04.12.1973
Sameinað þing: 29. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1020 í B-deild Alþingistíðinda. (911)
382. mál, fjármagn og fjármagnsöflun til niðursuðuverksmiðja
Fyrirspyrjandi (Bjarni Guðnason) :
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. iðnrh. fyrir svörin. Það kom bersýnilega fram, eins og mig grunaði, að lánamál lagmetisiðnaðarins væru í nokkrum ólestri, enda tók hæstv. ráðh. skýrt fram sjálfur, að þessi mál stæðu verulega til bóta. Mér sýnist, að þessi heildarlán til niðursuðuverksmiðja, sem voru rúmar 32 millj. kr. á tveimur s. l. árum, séu ekki ýkja mikið fjármagn, þegar höfð er í huga hin geysilega endurbót, sem nauðsynleg er á flestum, ef ekki öllum sviðum lagmetisiðnaðarins. En ég treysti því, að hæstv. iðnrh. leysi þessi mál eins og þörfin heimtar.