04.12.1973
Sameinað þing: 29. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1008 í B-deild Alþingistíðinda. (897)
114. mál, félagsráðgjöf
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson) :
Herra forseti. Svar mitt við fsp. hv. 12. þm. Reykv. er svo hljóðandi:
Hinn 9. júlí 1971 skipaði þáv. menntmrh. skv. till. háskólarektors n., sem falið var að athuga, hvort gerlegt væri að taka upp kennslu í félagsráðgjöf hér á landi og þá í tengslum við námsbrautina í almennum þjóðfélagsfræðum við Háskóla Íslands. Í nefndina voru skipuð dr. Björn Björnsson prófessor, tilnefndur af háskólaráði, Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi, tilnefnd af Stéttarfélagi ísl. félagsráðgjafa, Hjálmar W. Hannesson M. A., tilnefndur af heilbr: og trmrn., og Árni Gunnarsson deildarstjóri í menntmrn., sem skipaður var form. nefndarinnar.
N. þessi hefur ekki enn skilað endanlegri álitsgerð en í bréfi til menntmrn. 2. júlí s. l. er gerð grein fyrir hugmyndum n. og nokkrum meginatriðum málsins. Þar segir m. a.:
„Nm. eru sammála um, að eðlilegt og æskilegt sé að koma á laggirnar aðstöðu hérlendis til menntunar félagsráðgjafa. Áhugi fyrir þessu námi virðist talsvert mikill og könnun, sem n. beitti sér fyrir, benti til, að þörf fyrir félagsráðgjafa og eftirspurn eftir þeim mundi fara vaxandi á næstu árum. Í umr. innan n. hefur verið talið eðlilegt að miða við, að félagsráðgjafanámið taki við af stúdentsprófi eða hliðstæðri undirbúningsmenntun og tæki allt að 31/2 ár að meðtöldum samanlagt 10–11 mánaða tíma til verklegs náms.
Varðandi stjórn og skipulag hefur n. hallast að því, að eðlilegt væri, að þetta nám myndaði sérstaka skor innan námsbrautarinnar í almennum þjóðfélagsfræðum við Háskóla Íslands eða þjóðfélagsfræðideildar, ef til hennar yrði stofnað. Leitast yrði við að samnýta eftir föngum námskeið og kennslu innan námsbrautarinnar eða deildarinnar, svo og að koma á hliðstæðu samstarfi við aðrar deildir, eftir því sem henta þætti, m. a. lögfræðideild og heimspekideild (sálfræði). Jafnframt slíkri samnýtingu yrði stuðst við umræðufundi eða seminör, þar sem fjallað yrði um viðfangsefni greinarinnar frá sjónarmiði félagsráðgjafar. Í ýmsum greinum og greinaþáttum yrði að sjálfsögðu sérstök kennsla fyrir félagsráðgjafarnema.
Nefndin hefur átt bráðabirgðaviðræður við fulltrúa sumra þeirra deilda og þeirra greina, sem leita þyrfti samstarfs við, og verður að telja þau viðhorf, sem fram hafa komið, yfirleitt jákvæð gagnvart samstarfi í einhverri mynd. Á sérstökum fundi með stjórn námsbrautar í almennum þjóðfélagsfræðum var af hálfu stjórnarmanna vel tekið þeirri hugmynd, sem að framan var lýst, um tengsl við námsbrautina. Hins vegar ber að leggja áherslu á, að þörf er frekari kannana á því, hvernig þessum tengslum og samstarfi við aðrar námsbrautir innan háskólans verði best fyrir komið, þannig að báðir aðilar hafi hag af.“
Í bréfi sínu til menntmrn. taldi n. æskilegt, að kennsla í félagsráðgjöf gæti hafist haustið 1974. Var skv. því lagt til við rn., að í frv. til fjárlaga fyrir árið 1974 væri farið fram á fjárveitingu í þessu skyni. Var þá m. a. hugsað til þess, að unnt yrði að ráða í byrjun næsta árs einn kennara, er falið yrði að undirbúa nánari tilhögun námsins og framkvæmd, þ. á m. að hafa forgöngu um samningu námsskrár. Menntmrn. gerði við undirbúning fjárlagafrv. till. um fjárveitingu í samræmi við erindi n. Þótt sú fjárveitingartillaga væri ekki tekin upp í fjárlagafrv., hefur menntmrn. fyrir sitt leyti hug á, að tryggð verði nægileg fjárveiting til að hefja mætti kennslu í félagsráðgjöf á háskólaárinu 1974–1975, ef aðrar aðstæður leyfa. Þess skal og getið, að skv. till. félagsráðgjafarnefndarinnar og að fengnu samþykki fjmrn., fjárlaga- og hagsýslustofnunar, auglýsti menntmrn, haustið 1972 styrk handa félagsráðgjafa til þess að afla sér framhaldsmenntunar erlendis í því skyni, að hann gæti tekið að sér kennslu í aðferðarfræði félagsráðgjafa. Var talið ógerlegt að fara af stað með raunverulegan undirbúning félagsráðgjafamenntunar hér á landi, nema tryggðir væru sérhæfðir kennslukraftar í þessum mikilvæga þætti málsins. Í framhaldi af því sótti Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi 6 mánaða námskeið við sérfræðilega stofnun í London á fyrra hluta þessa árs.
Þá skal þess og getið, að nokkur undanfarin ár hefur verið um það samkomulag við norsk stjórnvöld, að tekið væri við 4–5 Íslendingum á ári hverju til náms í félagsráðgjöf í Noregi, þ. e. a. s. einum nemenda í hvern skóla, sem slíka kennslu veitir þar í landi. Hefur menntmrn. árlega auglýst eftir umsóknum um þessar námsvistir og gert tillögur um ráðstöfun þeirra. Þá hafa íslenskir nemendur einnig átt kost á skólavist að nokkru marki við félagsráðgjafaskóla annars staðar á Norðurlöndum, og enn aðrir hafa farið til náms í öðrum löndum. Aðgangur er hins vegar víða þröngur að námsstofnunum á þessu sviði, og þar sem starfsvettvangur félagsráðgjafa virðist jafnframt fara vaxandi, eins og fyrr var drepið á, virðast flest rök hníga að því, að sem fyrst beri að stofna til menntunar í félagsráðgjöf hér á landi. Menntmrn. Hefur fyrir sitt leyti fullan hug á að fylgja því máli fram.