03.12.1973
Neðri deild: 33. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í B-deild Alþingistíðinda. (877)

107. mál, lántökuheimild vegna framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar 1973

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja brtt, á þskj. 165 við brtt. hv. 5. þm. Austf., sem er að finna á þskj. 158. Sterkustu rök, sem ég gæti fært fyrir þessari brtt., væru þau að lesa upp kafla úr ræðu hæstv. fjmrh., sem hann flutti s. l. miðvikudag, þegar málið var hér til umr., en hann endurtók það þá í hinum tveimur ræðum sínum, að þetta lán frá Alþjóðabankanum væri fyrst og fremst samþykkt og veitt til þess, að það gæti komið Vestmanneyingum og bátaflota Vestmanneyinga að sem bestum notum. Nú liggur það fyrir, að ef ætti að fara eftir því einvörðungu, þá kæmi þetta fjármagn best að notum með því að veita það aðeins á þá tvo staði, sem nú í dag eru og í framtíðinni munu verða þeir staðir, sem bátafloti Vestmanneyinga og Vestmanneyingar hafi mest samskipti við, en það eru auðvitað höfnin í Vestmannaeyjum og svo aftur Þorlákshöfn, sem er endastöð á þeirri siglingaleið, sem Vestmanneyingar hafa tekið upp í vaxandi mæli á milli Eyja og meginlandsins. Einnig er Þorlákshöfn sá staður, sem Vestmannaeyjabátar leita til, ef þeir þurfa að landa afla utan Vestmannaeyja. Ég hygg, að það sé alger undantekning, ef Vestmannaeyjabátar hafa á undanförnum árum og munu á komandi árum landa afla í Grindavíkurhöfn, þannig að framlag til þeirrar hafnar er ekki í neinu samræmi við það, sem hæstv. fjmrh. sagði hér í hinum snjöllu ræðum sínum, að væri ósk lánveitenda. Það, sem ég hygg að sanni þetta þó kannske enn frekar, eru þær niðurstöður, sem sú n., sem hefur fjallað um þessi mál. hin stjórnskipaða nefnd, komst að, — þær niðurstöður, sem er að finna í hennar lokaorðum. Ég vil geta þess í því sambandi, að ég held, að það sé alveg rétt með farið, að n. var búin að hafa mjög ítarlegar viðræður við fullfrúa Alþjóðabankans, áður en hún skilaði nál., þannig að hún hefur a. m. k. talið sig nokkurn veginn vita, hvaða till. mundu verða í samræmi við óskir ráðamanna Alþjóðabankans. En á bls. 12 í ágripi úr lokaorðum segir þannig í upphafi, með leyfi hæstv. forseta:

„Í ábendingum hér að framan er bent á þrjá staði, þar sem nm. telja, að hafnarbætur kæmu að mestu gagni fyrir bátaflota Vestmanneyinga á næstu árum. Staðirnir eru Þorlákshöfn, Grindavík og Vestmannaeyjahöfn.“

Þetta eru þeir staðir, sem hin stjórnskipaða n., sem hafði með þessi mál að gera, leggur til í sínu nál. Þess vegna kemur það mjög undarlega fyrir, að hæstv. ráðh. og hæstv. fyrrv. samgrh. skuli hreinlega stilla Alþ. upp við vegg og segja: annaðhvort þetta eða ekki neitt, annaðhvort skuli lánin veitt til þeirra staða, sem tilgreindir eru í frv. fyrir lántökuheimildinni, eða þá lánið verður ekki veitt af Alþjóðabankanum. Mér er spurn: Hvaðan kemur sá hinn nýi staður, sem n. minnist ekki á í sínu nál.? Er það eftir ábendingu ráðamanna Alþjóðabankans eða einvörðungu ráðstöfun íslensku ríkisstj.? Ef það er einvörðungu ráðstöfun íslensku ríkisstj., þá hefur ríkisstj. sjáanlega heimild til þess að ráðstafa þessu láni á annan veg en hæstv. fjmrh. hefur hér staðhæft, að hún hefði. Og þó að svo væri, að þetta hefði verið viljayfirlýsing ráðamanna Alþjóðabankans á þeim tíma, er þeir voru hér, þá hafa aðstæður allar breyst það mikið síðan að ég er sannfærður um, að ef þeim væri gert þetta ljóst og það væri ósk íslensku ríkisstj., að Vestmannaeyjahöfn kæmi þar einnig inn í sem aðili um lánveitingu, þá mundu þeir samþykkja það, því að mér er ómögulegt að skilja, að það geti verið rétt og samrýmst því, sem hv. fjmrh. sagði s. l. miðvikudag, að lánið ætti að veitast vegna náttúruhamfaranna í Vestmannaeyjum og til þess að það kæmi Vestmanneyingum að sem bestum notum, að stjórn Alþjóðabankans neitaði að samþykkja beiðni frá íslensku ríkisstj. um að Vestmannaeyjahöfn kæmi einnig inn í dæmið og að þangað yrði einnig veitt fé til hafnargerðar og samgöngubóta.