum þeirra aðila, sem eiga að hafa það með höndum, og í rauninni er verið að hlutast til um innanríkismál landa, þegar ríkisstjórnir eiga í hlut.

En við skulum segja sem svo, að þetta sé nauðsynlegt að gera á ýmsum sviðum að einhverju marki, en þá tel ég það algera forsendu fyrir slíku, að það liggi fyrir, hvernig eigi að sinna öðrum aðilum í sama málaflokki, eins og gert var á sínum tíma, þegar lán var tekið til vegaframkvæmda.

Ég var mjög undrandi, þegar ég heyrði hæstv. ráðh. vera að reyna að halda því fram hér á hinu háa Alþingi, að það þyrfti að veita honum þessa heimild til að taka þetta lán til þriggja hafna á landinu, mikilla framleiðslustaða, eins og hann sagði, með þeim rökstuðningi, að þetta sé byggðastefna.

Í fyrsta lagi vil ég gera þá athugasemd við þetta, að ég held, að þarna sé um að ræða ónauðsynleg rök hjá hæstv. ráðh. Að sjálfsögðu þarf hann ekki nein slík rök til þess að taka þetta lán. Ef þarf að taka slík lán til þess að gera þessar aðgerðir, þá er það af allt öðrum ástæðum heldur en vegna byggðastefnu. En ég vil í sambandi við þetta spyrja hæstv. ráðh.: Hvernig skilur hann hugtakið byggðastefna. Hvað er byggðastefna? Hv. þm. framsóknarmanna hafa ýmsir flutt hér till. á Alþingi um byggðamálin, og þegar þeir voru í stjórnarandstöðu, vissu þeir nákvæmlega, hvað byggðastefna var. En svo brá við, að þegar þeir komust í ríkisstj., þá fluttu þeir till. um að skipa n. til þess að móta byggðastefnuna. En hvað er byggðastefna? Ég get ekki, eftir að hafa hlýtt á ræðu hæstv. ráðh., komið því heim og saman, að við höfum sama skilning á hugtakinu byggðastefna. Er það byggðastefna að hjálpa þeim byggðarlögum, sem halda vel sínum hlut í fólki og eru góðir framleiðslustaðir og blómgast og dafna? Er það sérstök byggðastefna? Eða er það byggðastefna að reyna að verja fjármunum og stuðla að framkvæmdum í þeim landshlutum, sem eiga við erfiðleika að stríða og þaðan sem fólk flytur, þar sem fólki fækkar, beint eða hlutfallslega?

Hæstv. ráðh. jafnaði jafnvel þessu láni við Vestfjarðaáætlun á sinum tíma, — áætlun, sem var tekið lánsfé til og varið eftir þeirri áætlun til þess að efla byggð í heilum landshluta, í landshluta, þar sem hefur oft á tíðum beinlínis fækkað fólki vegna fólksflótta. Er hægt að kalla það sama nafni að verja fé eftir fyrir fram gerðri áætlun til þess að koma á brýnum framkvæmdum í slíkum landshluta og að verja fé, eins og hæstv. ríkisstj. ætlar að gera núna, á 3 staði á landinu til hafnarmála, án þess að það liggi nokkuð fyrir um það, hvernig eigi að standa að hafnarframkvæmdum á öðrum stöðum á landinu, einmitt á þeim stöðum á landinu, sem hafa við mestan byggðavanda að stríða.

Ég held, að hæstv. ráðh. hafi seilst nokkuð langt, þegar hann fór að tala um, að þarna gætu menn séð byggðastefnu ríkisstj. Vissulega geta menn séð það. En það verður með algerlega öfugu formerki, miðað við það, sem hæstv. ráðh. vildi halda fram, því að aðrar hafnir á landinu, þar sem mestur byggðavandinn er, eiga í miklum erfiðleikum, og það verður ekkert séð á um stefnu ríkisstj. hvað hún hyggst gera fyrir þær, ekki á næsta ári, að ég tali nú ekki um fram í tímann.

Ég vil svo að lokum spyrja hæstv. ráðh. aftur um það, hvernig hafnaáætluninni liði. Fær hv. Alþingi að sjá hafnaáætlun á þessu þingi, sem nær yfir nokkurt árabil og verður tekin hér til afgreiðslu á hv. Albingi, eða fæst það ekki?

Svo vil ég aðeins fá upplýst í sambandi við þær 600 millj., sem nú munu vera á fjárlögum til annarra hafna en þessara umræddu þriggja hafna, sem eiga að fá þúsund milljónirnar, hvernig þær skiptist á milli sérstakra hafnaáætlana, eins og t. d. Norðurlandsáætlunar, og venjulegra fjárveitinga, sem áður voru? Eins og hv. þm. er kunnugt, var núna meiningin að skella saman framkvæmdaáætlun og fjárlögum. En það hefur þann annmarka, að það sést ekki, hvað mikið fé hefur verið hugsað að láta af þessu fé vegna framkvæmdaáætlana. Það kemur ekki fram í fjárl. frv., en ef hæstv. ráðh. gæti upplýst það, þá hefði ég gjarnan viljað fá eitthvað um það að vita.