04.12.1973
Sameinað þing: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1054 í B-deild Alþingistíðinda. (940)

75. mál, bætt póst- og símaþjónusta

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Á þskj. 81 hef ég leyft mér að flytja till. til þál. um bætta póst- og símaþjónustu í byggðum landsins, ásamt hv. 2. þm. Vesturl. og 6. þm. Sunnl. Till. er þess efnis, að Alþingi álykti að skora á ríkisstj. að gera nú þegar ráðstafanir til að auka og endurbæta þjónustu pósts og síma úti um byggðir landsins, svo að allir landsmenn geti búið við sem jafnasta aðstöðu að þessu leyti.

Á undanförnum þingum hafa nokkrum sinnum verið fluttar till. svipaðs efnis, svo sem till. til þál. um endurskoðun á gjaldskrá Landssímans, um talsímagjöld o. fl. Bent hefur verið á, að með útbreiðslu hins sjálfvirka símakerfis hafi landinu verið skipt í 9 svæði. Hvert svæði hafi hlotið sérstakt svæðisnúmer frá 91 upp í 99. Fyrir símtöl innan hinna nýju svæða gildi hins vegar mismunandi gjaldskrá. Það hefur einnig verið vakin athygli á því, að á Reykjavíkursvæðinu búi símnotendur við mun betra hlutskipti að þessu leyti, þar sem þeir geti hringt í öll númer í Reykjavík, Kópavogi, Garðahreppi, Bessastaðahreppi og Hafnarfirði á einu og lægsta gjaldi. Mun það vera nálægt 40 þús. símanúmera. Auk þess séu á Reykjavíkursvæðinu flestar opinberar stofnanir og fyrirtæki, sem allur þorri landsmanna þurfi að leita til. Á öðrum svæðum gildi hins vegar aðrar reglur. Gjald það, sem mönnum beri að greiða fyrir sambærilega þjónustu, sé mjög breytilegt og víða geti símnotandi aðeins hringt í fáeina tugi númera á lægsta gjaldi, en verði víðast að greiða mun hærra gjald, ef hann hringi í næstu sveit. Einnig hefur verið bent á, að ört hækkandi gjald með fjarlægð valdi íbúum dreifbýlisins miklum útgjöldum. Af þessum ástæðum öllum saman hefur verið bent á með ljósum rökum, að landsmenn búi við afar mikinn ójöfnuð sem símnotendur. Það hefur einnig verið kvartað yfir því og á það bent, að póstsamgöngur sé mjög ábótavant víða um landið. Bréf og blöð séu lengi á leiðinni milli sendanda og viðtakanda og yfirleitt hafi póstþjónustan alls ekki fylgst með tímanum. Það er um margar kvartanir að ræða af þessu tagi víða að af landinu, en ég ætla aðeins að nefna eina, er varðar símamál. Það er till., sem var samþ. á aðalfundi sýslunefndar Snæfellinga á s. l. vori og hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Sýslufundur Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu skorar á póst- og símamálastjóra að láta framkvæma gagngerðar endurbætur á símakerfi í Breiðvíkurhreppi og öðrum hreppum sýslunnar, sem svipað er ástatt um, svo að það geti fullnægt þörfum íbúa sveitanna á viðunandi hátt. Þá vill fundurinn enn fremur skora á símamálastjóra að láta fjölga símalínum á milli Reykjavíkur og Snæfellsness, svo að fjölsíminn þjóni héraðinu, svo sem til er ætlast. Þá telur fundurinn nauðsynlegt, að lengdur verði þjónustutími símstöðva 2. og 3. flokks, sem eru í sveitunum. Þessi till. var samþykkt samhljóða.“

Eins og ég tek fram í grg., er hér ekki um neina ádeilu að ræða á hendur póst- og símamálastjórn. Við vitum það allir, að þessi þjónusta er dýr, ef hún er rækt til fullnustu. Þess vegna veltur það á fjárveitingavaldinu, hvað það lætur af hendi rakna, hversu þessum málum fer.

Að sjálfsögðu var sú till., sem ég nefndi og las upp, send yfirstjórn póst- og símamála. Mér barst fljótlega í hendur svarbréf póst- og símamálastjóra, mjög vinsamlegt. Þar tekur hann fram m. a. og upplýsir, að stofnunin hafi þegar gert áætlanir um fjölgun landssímarása frá Reykjavík til Stykkishólms og lögð hafi verið áhersla á, að þetta mál næði fram að ganga. En það færi að sjálfsögðu, eins og segir í bréfinu, eftir afgreiðslu fjárveitingavaldsins, sem er í höndum þeirra, sem sitja í fjvn. Alþingis. Loks tekur hann fram og upplýsir, að í athugun sé bæði þjónustutími umræddra stöðva svo og opnunartími þeirra. Þetta kunnum við að sjálfsögðu vel að meta sem vinsamlegt bréf, vinsamlegt svar við bréfi. En fleira þarf til að koma.

Það er sjálfsagt að viðurkenna það, að mikið hefur áunnist á undanförnum árum að því er snertir útbreiðslu á sjálfvirku símakerfi og uppbyggingu á þjónustu þess við borgarana. En mikið vantar þó á, að um sambærilega aðstöðu allra landsmanna sé að ræða í þessum efnum.

Ég skal ekki hafa mörg fleiri orð um þessa till. Hún er það mikið rædd og hv. alþm. það mikið kunn, að það ætti að vera óþarfi að rökstyðja þetta í löngu máli. En ég vil að lokum leggja alveg sérstaka áherslu á, að n. sú, sem fær þessa till. til meðferðar, taki hana til rækilegrar skoðunar. Þetta er mál, að vísu kannske ekki stórmál, og þó stórt í augum margra, sem þarna eiga hlut að máli. Það snertir fjölda landsmanna. Þetta er mál, sem reyna ber til hins ítrasta að láta alla sitja við sama borð. Hér er um að ræða réttlætismál í anda þeirrar byggðastefnu, sem nú er svo mjög höfð á orði. Till. þessi er flutt til þess að hvetja alla aðila, sem hún varðar, til ítrustu viðleitni og raunhæfra framkvæmda í þessum málum.

Herra forseti. Þegar hlé verður á máli þeirra hv. þm., sem kunna að vilja leggja orð í belg um þetta mál á þessu kvöldi, legg ég til. að umr. verði frestað og till. vísað til hv. allshn.