04.12.1973
Neðri deild: 35. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 999 í B-deild Alþingistíðinda. (885)

107. mál, lántökuheimild vegna framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar 1973

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Ég ætla síður en svo að taka upp nokkurt málþóf í sambandi við 3. umr. þessa máls. Ég vildi aðeins gera lokatilraun til þess að reyna að fá efni frv. að því er varðar 7 millj. kr. lántökuna í samræmi við það, sem hæstv. fjmrh. lýsti hér í sínum snjöllu ræðum, þegar málið var til 2. umr. s. l. miðvikudag. Ég er með brtt., sem er í samræmi við þá lýsingu, sem hæstv. fjmrh. gaf með lántökunni, en það var, eins og hann sagði, að lántakan væri fengin til þess að bæta aðstöðu Vestmanneyinga og Vestmannaeyjaflotans í þeim höfnum, sem hann kynni að þurfa að hafa not af á næstu vertíð. Vitað er og liggur alveg augljóslega fyrir, að floti Vestmanneyinga muni hvorki landa í Grindavík né Þorlákshöfn umfram það, sem hann kaun að hafa gert á undanförnum árum, meðan höfnin í Eyjum var í fullkomlegu lagi. Hins vegar gæti farið svo, ef ekki verður löndunaraðstaða í Eyjum að fullu, að þá þyrfti bátaflotinn að leita til Þorlákshafnar og Eyrarbakka og Stokkseyrar, eins og hann gerði á s. l. vertíð og hefur gert áður. Till. mín er skrifl. og hljóðar þannig, með leyfi forseta :

„3. gr. orðist svo:

Ríkisstj. er einnig heimilt að taka 7 millj. dollara lán hjá Alþjóðabankanum til hafnarframkvæmda í Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn, Eyrarbakka og Stokkseyri og til samgöngubóta við Vestmannaeyjar.“

Fyrirsögn till. breytist í samræmi við þetta. Þar sem till. er skrifleg og of seint fram komin, leyfi ég mér að fara fram á, að hæstv. forseti leiti afbrigða fyrir henni.