04.12.1973
Sameinað þing: 29. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1012 í B-deild Alþingistíðinda. (902)

117. mál, málefni Vladimirs Ashkenazy

Fyrirspyrjandi (Heimir Hannesson):

Herra forseti. Eins og hv. þm. er kunnugt, hafa málefni píanóleikarans Vladimírs Ashkenazy verið töluvert á dagskrá, bæði nú nýlega og fyrir nokkuð löngu, og þá einkum í sambandi við þá eðlilegu ósk hans, að faðir hans fái leyfi sovésku stjórnarinnar til að heimsækja þennan íslenska ríkisborgara á Íslandi. Ég veit, að ég þarf ekki að brýna hv. þm. í sambandi við þetta mál, þeir brugðust vel við á sínum tíma í sambandi við beiðni hans, og með leyfi hæstv. forseta vil ég leyfa mér að minna á opið bréf, er sent var sjálfum Leonid Bresnev formanni sovéska Kommúnistaflokksins, sem hljóðaði þannig:

„Oss undirrituðum ríkisborgurum lýðveldisins Íslands er kunnugt, hversu erfitt það hefur verið fyrir David Ashkenazy píanóleikara í Moskvu að fá leyfi til að heimsækja son sinn, hinn heimsfræga píanósnilling Vladimir Ashkenazy, sem búsettur er í landi voru Íslandi ásamt fjölskyldu sinni. Tregða yfirvalda og embættismanna í Moskvu til að veita David Ashkenazy þetta leyfi er í algjörri andstöðu við hugmyndir vorar um mannréttindi, því að hverjum manni skyldi óhindrað heimilt að heimsækja fjölskyldu sína, enda þótt hún búi í öðru landi. Af þessu tilefni snúum vér oss til yðar og hvetjum yður í nafni mannúðar og réttlætis til að beita sérstökum áhrifum yðar í því skyni, að horfið verði frá þessu ranglæti og David Askhenazy heimilað að heimsækja son sinn á Íslandi.“

Þó að það hafi ekki komið fram opinberlega, er nú ljóst, að formaður rússneska kommúnistaflokksins hefur ekki tekið alvarlegar en svo þetta bréf, sem margir og e. T. v. flestir hv. þm. á þeim tíma skrifuðu undir, að píanóleikarinn mun hafa fengið afsvar frá rússneskum stjórnvöldum. Af því tilefni vil ég leyfa mér að beina þeirri fsp. til hæstv. utanrrh., sem hér fer á eftir:

„1) Vilja íslensk stjórnvöld taka upp að nýju við sovésk stjórnvöld þá beiðni Vladimirs Ashkenazy, að hann fái að heimsækja son sinn og fjölskyldu hans á Íslandi?

2) Hver voru svör sovésku stjórnarinnar á sínum tíma við sömu ósk?“

Fram hefur komið opinberlega, að hæstv. utanrrh. hafi af drengskap sínum og áhuga beitt sér fyrir því, að þetta mál yrði tekið upp gagnvart sovésku stjórninni, en ég vil vinsamlegast óska eftir því, að hann skýri hér frá því, hver voru svör rússneskra stjórnvalda í því sambandi. Mér skilst að Leonid Bresnev hafi svarað í gegnum sína stjórnarstofnun. Einnig vildi ég gjarnan fá að heyra, hver er skoðun hæstv, utanrrh. á þessu máli, eins og það stendur núna.