25.10.1973
Sameinað þing: 7. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 169 í B-deild Alþingistíðinda. (89)
347. mál, landhelgismál
Fyrirspyrjandi (Jón Árm. Héðinsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram þrjár eftirfarandi fsp. til hæstv. utanrrh.:
„1. Hversu mörg ríki hafa á einn eða annan hátt viðurkennt 50 sjómílna landhelgi Íslands? Hver eru þau, og á hvern hátt hefur viðurkenningin átt sér stað?
2. Hefur utanrrn. leitað eftir viðurkenningu annarra ríkja á 50 sjómílna landhelgi? Hvaða árangurs er að vænta af því starfi?
3. Mun utanrrh. hlutast til um, að lögð verði grg. af Íslands hálfu fyrir Alþjóðadómstólinn, eins og Íslandi stendur til boða að gera fyrir 15. jan. 1974? Hefur sérstakri n. eða fræðimönnum verið falið það starf?“
Mér þótti tímabært að fjalla um þetta strax núna, vegna þess að nokkru fyrir þinglok seinast spurði ég um þau gögn, er send hefðu verið af hálfu utanrrn. til Haag, og lofaði þá hæstv. utanrrh. mér því, að ég fengi afrit af þeim gögnum, en því miður hefur það ekki komist í mínar hendur enn þá. En ég verð að ætla, að það megi treysta orðum hans og ég njóti þeirrar staðfestingar hans hér að fá afrit af þessum gögnum.
Í öðru lagi tel ég, að de facto viðurkenning sé nokkuð annað heldur en að hafa viðurkenningu í orðaskiptum eða bréfaskriftum á milli utanrrn. og utanrrn. þess lands, sem vill viðurkenna landhelgina. Og ég varð mjög gramur því í sumar, þegar talsmaður norsku sendinefndarinnar hér, sem fékk góða samninga að þeirra mati, þurfti endilega, er hann hvarf af landi brott, að gera þá aths., að þeir viðurkenndu ekki útfærsluna. Þeir viðurkenna hana eins og aðrir de facto. En ég vildi samt sem áður, að þessi hv. embættismaður hefði sýnt þá lágmarkskurteisi að þegja í þessu tilfelli.
Ég hef líka heyrt þess getið, að mikil kynning hafi átt sér stað undanfarið. En ég hjó eftir því, að allar spönskumælandi þjóðir, sem eru Mið- og Suður-Ameríka og Spánn, hafa ekki notið þeirrar virðingar af hálfu Íslands, að um landhelgina sé skrifuð á spænsku, þó að mikið á 4. hundruð millj. manna og þ. á m. mestu fiskveiðiþjóðir heims tali spænska tungu, að undanskilinni Brasilíu. Það getur vel verið, að það sé gott að dreifa miklu út á ensku, ég skal ekkert lasta það, en það hefði ég talið lágmarksvirðingu við þessar þjóðir, sem allar eru taldar stuðningsþjóðir og forustuþjóðir í að færa út landhelgina, að heim væru sendar upplýsingar um málið á eigin tungumáli.