03.12.1973
Neðri deild: 33. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 986 í B-deild Alþingistíðinda. (876)

107. mál, lántökuheimild vegna framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar 1973

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Þetta frv. um lántökuheimild vegna framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar fyrir árið 1973, sem er staðfesting á brbl., var hér til umr. í s. l. viku, og hefðu sennilega ekki orðið um þetta frv. miklar umr., ef ekki hefði komið fram ósk um að flytja brtt. við frv. þess efnis að heimila ríkisstj. að taka 7 millj. dollara lán hjá Alþjóðabankanum til hafnarframkvæmda í Grindavík, Þorlákshöfn og Höfn í Hornafirði, eftir nánari ákvörðun ríkisstj., og sömuleiðis ef svör hæstv. fjmrh. hefðu verið með nokkuð öðrum hætti en þau voru við þessar umr. Ég vil taka það fram til að fyrirbyggja allan misskilning, leggja á það höfuðáherslu, að ég hef ekki sett mig upp á móti því, að það væri farið í hafnarframkvæmdir á þessum þremur tilteknu stöðum. En það, sem ég hef deilt á, er í fyrsta lagi efnismeðferð þessa máls og í öðru lagi það, að á sama tíma og þetta er gert er látið algerlega liggja á milli hluta, hvað skuli gert í öðrum höfnum á landinu, og jafnframt látið liggja á milli hluta að framkvæma þau hafnalög, sem eiga að taka gildi 1. jan. n. k.

Ég sá í Tímanum á föstudaginn, að hann tekur þessi mál til umræðu í leiðara sínum, og þar segir, að tiltekin atriði hafi komið fram í snjöllum ræðum Halldórs E. Sigurðssonar. Ég verð að segja það, að mikill er skoðanamunur minn t. d. og leiðarahöfundar Tímans, ef hann hefur talið þessar ræður Halldórs E. Sigurðssonar snjallar. Ég hef oft heyrt Halldór E. Sigurðsson fjmrh. flytja góðar og snjallar ræður, en þessar ræður voru þær lökustu, sem ég hef heyrt hann flytja. Það telur leiðarahöfundur Tímans til snjallra ræðna. Ég held, að það sé mjög mikið að athuga við mat leiðarahöfundar, og ég tek það fram til þess að fyrirbyggja misskilning, að það var leiðarahöfundur Tímans, en ekki Möðruvallahreyfingin, sem lagði þetta mat á það.

Hæstv. fjmrh. sagði, að það hefði ekki verið sýnd hér nein frekja í sambandi við þessa málsmeðferð. Ég sagði það í ræðu minni, að þar hefði ráðið frekja ráðh. Ég verð að segja það og ég tek það atriði alls ekki aftur. Samgrn. skrifaði til fjmrh. 31. okt. 1973, en það kemur ekkert bréf í hendur formanns fjh.- og viðskn. fyrr en 27. nóv., þar sem óskað er eftir því við form. n., að tekin verði inn í þetta frv. um heimild Alþingis til að taka 7 millj. dollara lán hjá Alþjóðabankanum til framkvæmda á þremur tilteknum stöðum. Ég sagði, að mér fyndist það vera frekja, í fyrsta lagi að gleyma því í næstum því mánuð að eiga von á 7 millj., dollara láni, ætlast svo til þess, að Alþingi sé aðeins einföld afgreiðslustofnun, sem á samri stundu og um er beðið eigi að afgreiða þetta mál.

Ég skal ekki endurtaka það, sem ég sagði hér áður í sambandi við þetta atriði, en ég vil segja út af því, sem hefur komið fram m. a. hjá síðasta ræðumanni, hv. 3. þm. Vestf., sem var samgrh., þegar þessi ákvörðun var tekin, að því er ég best veit, að hann sagði, að það hefði ekki verið um neitt annað að ræða. Ég hef heyrt annað í sambandi við lán Alþjóðabankans. Ég óska eftir því, að hæstv. fjmrh. eða einhver annar ráðh. mótmæli því þá, ef það er ekki rétt. Ég hef heyrt það og var búinn að heyra það fyrir löngu, áður en þetta kom til greina, að Alþjóðabankinn hefði gefið mjög ákveðin fyrirheit um að lána allt að 15–17 millj. dollara til Sigölduvirkjunar. Nú er þessi upphæð komin niður í 10 millj. dollara. Ég spyr hæstv. fjmrh.: Var það Alþjóðabankinn einn, sem ákvað að lækka lánstilboð sitt til Sigölduvirkjunar úr 15–17 millj. dollara niður í 10 millj., eða kom fram sérstök beiðni um það héðan frá Íslandi, að þessi upphæð yrði lækkuð og mismunurinn notaður til þessara tilteknu hafnarframkvæmda? Kom beiðnin eftir allt saman héðan að heiman? Kom hún frá hæstv. ríkisstj.? Eða er hitt réttara, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að sérfræðingar Alþjóðabankans hefðu sjálfir fundið upp, að það ætti að lána þessar 7 millj. dollara eingöngu til þessara þriggja hafnarframkvæmda á landinu? Bæði mér og öðrum leikur forvitni á að vita, hvort er réttara í þessu efni? Vill hæstv. fjmrh. þá segja það alveg blákalt, að aldrei hafi komið til greina, að Alþjóðabankinn hafi verið búinn að heita eða hafa mjög sterk orð um að lána 15–17 millj. dollara til Sigölduvirkjunar? Hvernig stendur svo á því, að sú upphæð er lækkuð niður í 10 millj. dollara, ef ekkert samband er á milli þessarar lántöku og þeirrar lántöku, sem hér er um að ræða til þessara þriggja tilteknu hafna? Mér finnst, að þetta skipti töluvert miklu máli.

Hæstv. fjmrh. sagði á miðvikudaginn, að hann og ríkisstj. hefðu ekki beitt neinni frekju við að koma þessu máli áfram, því að d. hefði veitt afbrigði fyrir því að taka málið á dagskrá, þótt nál. hafi ekki legið fyrir fyrr en þá á stundinni. Ég spyr: Hvenær neitar d. um afbrigði? Er yfirleitt ekki alltaf orðið við óskum bæði ríkisstj. og þm. um afbrigði? Hitt breytir ekki þeirri fullyrðingu minni, að á það var lagt ofurkapp að fá þetta mál til afgreiðslu í skyndi, eftir að búið var að gleyma 7 millj. dollara lántöku í heilan mánuð uppi í fjmrn.

Ég segi líka: Hvers vegna mátti ekki flytja sérstakt sjálfstætt frv. um þessa lántöku? Af hverju þurfti að klína því inn í frv., eftir að það er komið til n., um staðfestingu á brbl.? Datt engum í hug, fyrr en frv. var búið að liggja fyrir n. í þó nokkra daga, að þarna væri best að klína 7 millj. dollara lántökuheimild? Hver er sá mikli bakarameistari, sem fann þetta upp, þarna ætti þetta best við, þessar kökur færu best saman? Svo sagði hæstv. fjmrh., og furðaði ég mig á, að leiðarahöfundur skyldi kalla það snjalla ræðu, þegar hann fór út í það að segja frá Vestfjarðaáætluninni, þegar hún var samþ. á sínum tíma, þá hefði ég ekki verið að hugsa um aðrar hafnir, heldur en bara um hafnir á Vestfjörðum. Þetta mál var lagt fyrir Alþ. Það voru allir samþykkir því. Ástandið var það óbjörgulegt í þessum landshluta. Það var síðan tekin upp atvinnumálaáætlun fyrir Norðurland, og það var ekki af því, að við vildum ekki hugsa um atvinnumál annars staðar. Við þm. féllumst allir á það. Það var svo tekin samgöngumálaáætlun Austfjarða. Þá heimtuðu ekki önnur kjördæmi samgöngumálaáætlun. Hins vegar hélt auðvitað framþróunin áfram, sérstaklega í sambandi við hraðbrautirnar hér í nágrenni Reykjavíkur, svo að það má segja, að það hafi verið bæði framlög til strjálbýlis og þéttbýlis jafnhliða, svo að þetta er ekkert nýtt atriði.

Hvernig tók flokkur hæstv. fjmrh. Vestfjarðaáætluninni og þeim lánum, sem tekin voru til hennar á sinum tíma? Þeir kölluðu þetta flóttamannalán, það væri eiginlega til skammar fyrir ríka þjóð eins og Íslendinga að leyfa sér að taka lán úr Flóttamannasjóði Evrópu. Þetta væri sjóður, sem lánaði eingöngu til fólks, sem væri í nauðum statt, til vesalinga og aumingja, sem væri ekki nokkur leið að björguðu sér. Þetta fannst Framsfl. höfuðsynd, að leggjast svo lágt að taka slík lán. Svo kemur Framsfl. í ríkisstj. og hefur bæði forsrh. og fjmrh. og utanrrh. Og eitt af því fyrsta, sem hann gerir í sambandi við erlendar lántökur, er að leita til þessa flóttamannasjóðs um lán. Nú er hann aldrei kallaður flóttamannasjóður. Nú er hann kallaður sínu rétta nafni, Viðreisnarsjóður Evrópu. Þar hefur lán verið tekið til Austurlandsáætlunar og Norðurlandsáætlunar. Þetta hefur gengið ágætlega, og nú nýtur þessi ágæti sjóður mikillar virðingar, bæði stjórnar og stjórnarandstöðu. En áður var stjórnarandstaðan mjög mótfallin lántökum í þessum sjóði, þáv. stjórnarandstaða.

Hæstv. fjmrh. breiddi mjög úr sér hér í ræðustólnum og sagði, að ég gerði meiri kröfur til hans en fyrirrennara hans, Magnúsar Jónssonar, og virtist vera rígmontinn yfir þessu. Það var a. m.k. ekki að sjá eða heyra annað. Ég gerði þá kröfu til hans, og ég sagði það, að eins og hann hefði haft mikinn áhuga á að rétta hag hafna á sínum tíma, þegar hann var óbreyttur þm. og fjvn.-maður, þá bjóst ég við, að hann yrði ekkert slakari en Magnús Jónsson, þegar hann væri kominn í fjmrh.-stólinn. En reyndin hefur orðið önnur hvað snertir framlag til hafnanna. Magnús Jónsson féllst á það, að ríkissjóður greiddi sem styrk til hafnanna almennt 57.15% af gengisbreytingunni, en Halldór E. Sigurðsson er ekki búinn að fallast á neitt enn þá. Ég var svo bjartsýnn, að ég hélt, að hann mundi gera þetta af fúsum og frjálsum vilja. En það er engin ástæða til þess að verða montinn af því, að einhver geri kröfu til manns um það, að hann standi sig jafnfætis við þann, sem var á undan honum í ráðherrastól. Ég held, að hann ætti þá að sýna það í verki, að hann sýni þessum málaflokki áhuga, og verða við þessum marg endurteknu óskum og kröfum víðs vegar að af landinu.

Þegar hann hefur orðið við þeim og hefur framkvæmt þær, þá má hann fyrir mér vera rígmontinn.

Ég furða mig á því, sem hæstv. fjmrh. sagði hér í þessum umr. Hann var áður ágætur þm. og heiðarlegur í málflutningi. Hann sneri nú við staðreyndum. Hann gerði mér upp, að ég hefði sagt þetta og hitt, sem ég hef aldrei sagt, í þessari „snjöllu ræðu“. Hann sagði, að ég hefði verið á móti þeim byggðarlögum, sem ættu að fá þessar framkvæmdir, að þau fengju framkvæmdir, og hann sagði, að ég hefði haldið því fram, að Grindavík og Þorlákshöfn væru ekki framleiðslustaðir. Af því að ég talaði um það, að hafnir á mikilvægum framleiðslustöðum yrðu að bíða eftir hafnarframkvæmdum, þá þýðir það hjá hæstv. fjmrh., að ef maður talar þannig, þá séu Grindavík og Þorlákshöfn ekki framleiðslustaðir, sem eigi að fá fé til hafnarframkvæmda. Ég skil ekki slíkan málflutning sem þennan, og ég skil alls ekki, hverju hann þjónar. Ég held, að hæstv. ráðh. hafi verið í slæmum félagsskap að undanförnu, þegar hann er farinn að temja sér svona hætti í ræðumennsku. Ég held, að hann ætti að leita sér betri félagsskapar. Það er oft óhollt fyrir menn, sem koma til borgarinnar, að lenda í slæmum félagsskap, og það hefur sýnt sig í þessu tilfelli.

Hæstv. fjmrh. sagði, að það hefði ekkert legið fyrir um stöðu hafnanna almennt í landinu. Þess vegna átti það að heita einhver afsökun fyrir því, að hann tekur ekki inn í fjárlagafrv. framlög til að bæta stöðu hafnanna í landinu. Ég vil minna hæstv. fjmrh. á það, að n., sem samdi frv. til nýrra hafnalaga og var skipuð vorið 1971 og bætt í þá n. tveimur mönnum haustið 1971, — þessi n. skilaði áliti snemma árs 1972. Því áliti fylgdu mjög mikilvægar upplýsingar um stöðu hafnanna í landinu, sem voru prentaðar með frv. því, sem ríkisstj. lagði fram rétt fyrir þinglok 1972. Þetta frv. var óbreytt frá því, sem þessi n. gekk frá því, og margvíslegar upplýsingar sýna, hvernig þessum málum er háttað í árslok 1971. Þar kemur fram t. d., hvað afborganir af föstum lánum og vextir á íbúa í tilteknum kauptúnum og kaupstöðum á landinu næmu miklu. Í Neskaupstað var þessi upphæð talin vera á hvern einasta íbúa 4895 kr., á Bakkafirði 4683 kr., á Þingeyri 4577 kr. Þessar upphæðir hafa hækkað og ýmsar aðrar hafnir hafa nú farið upp úr þessu, sem voru með framkvæmdir seinna, sem gerðu það að verkum, að afborganir voru ekki komnar af fullum þunga á þessar hafnir. Það, sem átti að gera og samgrn. bar að gera, var við undirbúning undir fjárlög fyrir árið 1974, að gera till. til fjvn. og Alþ. um skiptingu fjár til þess að létta greiðslubyrði þeirra hafnarsjóða, sem eiga við mesta erfiðleika að etja, og átti að hafa við þessa tillögugerð hliðsjón af skiptingu á tekjum og gjöldum hafnarsjóðs, framlagi sveitarfélagsins til hafnarsjóðsins, fólksfjölda og öðrum þeim atriðum, sem hafa áhrif á greiðslugetu hafnarsjóðsins. Nú mundi ég ætla, að þegar kom til umr. að taka jafnstórt og mikið lán til þriggja hafnargerða á landinu, að í ríkisstj., þar sem búið væri að lýsa jafnoft yfir stuðningi við byggðastefnu, stuðningi við strjálbýlið, að þar hefði ekki verið látið undir höfuð leggjast að undirbúa vandlega framkvæmdaáætlun fyrir aðrar hafnir á landinu, þegar þar við bætist, að skylt var að gera það samkvæmt þeim lögum, sem taka gildi 1. jan. 1974. En þrátt fyrir alla þessa strjálbýlispostula og byggðavini dettur engum í hug að gera neitt, engin upphæð er tekin inn í fjárlagafrv. fyrir árið 1974 og ekkert er vitað enn, og það fer nú að líða að afgreiðslu fjárl., hvort eða hvað verður tekið inn í fjárlagafrv.

Þetta er það, sem ég er fyrst og fremst að átelja og geri það einu sinni enn. Ég lýsi yfir óánægju minni yfir þessum vinnubrögðum og tel fráleitt að falla frá því að hafa verulega upphæð í fjárlagafrv. til þess að rétta greiðslustöðu hafnanna, og það er því furðulegra, þar að fyrir ári féllst hæstv. fjmrh. á að taka á heimildargrein 40 millj. kr. til að deila á milli þeirra hafna, sem verst voru settar í landinu, en tekur ekkert inn í þetta fjárlagafrv. Þetta tel ég ekki bera vott um það, að menn séu jafntryggir byggðastefnunni og þeir vilja oft vera láta, þegar þeir eru að tala við landsbyggðina.

Hæstv. fjmrh. sagði, að það væru engar smábreytingar, sem hefðu orðið á framlagi til hafnamála frá því, sem var, þegar viðreisnarstjórnin réð ríkjum, nú þegar hann og þeir aðrir sterku menn, sem eiga sæti í þessari ríkisstj., ráða ferðinni. Og hann sagði: Það er nú hvorki meira né minna en 812 millj. kr. varið til hafnarmálanna. Svo tók hann tölurnar úr fjárl. nokkur ár á undan. En honum láðist alveg að geta eins, sem ég held því miður, að hafi ekki verið óviljandi. Hefði það verið óviljandi, þá er það fyrirgefanlegt. En hæstv. fjmrh. er sjálfur í fjárlagaræðu sinni búinn að leggja á það mikla áherslu, að hækkun fjárl. sé líka vegna þess að nokkru leyti, þó að það sé ekki nema að litlu leyti, að framkvæmdaáætlunin til ríkisframkvæmda sé nú í fjárlagafrv. í fyrsta skipti. Samanburður á tölum við fyrri fjárlög, þegar framkvæmdaáætlanir ríkisstj. voru í sérstöku frv. og sérstökum lögum, er algerlega út í hött. Ef hæstv. ráðh. ætlar að gera samanburð á milli ára, verður hann að taka tillit til þeirra lána, sem tekin hafa verið til hafnarframkvæmda, og einnig þeirra upphæða, sem eru í fjárl. hverju sinni, leggja þær tvær tölur saman, þá fær hann þann sama viðjöfnuð og hann er nú að ræða um. En það er alls ekki sæmandi fyrir ráðh. að viðhafa slíkan málflutning sem þennan.

Ég fullyrði, að hafnalöggjöfin reyndist engan veginn vera nógu fullkomin. Það voru sett ný hafnalög á árinu 1966, að ég best man. Þá var mjög breytt framlögum ríkisins til hafnargerða, og þá var gerð nokkur tilraun til að efla Hafnabótasjóð, en þó engan veginn nógu víðtæk. Það kom fljótt í ljós, að þessi löggjöf reyndist ófullnægjandi vegna þess, hvað kröfur jukust ár frá ári um fullkomnari hafnir, dýrari hafnir en áður þekktust. Það hefur oft verið minnst á Vestfjarðaáætlun, og í þeirri áætlun var t. d. gert ráð fyrir trébryggjum á tveimur stöðum, þegar hún var gerð, ekki eldri áætlun en þetta. Áætluninni er ekki lokið, þegar kröfurnar eru orðnar svo ákveðnar, að það komi ekki til greina að byggja hafnaraðstöðu tveggja kauptúna í því kjördæmi í framtíðinni á trébryggju, og það er farið í hafnargerð á þessum stöðum eins og víðast hvar annars staðar á landinu. Hefur því sýnt sig, að löggjöfin reyndist tiltölulega fljótt ófullnægjandi, og komu fram mjög margar raddir um að endurskoða hafnalögin. Það liðu ekki nema um 5 ár, frá því að löggjöfin var sett þangað til var farið af fullum krafti í endurskoðun hafnal., og það liðu liðlega 7 ár, þangað til ný löggjöf tekur nú gildi. Þetta kallar á auknar fjárveitingar til hafnargerða. Og það er það, sem við erum hér að ræða um, að það er ekki hægt að segja: Einhver stór og mikil stofnun úti í heimi sendi menn hingað vegna gossins í Vestmannaeyjum, og þeir sögðu við okkur í ríkisstj.: Þið byggið hér þrjár tilteknar hafnir, við lánum ykkur 7 millj. dollara til þeirra, en ef þið gerið ekki eins og við segjum ykkur, þá fáið þið ekki neitt. Tekur þessi stjórn sífellt við úrslitakostum? Taka þessir menn, sem sögðu, að aðrir lægju hundflatir fyrir erlendu valdi, við úrslitakostum, hvaðan sem þeir koma? Ég spyr. Ég vænti þess, að hæstv. fjmrh. sé ekki farinn algerlega. Ég vil gjarnan fá svar við þessu eins og hinum spurningunum, sem ég lagði fyrir hann hér áðan. (Forseti: Ég vil spyrja hv. ræðumann, hvort hann eigi mikið eftir af ræðu sinni, og verð ég að óska þess, að hann geri þá senn hlé á máli sínu vegna þingflokksfunda, sem hefjast áður en langt um líður). Ég gæti lokið þessu af á skömmum tíma, ef ég sæi hæstv. fjmrh., ég vil hafa hann hérna í sætinu. Þó að þeir séu góðir, þessir sem eru inni, þá vil ég nú heldur sjá hann í þessu tilfelli. — [Fundarhlé].

Herra forseti. Ég skal ekki vera mjög langorður úr þessu, en vegna þess að hæstv. fjmrh. var farinn úr þingsalnum áðan, kunni ég ekki við að ljúka svo máli mínu, að hann væri ekki viðstaddur, en ég hef nú svarað allflestu af því, sem kom fram í hans ræðu. En þó er eitt atriði, sem ég vil ekki gleyma að svara, þar sem hann var mjög ánægður yfir frammistöðu þeirrar ríkisstj., sem hann á sæti í, en það er hin glæsilega uppbygging fiskiskipastólsins, sem hann sagði, að fyrrv. stjórn hefði vanrækt, og þeir hefðu sýnt alveg einstakan dugnað, sem nú sætu í ráðherrastólum, í sambandi við uppbyggingu togaraflotans, sérstaklega að það hefði verið ákveðið af núv. ríkisstjórn að staðsetja togara víðar en í Reykjavík, Hafnarfirði og á Akureyri. Ég vil nú minna hæstv. fjmrh. á, að það var búið að veita leyfi fyrir 17 togurum, áður en þessi ríkisstj. varð til og það var hafin smíði sumra þessara skipa. Það voru 6 stórir togarar, sem búið var að semja um og hafin smíði á sumum þeirra og 11 hinum smærri togurum. Leyfi fyrir 11 hinum smærri togurum hafði verið veitt. Þessir smærri togarar voru ekki staðsettir í Reykjavík, Hafnarfirði eða á Akureyri. Ég minnist þess, að það var samið um 5 togara til Vestfjarða og ég held 4 til Austfjarða og 3 aðra af hinum smærri togurum, svo að það er ekki með réttu hægt fyrir núv. ríkisstj. að eigna sér alla uppbyggingu skipastólsins. Þetta finnst mér nú rétt að leiðrétta. Þó að það hafi ekki verið nema um 17 togara að ræða, þá tel ég það allmyndarlegt, þótt núv. stjórn telji það auðvitað einskis virði. En erum við ekki að lokum sammála um að segja og hafa það, sem sannara reynist?

Ég held, að ég geti ekki sleppt því að minnast á það, að í þeim mörgu upplýsingum, sem fylgdu hafnalagafrv., var gert ráð fyrir því samkv. þeim upplýsingum, að afborganir og vextir af hafnaskuldum, eins og var í árslok 1970, næmu 30–40 millj. kr. á ári. Miðað við þetta var greiðslujöfnuður hafnanna neikvæður um 140–150 millj. kr., og það vantaði því þessa upphæð í árlegar tekjur og styrki, til þess að þær gætu staðið við skuldbindingar sínar af því, sem þegar hafði verið framkvæmt, eða í árslok 1970. Þessi upphæð var talin nema tvö- til þreföldum rekstrartekjum að frádregnum heinum rekstrargjöldum, eða nær sömu upphæð og allar rekstrartekjur hafnanna. Ef hefði átt að mæta þessum skuldbindingum öllum af rekstrartekjum hafnanna einna, hefði á þessum tíma þurft að tvöfalda rekstrartekjur allra fiskihafna á landinu utan Reykjavíkur. Og það er líka eftirtektarvert, ef við lítum á það greiðsluyfirlit, sem fylgdi þessu frv., að rekstrartekjur 42 aðalfiskihafna landsins, fyrir utan landshafnirnar og Reykjavík, námu ekki nema 82–83 millj. kr., en rekstrargjöld þessara sömu hafna án vaxta og afborgana námu á sama tíma 45.4 millj. kr. Föst lán á höfnunum þá voru 544 millj. kr., en afborganir á árinu 1970 námu um 40.7 millj. kr., vextir af föstum lánum 37 millj. kr. og vextir af stuttum lánum, dráttarvextir og lántökukostnaður námu um 8.7 millj. kr. Þannig var ástandið, að það vantaði 49.7 millj. kr. á árinu 1970 til þess að ná endum saman. Nú vitum við, að þessar tölur hafa stórhækkað síðan, og það er sjáanlegt, að það þarf mun hærri upphæð.

Á grundvelli þessa yfirlits og þessara talna, sem ég var hér að nefna, voru 40 millj. teknar inn á heimildagr. fjárl. yfirstandandi árs. Það byggðist einmitt á þessum upplýsingum, og því átti alls ekki að standa í vegi fyrir því, ef áhugi og vilji hefði verið fyrir hendi, að taka inn hliðstæða upphæð eða hærri, — hún hefði auðvitað þurft að vera hærri, — inn í fjárlagafrv., sem nú liggur fyrir Alþ. En það var ekki gert. Þetta vildi ég láta koma hér fram.

Ég endurtek það, að ég er ekki að mæla gegn því, að það sé farið í ákveðnar, tilteknar framkvæmdir í höfnum landsins. En ég taldi og tel algerlega óviðunandi að ætla að bjóða öðrum fiskihöfnum þær fjárveitingar, sem gert er ráð fyrir, og jafnframt að vera í algerri óvissu um, hvernig eigi að rétta fjárhagsstöðu þessara hafna og þessara sveitarfélaga, sem nú verða að eyða allt að af brúttótekjum sínum til að standa undir vöxtum og afborgunum af hafnalánum. Ég tel óeðlilegt í alla staði, að af 812.7 millj. kr., sem fjárlagafrv. gerir ráð fyrir að fari til hafnamála í landinu, þar með talinn fastur kostnaður við stjórn Hafnamálastofnunarinnar, fari 56% til aðeins þriggja hafna, eða að segja má aðeins til tveggja hafna. Það fara til þessara hafna 455 millj. af 812.7 millj. kr. Þetta tel ég óeðlilegt í alla staði, þegar ekkert liggur fyrir um það, á hvern hátt eigi að bæta greiðslustöðu hafnanna, sem nú berjast í bökkum og hafa barist í bökkum á undanförnum árum. Ef ríkisstj. hefði sýnt áhuga í verki, eins og hún hefur sýnt í orðum og með málefnasamningi sínum, á hagsmunamálum landsbyggðarinnar, þá hefði hún jafnframt þessu átt að láta liggja fyrir áætlun um það, á hvern hátt hún ætlaði að leysa vandræði annarra hafna í landinu. En það hefur hún látið undir höfuð leggjast. Þetta ætla ég ekki að kenna hæstv. fjmrh, einum um, á þessu ber ríkisstj. í heild sök.

Ég ætla að endurtaka spurningu mína til hæstv. fjmrh, um lán Alþjóðabankans, sem ég nefndi hér í upphafi máls míns: Er það rétt, að Alþjóðabankinn hafi verið búinn að gefa ádrátt um að veita 15–17 millj. dollara til Sigölduvirkjunarframkvæmda, og er það rétt, að Alþjóðabankinn hafi kippt að sér hendinni og lækkað þessi lánsloforð niður í 10 millj. dollara, vegna þess að hann taldi rétt, að það yrði farið í þessar þrjár hafnaframkvæmdir á landinu, eða var það ríkisstj., sem óskaði eftir því, að það væri tekið af þessu fjármagni til Sigölduvirkjunar til þess að láta í hafnarmálin? Tel ég, að rétt sé, að hér komi fram skýlaus svör við þessum spurningum, því að það hefur, eins og ég gat um í upphafi máls míns, verið á það minnst mjög víða, að kostur væri á þessu fjármagni frá Alþjóðabankanum.

Þá langar mig einnig að ítreka þá spurningu mína til hæstv. fjmrh., hvort hann ætli að beita sér fyrir því, að það verði hækkuð almennt framlög til hafnargerða í því fjárlagafrv., sem liggur fyrir, og á þann hátt komið til móts við óskir og kröfur fólksins úti um land, sem byggir þá staði, sem þurfa á auknum framkvæmdum í hafnamálum að halda.

Og í þriðja og síðasta lagi: Ætlar hæstv. fjmrh. að beita sér fyrir því að taka inn á fjárlög upphæð til þess að létta greiðslubyrði hafnanna, eins og gert var á s. l. ári, og þá auðvitað mun hærri upphæð en þá var gert?

Ef svör við þessum tveimur síðustu spurningum eru jákvæð, þá lítur málið nokkuð öðruvísi út, ef það á jafnframt að taka fullt tillit til landsbyggðarinnar í þessum efnum, og þá verður hlutur ríkisstj. mun betri. En hann hefði verið enn betri, ef hún hefði tekið þessi mál upp án þess að vera knúin til þess og sýnt það, þegar fjárlagafrv. var lagt fram, að hún hefði áhuga á að efla fiskihafnir úti um landið.

Ég ætla ekki að fara í neinn meting um það, hvaða staðir eru framleiðslustaðir og ekki framleiðslustaðir. En það ætla ég að segja, að margar hafnir, þar sem eru fáir íbúar, hafa skapað það mikla framleiðslu og mikinn gjaldeyri fyrir þjóðarbúið, að það er ekki hægt að láta þær bíða mörg ár enn eftir nauðsynlegustu framkvæmdum. Það verður að gera átak, sem þegar er farið af stað með þessari ákvörðun, fyrir fleiri staði í einu, Ef við ætlum að standa við þau orð okkar að efla byggðir landsins, getum við ekki alltaf boðið þeim upp á það, mörgum byggðarlögum úti um land, að bíða eftir framförum í mörg ár og framkvæmdum, þegar aðrir eru búnir að njóta þeirra. Það verður að vera meiri jöfnuður þarna á milli en oftast hefur verið. Ég skal viðurkenna, að það hafa verið gerð átök í þessum efnum bæði fyrr og síðar, mjög myndarleg. En það vantar mjög á, og ég hef orðið var við það víða úti um land, bæði fyrir vestan, norðan og austan, að það er ætlast til þess og það er reiknað með því, að ríkisstj. og Alþ., sinni í vaxandi mæli þörfum hafnanna og létt sé af þeim sveitarfélögum, sem nú eru að sligast undir þessari byrði, þannig að þau geti staðið að alhliða uppbyggingu í sínum sveitarfélögum og sinnt þeim málum, sem hin ríkari sveitarfélög hafa verið að gera. Þessi sveitarfélög, sem standa uppi með hafnarskuldirnar, hafa lítið sem ekkert getað gert á öðrum sviðum, og úr þessu verður að bæta.

Ég vænti þess, að hæstv. fjmrh. verði við þeirri ósk minni að svara þessum spurningum, og það mundi gleðja mig mikið, ef hann svaraði þeim jákvætt og væri jákvæðari í þeim svörum heldur en hann var s. l. miðvikudag, þegar þessi mál voru til umr. hér í hv. þd.