04.12.1973
Sameinað þing: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1048 í B-deild Alþingistíðinda. (934)
68. mál, farþegaskip milli Íslands, Færeyja, Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Áreiðanlega er hreyft í þessari þáltill. mjög merku máli, og athyglisverðar eru þær upplýsingar, sem hv. síðasti ræðumaður gaf um samvinnu þá, sem orðið hefur um athugun á málinu á vegum Norðurlandaráðs, og fullkomlega kemur til mála að sjálfsögðu að reyna einmitt, eins og ræðumaður tók fram, að byggja framkvæmdina á þeim hugmyndum, sem þar hafa verið til meðferðar.
En ég kvaddi mér hljóðs fyrst og fremst til þess með örfáum orðum að láta í ljós þakklæti mitt fyrir þann skarpa skilning, sem fram kemur í þessari þáltill. á þeim gersamlega nýju viðhorfum í samgöngumálum í landinu, sem eru að skapast um þessar mundir með opnun hringvegarins. Það er ánægjulegt að sjá slíkan skilning á þessu máli, eins og fram kemur í þessari þáltill. og er þá komin fram þessi hugmynd í henni að hafa heimilisfang fyrir slík millilandaskip einmitt á Austurlandi, nánar tiltekið á Reyðarfirði. Þetta er augljóslega alveg eðlileg till., eftir að nú er orðið ljóst, að hringvegurinn hemst í framkvæmd.
Sjóleiðin er styst á milli Austurlands og annarra landa í þessa átt, sem ætlunin er, að þetta skip haldi, og með hringveginum skapast ákjósanleg leið til annarra landshluta, og enn fremur er rétt að geta þess í þessu sambandi, að ákveðið er að byggja nýjan flugvöll við Egilsstaði, sem verður einn myndarlegasti flugvöllur landsins. Hann verður tengdur einmitt Reyðarfirði með Fagradalsbrautinni, sem er verið að ljúka við að endurbyggja og að sjálfsögðu mundi þá verða gerð í framtíðinni enn fullkomnari.
Fram að þessu höfum við hugsað þessi mál öll á aðra lund. Hugsunarhátturinn hlýtur að gerbreytast við þær framkvæmdir, sem nú eru að verða að veruleika, og langar mig til að segja það hér, sem ég hef oft sagt áður, að þessar breytingar, sem eru að verða með hringveginum, eru svo stórkostlegar, að þess verður ekki langt að bíða, að menn tali um, að þetta eða hitt hafi gerst fyrir eða eftir hringveg.
Ég er ákaflega ánægður yfir þeim skilningi, sem á þessu kemur fram hjá hv. flm., og vænti þess, að menn glati ekki niður þessu sjónarmiði, sem hann hefur svo myndarlega mótað við meðferð málsins.